Samvinnan - 01.12.1969, Side 32

Samvinnan - 01.12.1969, Side 32
yfir meiri fjölbreytni vegna landbúnaðarskilyrðanna þar. Eins og landslagi er háttað á Austur- landi, benda líkur til, að þar verði aðalmiðstöð héraðsins að skiptast á milli Egilsstaða og Reyðarfjarð- ar, en milli þeirra eru 34 fcm um Fagradal, þar sem vegurinn kemst upp í 320 m hæð. Ætti sá vegur að verða opinn meginhluta ársins eftir þá endurbyggingu, sem nú er lokið. Á Egilsstöðum er miðstöð samgangna um Fljóts- dalshérað, og þar er stór flug- völlur. Við Reyðarfjörð er aftur á móti ágætt hafnarstæði, þar er nóg landrými fyrir verulega byggð, og um staðinn liggja veg- irnir til Eskifjarðar, Neskaupstað- ar og Fáskrúðsfjarðar. Það hef- ur staðið Austfjörðum verulega fyrir þrifum, að þar hefur ekki myndazt vísir að ákveðnum „höf- uðstað“, svo sem Akureyri er fyr- ir Norðurland og ísafjörður að nokkru leyti fyrir Vestfirði. Fjarðarheiði einangrar Seyðis- fjörð og Oddskarð Neskaupstað. Það skiptir því mestu máli að fá endanlega úr því skorið, hvar þéttbýliskjarnanum verður bezt fyrir komið, og vinna síðan að eflingu hans, eftir því sem að- stæður leyfa. Austfjarðasvæðið hefur bæði skilyrði til landbún- aðar og útgerðar, en í sambandi við hið síðarnefnda skipti síldar- vinnsla til skamms tíma mestu máli. Framtíðin verður svo að skera úr því, hvort hægt er að auka fjölbreytni atvinnulífs frek- ar austan lands. Snæfellsi.essvæðið er fámenn- ast þeirra, er nefnd hafa verið þróunarsvæði. Það er hér látið ná frá Hellissandi að Stykkis- hólmi, enda tengist norðanvert Snæfellsnes vel innbyrðis með veginum fyrir Ólafsvíkurenni. Með endanlegri hafnargerð í Rifi verður að telja víst, að þunga- miðja útgerðarinnar og þar með byggðarinnar á nesinu muni flytjast þangað. En Stykkishólm- ur ætti að geta veitt svæðinu ým- iss konar þjónustu. Milli Rifs og Stykk’shólms er um 80 km veg- ur. Vestmannaeyjar eru cm helzta útgerðarstöð landsinr eg munu vissulega blómgast áfra'i. En líkur benda til, að sú auKumg, sem hefði getað orðið í Vest- mannaeyjum á fólksfjölda og fjárfestingu, muni að töluverðu leyti verða í Þorlákshöfn með hinni nýju höfn þar. Fiskimið þessara staða eru mikið til hin sömu, en það hefur svo marga kosti að búa á „meginlandinu", ekki sízt til að njóta ýmiss konar þjónustu, að Þorlákshöfn ætti að vaxa miklu örar. Á hinn bóginn eru Vestmannaeyjar svo þrótt- mikill athafnastaður, að sjálfsagt er að telja þær til þróunarsvæð- anna, þótt sérstaða þeirra sé augljós. Mikilvægir athafnastaðir. Auk þróunarsvæðanna sex, sem hér hefur verið rætt um, eru merktir á korti nr. 3 fjórir staðir, er kalla mætti mikilvæga athafna- staði. Vatneyri við Patreksfjörð og Sveinseyri við Tálknafjörð eru tengdar saman, og eru þar fiskimiðin höfð í huga og þjón- ustan við togarana. Blönduós er miðstöð Húnvetninga, og Höfða- kaupstaður (Skagaströnd) getur reynzt mikilvægur vegna hugs- anlegra síldveiða á Húnaflóa- svæðinu. Á Raufarhöfn var lengi ein bezt nýtta síldarverksmiðja landsins, og staðurinn mikilvæg söltunarstöð. Og frá Höfn í Horna- firði er róið til fiskimiðanna úti fyrir Cuðausturlandi, auk þess sem móttaka ferðamanna getur orðið mikilvæg atvinnugrein þar. Niðurlag Að lokum skal enn lögð á það áherzla, að til þess að hægt sé að tala um fullkomið, samfellt þróunarsvæði, verða samgöngu- leiðirnar að vera greiðfærar öll- um venjulegum farartækjum svo til allt árið. Á þessu getur ein- mitt verið misbrestur vegna snjó- komu og leysinga, en stendur þó víða til bóta. Það eru vissulega ekki viðunandi samgöngur, þó að þaulvanir menn geti flesta daga brotizt á sterkum bílum ákveðn- ar leiðir. Aðstæðurnar eru ekki orðnar góðar, fyrr en almennir borgarar geta farið leiðar sinnar á eigin farartækjum flesta daga ársins. Þróunarsvæðin sex ásamt hin- um fjórum athafnastöðum, sem rætt hefur verið um, höfðu 1. desember 1960 159.500 íbúa eða 90% þjóðarinnar, og hefur þeim fjölgað að tiltölu síðan. Það eru því ekki margir, sem skildir eru útundan, ef svo mætti segja. Við þessi 90% bætast svo að nokkru leyti þeir, sem búa nálægt tengi- brautunum milli þróunarsvæð- anna, en af þeim brautum er leiðin frá Borgarfirði að Skaga- firði auðvitað langmikilvægust, þar sem hún tengir saman höfuð- borgarsvæðið og Akureyrarsvæð- ið. Hér er að sjálfsögðu ekki ver- ið að gefa í skyn, að 10% þjóð- arinnar eigi engrar þjónustu að njóta og þurfi sem fyrst að flytj- ast til hinna 9/10 hlutanna. En þjónustan við þessar dreifðustu byggðir yrði eðlilega mun minni en við íbúa þeirra svæða, sem ákveðið væri að byggja örar upp. Áætlanir um það, hve íslend- ingar verði margir um næstu aldamót, eru eðlilega nokkuð á reiki, en oft er talað um 360— 380 þús. í þessu sambandi. Ef Vestmannaeyjakaupstaður. gert er ráð fyrir hærri tölunni og svipaðri þróun og verið hef- ur í fólksflutningum innan lands, gætu „Reykvíkingar" vel verið orðnir allt að 230 þús. eftir tæp 40 ár eða um 60% þjóðarinnar. Lítil þorp og bæir geta aðeins að takmörkuðu leyti hamlað á móti slíkri þróun og þaðan af síður dreifbýlið í sveitum. Önnur borg er eina mótvægið, sem getur dug- að. Og óneitanlega yrði það til meiri hvatningar og öryggis og myndi gera þjóðlífið fjölbreytt- ara og skemmtilegra, ef önnur borg tæki að vaxa í landinu. Með hugleiðingunum hér að framan er reynt að setja fram á kerfisbundinn hátt tillögur um, hvernig hafa megi jákvæð áhrif á þróun byggðarinnar í landinu. Áhrif sem í senn tryggi þrótt- mikla byggð í öllum landshlut- um, án þess að hamla gegn hag- vextinum, og taki jafnframt sem mest tillit til óskanna um stöð- ugt bætta þjónustu í samræmi við nútíma hugsunarhátt og lífs- skilyrði. Svo yfirgripsmiklu efni verða aðeins gerð lausleg skil í einni grein. En sýnist mönnum, að málefnið þurfi nákvæmari at- hugana við á þessum grundvelli, þyrfti að mynda umræðunefndir sérfræðinga samgangna og at- vinnulífs til að gera tillögur um eðlileg þróunarsvæði og upp- byggingu þeirra. Valdimar Kristinsson. 32

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.