Samvinnan - 01.12.1969, Side 45

Samvinnan - 01.12.1969, Side 45
Nokkurra ára gömul vetrarmynd frá Egilsstöðum. einstaklinga í sveitarfélaginu og víðar, var stofnað síðastliðinn vetur og tekur væntanlega til starfa snemma á næsta ári. Mun það geta veitt fjörutíu til fimm- tíu manns atvinnu. Ef vel tekst til um rekstur þessara fyrirtækja, er óhætt að fullyrða að þau verða mikil lyfti- stöng fyrir atvinnulíf staðarins og vonandi vísir að miklu meiri iðnaði. Það mun gilda hér sem annars staðar, að iðnaðurinn verður að taka við fólksfjölgun- inni, því ekki er rúm fyrir mjög aukið starfslið í öðrum atvinnu- greinum. Ég mun þó minnast á annan þátt, sem nokkrir starfa þegar við, en gætu orðið fleiri, en það eru samgöngur og þjón- usta við ferðamenn. Egilsstaðakauptún er þannig í sveit sett, að það er þegar orðið miðstöð samgangna á Austur- landi, bæði í lofti og á landi. Vegir milli staða innan fjórðungs liggja hér um, svo sem frá Borg- arfirði, Seyðisfirði og Vopna- firði til Reyðarfjarðar, Eskifjarð- ar, Neskaupstaðar og suðurfjarða. Einnig leiðin til Suðausturlands- ins um Breiðdalsheiði eða Öxi og aðalvegurinn norður yfir Hóls- fjöll til Norðurlands og Reykja- víkur. Hér er aðalflugvöllur fyr- ir Austurland og flugferðir milli Reykjavíkur og Egilsstaða eru daglega yfir sumartímann og alla virka daga yfir veturinn. Skipu- lagðar ferðir til flugvallarins eru frá nærliggjandi kauptúnum og kaupstöðunum tveim. Venjulega er vegum til þessara staða haldið opnum yfir vetrartímann, en sé það ekki hægt, eru snjóbílar not- aðir og raunar mestallan vetur- inn á Fjarðarheiði til Seyðis- fjarðar. Mikinn hluta vetrar er vegurinn um Oddskarð til Nes- kaupstaðar ófær, en þar er ekki hægt að koma snjóbílum við vegna bratta. Eru þeirra sam- göngumál leyst með beinum flug- ferðum til Reykjavíkur þann tíma. A síðastliðnu ári var tekin í notkun ný flugstöðvarbygging á Egilsstaðaflugvelli. Er þar nú komin góð aðstaða fyrir starfs- fólk og ferðafólk. Veitingasala hefur verið rekin í Valaskjálf frá því húsið var tekið í notkun árið 1966, og á næsta ári verður kom- ið upp gistiaðstöðu í sambandi við það. Einnig rekur Sveinn bóndi á Egilsstöðum gistihús, og á sumrin er skólunum á Eiðum og Hallormsstað breytt í hótel. Kaupfélag Héraðsbúa rekur sölu- skála — ferðamannaverzlun — þar sem verzlað er með flest það sem ferðamenn þarfnast. Þegar er því komin nokkur starfsemi í kauptúninu í sam- bandi við samgöngur og ferða- menn, sem vonandi á eftir að stóraukast. Til þess að svo verði, væri áhrifaríkast að leiðin sunn- an jökla opnaðist, en með til- komu hringvegar í kringum land- ið mundi ferðamannastraumur til Austurlands verða mjög veruleg- ur. Líta Egilsstaðabúar, ekki síð- ur en aðrir Austfirðingar, vonar- augum til þeirrar framkvæmdar. Kauptúnið er tiltölulega mjög barnmargt. Má í því efni helzt líkja því við Kópavog og úthverfi Reykjavíkur. Þetta leiðir til þess að sífellt þarf að bæta við skóla- húsnæði, og stendur til að hefja byggingu við skólann næsta sum- ar, ef fjármagn fæst til þess. Nú í vetur eru í skólanum um 140 nemendur á skyldunámsstigi. Ekki hefur enn reynzt kleift að koma upp íþróttahúsnæði eða sundlaug, en unnið er að bygg- ingu íþróttavallar. Mörgum finnst sú stefna forráðamanna íþrótta- sjóðs hæpin að neita að styrkja byggingu ódýrra íþróttamann- virkja, t. d. skemma, þar sem vit- að er að hvorki íþróttasjóður né fámennari hreppsfélög ráða við að byggja dýrar og miklar hallir fyrir slíka starfsemi. Undanfarin tvö ár hefur verið unnið að byggingu kirkju, sem er komin undir þak. Samþykkt hafa verið lög um menntaskóla á Austurlandi og fé verið veitt til hans á fjárlögum. Hins vegar hefur skóla þessum ekki enn ver- ið valinn staður. Aðallega hefur verið rætt um þrjá staði í því sambandi, Egilsstaði, Eiðar og Neskaupstað. Verði Egilsstaðir fyrir valinu, eins og mjög mörg rök mæla með, yrði það mikil lyftistöng fyrir kauptúnið. Árið 1966 var tekið í notkun Héraðsheimilið Valaskjálf. Standa að byggingu þess allir hreppar á Fljótsdalshéraði, og er hlutur Eg- ilsstaðahrepps 50% á móti hin- um. Einnig hafa þessir sömu hreppar haft samstarf um bygg- ingu og rekstur sjúkraskýlis og læknabústaða fyrir Héraðið. Von- ir standa til að hér verði byggð á næstunni læknamiðstöð; bygg- ing elliheimilis, sem mörg sveit- arfélög standa að, er í undirbún- ingi. Fjármunir sveitarsjóðs hafa að miklu leyti farið til þess að koma upp hinum mest aðkallandi þjónustukerfum, svo sem vatns- veitu, skólpveitu, vegum og fram- antöldum byggingum. Ekki hefur reynzt kleift að leggja götur úr varanlegu efni, en það eru mjög fjárfrekar framkvæmdir. Undanfarin ár hafa verið mikil uppgripaár í sögu þjóðarinnar. Mikil atvinna og peningaráð fólks hafa leitt til þess, að það sezt yfirleitt að þar sem mestir mögu- leikar eru til kaupa á þjónustu, skemmtunum og öðru, sem menn sækjast eftir fyrir þá fjármuni sem ekki þarf til venjulegs lífs- framfæris. Nú þegar að þrengir er annað, sem mestu ræður um hvar menn velja sér búsetu, en það eru atvinnumöguleikarnir. Ef vilji er fyrir því hjá stjóm- völdum að hafa áhrif á að dreifa búsetu manna um landið, mun tækifærið einmitt nú, þegar að þrengir með atvinnu. Með því að beina fjármagni til atvinnuupp- byggingar út á landsbyggðina er hægt að snúa þeim straumi við sem legið hefur til höfuðborgar- svæðisins. Staðir eins og Egils- staðakauptún, byggðarkjarni mitt í blómlegu landbúnaðarhéraði og í hiarta Austurlands, mundu hafa þar stóru hlutverki að gegna. Atvinnulíf Egilsstaða mun í framtíðinni byggjast á iðnaði, ýmiss konar þjónustu og sam- göngum. Ef tekst að tryggja þessum þáttum eðlileg vaxtarskil- yrði, er hægt að líta björt- um augum á framtíð kauptúnsins. Magnús Einarsson. 45

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.