Samvinnan - 01.12.1969, Page 37
Atgervisflottinn úr sveitar-
félögum strjálbýlisins
vinnugreinarnar einnig. Af þessu
verður ljóst, að hluti af því unga
fólki, sem elst upp í sveit eða
minni þorpum á Norðurlandi, fær
ekki vinnu þar vegna óhaggan-
legra lögmála atvinnulífsins, jafn-
vel þótt til ýmissa aðgerða sé
gripið til eflingar atvinnu á þess-
um stöðum. Þetta fólk þarf að
leita annað eftir atvinnu. Ef þétt-
býlismiðstöðvarnar á Norður-
landi, þar sem bezt skilyrði eru
fyrir vöxt iðnaðar og þjónustu-
atvinnugreina, geta ekki boðið
upp á fjölþætt atvinnutækifæri
fyrir þetta fólk, auk síns eigin,
hlýtur það að leita atvinnu út
fyrir svæðið, eins og áður. Sér-
stök efling atvinnulífsins á þess-
um stöðum hefur því úrslitaþýð-
ingu fyrir þróun Norðurlands
næstu áratugi.
Norðurlandsáætlunin
Efnahagsstofnunin hefur nú
lokið við tillögur sínar að at-
vinnumálaþætti Norðurlandsáætl-
unar. í þessum tillögum er gert
ráð fyrir að allmiklu fjármagni
verði varið til sérstakrar efling-
ar atvinnulífsins á Norðurlandi,
og settar eru fram almennar
tillögur um aðgerðir í sama skyni.
Lagt er til að byggt verði staðl-
að iðnaðarhúsnæði til útleigu fyr-
ir iðnrekendur, leitað að hent-
ugri gerð þorskveiðiskipa með
vísindalegum aðferðum, orku-
rannsóknum flýtt, fiskileit aukin
o. s. frv. Hér er að sjálfsögðu
fátt eitt talið, en segja má að
Norðurlandsáætlun muni fela í
sér atvinnumálastefnu ríkis-
valds, sveitarfélaga og aðila
vinnumarkaðarins á Norðurlandi
sem þegar hefur verið aflað sér-
staks fjármagns til þess að fram-
kvæma. Ákveðnu stjórnkerfi
verður einnig komið á fót til
þess. Hér er um að ræða örvun-
ar- eða hvatningarkerfi, sem mið-
ar að því að efla allt framtak,
bæði einstaklinga og félaga á
byggðasvæðinu, til aukinna at-
vinnuumsvifa.
Mikilvægi stóriðju
Stóriðnþróun Norðurlands er
augljóslega forsenda þess, auk
almennra aðgerða Norðurlands-
áætlunar, að vöxtur atvinnulífs-
ins þar geti orðið nægilega hrað-
ur næstu ár. Hin skörpu atvinnu-
þáttaskil í sögu þjóðarinnar, sem
áður getur, valda hér miklu um.
Samtímis því sem síldarhátekj-
urnar hætta að streyma á Norður-
landi eru fyrirsjáanlegar vaxandi
stórframkvæmdir á Suðvestur-
landi. Á mynd nr. III er sýnt
hversu mikil áhrif til eða frá
staðarval hliðstæðs stóriðjufyrir-
tækis og álbræðslunnar íStraums-
vík hefði, annars vegar ef því er
valinn staður við Eyjafjörð, hins
vegar á SV-landi. í fyrra til-
vikinu hefði það í för með sér
3000 manna íbúaaukningu á
Norðurlandi, en í hinu síðara tos-
aði það til sín, ef svo mætti segja,
1—2000 manns í viðbót við ann-
að aðdráttarafl vaxtarsvæðisins á
Suðvesturlandi. Staðarval stór-
iðju á Norðurlandi hefði þar í
för með sér 4—5000 manna áhrif
á mannfjölda til eða frá.
Hagstæðasti staður fyrir stór-
iðjufyrirtæki, sem áhrif á að
hafa á byggðaþróun landsins, er
í Eyjafjarðarbyggð. Þar er fyrir
mikill iðnaður, og þjónustuat-
vinnugreinar eru þar öflugastar
utan höfuðborgarsvæðisins. Þeg-
ar háar tekjur þeirra, sem starfa
við slíkt stóriðjufyrirtæki, og
aðrar greiðslur þess, sem sam-
tals gætu numið um 500 millj-
ónum króna á ári, streyma inn
í byggðarlag, þar sem mikill
iðnaður og þjónusta eru fyrir,
þá er augljóst að margfeldis-
áhrifin á vöxt atvinnulífsins
verða þeim mun meiri eftir
því sem fleira fólk vinnur að iðn-
aðar- og þjónustustörfum í við-
komandi byggð, og þjónustusvið
hennar er stærra. Þessi skilyrði
eru bezt í landinu við Eyjafjörð,
ef á annað borð er farið út fyrir
áhrifasvæði höfuðborgarinnar, og
þar er því staðarvalið áhrifarík-
ast fyrir byggðaþróun Norður-
lands og alls landsins.
Framtíðarþróun Norðurlands
Ef saman fara almennar að-
gerðir Norðurlandsáætlunar og
stóriðjuþróun Norðurlands, er
talsverð von til þess, að ná mætti
því marki innan skamms, að eðli-
leg fólksfjölgun yrði þar, sem
hefði þá í för með sér örari fram-
farir á Norðurlandi og minni of-
vöxt á höfuðborgarsvæðinu. Á
þessu ári hefur nokkuð þokazt í
þessa átt á nokkrum stöðum norð-
anlands, sem hafa mikla þýðingu
fyrir þróun alls byggðasvæðisins.
Á Sauðárkróki fer nú fram mikil
iðnaðaruppbygging, og á Húsavík
hefur stækkun Kísiliðjunnar mik-
il örvunaráhrif á næstu árum. Þar
er auk heldur í byggingu hita-
veita og ýmis áform um aukin
atvinnuumsvif. Á Siglufirði og
fleiri útgerðarstöðum norðan-
lands eru uppi mikil áform um
aukna útgerð á hentugum skip-
um 'til þorskveiða, sem geti orðið
undirstaða að verulegum vexti
fiskiðnaðarins. Á Akureyri fer nú
fram umtalsverð iðnaðaruppbygg-
ing, en miðað við stærð staðarins
og vaxtarþörf er hún þó alltof
lítil. Það liggur í augum uppi,
að stóriðja við Eyjafjörð hefði
þar „herfræðileg" úrslitaáhrif á
byggðaþróun Norðurlands og alls
landsins.
Lárus Jónsson.
Björn Friðfinnsson:
Sveitarfélag er samfélag ein-
staklinga, sem eiga lögheimili
sitt á afmörkuðu landssvæði inn-
an ríkismarkanna. Sveitarfélög
eru nauðsynlegur hluti af stjórn-
skipan þjóðfélags okkar, en hlut-
verk þeirra er að sinna ýmsum
sameiginlegum þörfum þegna
sinna. Sveitarfélög með verulega
sjálfstjórn eru millistig í stjórn-
arfarslegri uppbyggingu þjóðfé-
lagsins, sem tryggja lífrænna
samband framkvæmdavalds og
þegnanna og fella ákvarðanir og
framkvæmdir opinberra stjórn-
valda betur að landfræðilegum
staðháttum og félagslegum að-
stæðum á hverjum stað.
Þótt sveitarfélag sé þannig að
formi til aðeins hlekkur í opin-
beru stjórnkerfi okkar, þá má
einnig líta á það sem umgerð
þeirrar þjóðfélagsstarfsemi er
fram fer innan sveitarfélagsins
og byggð er upp af hinum marg-
víslegu þáttum atvinnu- og menn-
ingarlífs og athafnasemi einstakl-
inganna. Viðgangur sveitarfélag-
anna byggist á þessari þjóðfélags-
starfsemi, og af hlutfallslegum
vexti hennar eða hrörnun má
ráða mikið um framtíðarhorfur
hverrar byggðar.
Til þess að samfélag sveitar-
félags sé lífvænlegt þarfnast það
fjölmargra einstaklinga með góða
almenna menntun, með sérþekk
ingu á ýmsum sviðum, með
stjórnunarhæfileika o. s. frv.
Þótt hin ýmsu framleiðslu- og
þjónustufyrirtæki njóti einkum
hæfileika slíkra einstaklinga, þá
nýtast þeir heimilisbyggð sinni
á margvíslegan annan hátt, t. d.
með þátttöku þeirra í margs kon-
ar félags- og menningarmálum
og forgöngu þeirra að ýmsum
nýmælum. Þeir geta skapað þau
viðhorf og það andrúmsloft í
byggðarlaginu, sem dregur að
því fólk og leiðir til framfara á
flestum sviðum hins þrönga sam-
félags. ,
Það er hins vegar sorgleg stað-
reynd, að í mörgum byggðarlög-
um fer þessum mönnum sífellt
fækkandi og um leið verða hálf-
gerð uppgjafarsjónarmið ríkjandi
hjá þeim, sem eftir sitja. í stað
bjartsýni og einbeitts framfara-
hugar kemur vonleysi, biturleiki
og ákveðin tregða til að fylgjast
með þjóðfélagsþróuninni. Slíkum
byggðarlögum verður að lokum
ekkert gert til bjargar, svo að
verulegt gagn sé að. Enginn fjár-
stuðningur úr ríkissjóði eða
stofnunum hans getur komið í
stað þeirrar þekkingar, þess
framtaks, forystuvilja og þeirrar
útsjónarsemi, sem við eðlileg skil-
yrði héldu atvinnu- og félagslífi
staðarins öflugu. Vaxandi skort-
ur á hæfileikamönnum verður
enn bagalegri fyrir þá sök, að
þjóðfélagsstarfsemin verður sí-
fellt margbrotnari og flóknari og
krefst þess, að menn tileinki sér
stöðugt nýja þekkingu og nýja
hætti. Gamlar og nýjar atvinnu-
greinar geta ekki þróazt fram á
við, nema starfsmenn þeirra geti
fylgzt með erlendri tækni og
markaðsmálum. Móttaka erlendra
ferðamanna er víða erfiðleikum
háð úti um land sökum skorts á
fólki með nægilega málakunn-
áttu. Bókhaldslög og flóknari
skattheimtureglur verða tæpast
framkvæmdar í einstaka sveitar-
félögum sökum skorts á mönn-
um með nægilega þekkingu í
reikningsfærslu. Og þannig mætti
lengi telja.
Þegar menn velta framan-
greindum vandamálum fyrir sér,
kemur auðvitað strax í ljós, að
hér er í raun og veru um að
ræða mjög smækkaða mynd af
því þekkingarbili milli stórvelda
og smáþjóða, sem nú breikkar
óðfluga. í þessu tilviki er Reykja-
víkursvæðið stórveldið, sem sök
um betri menntunarskilyrða, fjöl-
breyttari atvinnutækifæra og
margvíslegra menningarstofnana
dregur að sér atgervisfólk úr
öðrum sveitarfélögum.
Um lausn þessa vandamáls
gilda sjálfsagt engar algildar
reglur, e;i byggðarlögin verða
sjálf að eiga frumkvæði að þeim
aðgerðum, sem snúið gætu at-
gervisstraumnum við. Það er
staðreynd að víðs vegar um land-
ið má skapa ánægjulegri lífsskil-
yrði en Reykjavíkursvæðið hef-
ur upp á að bjóða þeim, sem á
r.nnað borð vilja setjast að í
kauptúnum. En þar verða þá að
vera fyrir hendi verkefni á sem
flestum sviðum fyrir þá einstakl-
inga, sem aflað hafa sér lang-
skólamenntunar eða sérstakrar
starfsþjálfunar. Þá þarf að draga
úr gildi þess lögmáls, að efni-
37