Samvinnan - 01.12.1969, Side 55
Evrópa öll og Asíu-hluti Sovétríkjanna,
Ástralía og Nýjasjáland. íbúar þessa heirns
eru tæpar 950 milljónir. Hinn heimurinn
kallast ekki heldur fátæki heimurinn að
ástæðulausu. Hann er að finna í Asíu, Afríku
og Rómönsku Ameríku. íbúar hans eru um
2550 milljónir. Hlutur ríka heimsins í heims-
tekjunum eykst og hlutur fátæka heimsins
minnkar, á sama tíma og íbúum fátæka
heimsins fjölgar að tiltölu meir en íbúum
ríka heimsins. Tekjuaukning rika heimsins
er meiri en sem svarar fólksfjölgun hans.
Ríki heimurinn verður því stöðugt ríkari og
fátæki heimurinn stöðugt fátækari. Ríki
heimurinn er ríkur og verður stöðugt ríkari
m. a. vegna þess að hann arðrænir fátæka
heiminn og hefur gert það öldum saman.
Kröfur fátæka heimsins um réttlátari skipt-
ingu auðæfanna verða æ háværari. Hann
heimtar það sem honum ber. Hann berst
fyrir efnahagslegu sjálfstæði. Takist honum
að ná því verður ríki heimurinn ekki eins
ríkur og áður og stórveldin ekki þau stór-
veldi sem þau eru í dag. Er hægt að búast
við að fátæki heimurinn nái efnahagslegu
sjálfstæði á þann hátt að ríki heimurinn
viðurkenni óréttlætið og afsali sér með fús-
„Lögreglukór Reykjavíkur."
Lögregluaðgerðir i Miinchen.
Uni vilja þeim auðlindum sem hann hefur
lagt eignarhald á í fátæka heiminum? Er
sennilegt að stórveldin, ef við tökum mið
af atferli þeirra í dag, hafi siðferðisþroska
til að skerða eigin auð og völd af tillitssemi
við fátæka heiminn? Er ekki öllu líklegra
að þau beiti valdi sínu til að halda órétt-
lætinu við og jafnvel auka það?
Stuðningur Sovétríkjanna við andspyrnu-
hreyfingar víða um heim er meiri í orði en
verki og oft einkar eigingjarn. Þau hafa
hag af því að valdahlutföllum sé raskað
Bandaríkjunum í óhag. Þau eiga sjálf von
um að ríki sem brjótast til efnahagslegs
sjálfstæðis lendi á áhrifasvæði þeirra. (Tak-
markaður vilji.þeirra til að styðja sjálfstæð-
isbaráttu undirokaðra þjóða sést bezt í Róm-
önsku Ameríku. Þær skæruliðahreyfingar
sem þar hafa barizt við ofurefli hafa ekki
fengið annan stuðning en kaldar kveðjur.
Aftur á móti gera nú Sovétríkin hvern við-
skiptasamninginn á eftir öðrum við herfor-
ingjastjórnirnar í þessum löndum og styrkja
þær með því í sessi.) Sovétríkin hafa meiri
áhuga á að auðgast á fátæka heiminum en
að hjálpa honum til byltingar og sjálfstæðis.
Bandaríkjastjórn fer ekki leynt með þá
Berlin: „Ég grátbœni ykkur, lemjið ekkir — „Snautaðu heim til mömmu þinnar, vœlupoki.“
skoðun sína að allar andspyrnuhreyfingar,
hvar sem er í fátæka heiminum og hverju
nafni sem þær nefnast, séu stofnaðar til að
vinna gegn „frelsi og lýðræði“ og þarmeð
Bandaríkjunum. Þau hafa herlið útum all-
an heim til að gæta hagsmuna bandarískra
auðhringa og styðja við bakið á leppstjórn-
um sínum. Þau hika ekki við að beita vopna-
valdi ef hagsmunir þeirra eru í hættu. Og
enginn kemur auga á væntanlega afstöðu-
breytingu Bandaríkjastjórnar í þessu máli.
Allt bendir til að stórveldin muni samein-
ast í baráttu gegn fátæka heiminum um leið
og hann verður nógu öflugur til að ógna
hagsmunum þeirra. Þegar má sjá merki um
þessa sameiningarviðleitni. Þau munu líta á
sérhverjar þjóðfélagsbreytingar í fátæka
heiminum sem byrjun á uppreisn gegn þeim.
Þeim mun ekki ganga erfiðlega að réttlæta
fyrir sjálfum sér nauðsyn ofbeldis til að
kæfa þessar þjóðfélagsbreytingar í fæðing
unni. Þau munu m. a. vafalítið grípa til
samskonar raka og hvíti minnihlutinn í Suð-
ur-Afríku og Ródesíu: Ef við sleppum tak-
inu á þeim, gleypa þeir okkur.
Stórveldin hafa þegar orðið sér útum
réttari skilning á fátæka heiminum en hann
hefur sjálfur. Þau eru æðri en hann. Við
þetta bætist sú staðreynd að ríki heimurinn
byggist nær einvörðungu af hvítu fólki, en
sá fátæki af fólki með annan hörundslit.
Þarsem kynþáttafordómar eru þegar fyrir
hendi hjá stórveldunum, þá má gera ráð
fyrir að þegar á herðir heyrist raddir um
kynþáttayfirburði. Ríki heimurinn verður
ekki einungis máttugur og ríkur, heldur líka
hvítur, og fátæki heimurinn ekki einungis
máttlítill og fátækur, heldur líka svartur,
brúnn og gulur. Fasisminn verður án efa
ekki minni við þetta.
Einhvern kann að undra að ég geri ráð
fyrir að ríki heimurinn sameinist allur gegn
þeim fátæka. Er ekki von til að Norður-
lönd, svo dæmi sé tekið, finni til sam-
kenndar með fátæka heiminum? Ef við höf-
um í huga hvernig þýzka borgarastéttin,
kannski sú menntaðasta sem þá var uppi,
leitaði skjóls hjá Hitler, þó hagsmunum
hennar væri ekki ógnað neitt í líkingu við
það sem ríki heimurinn á eftir að finna frá
þeim fátæka, þá verður að teljast harla ó-
sennilegt að nokkurt ríkt og hvítt smáríki
hafi siðferðilegt bolmagn til að fara sinu
fram í blóra við nánasta umhverfi sitt. ís-
lendingar munu ekki kaupa vopn og senda
svertingjum í Afríku að gjöf. Þeir munu
ekki heldur gefa Bjaframönnum skreið um
alla framtíð. Þeir munu halla sér að þeim
sem eiga lengstu byssustingina og mesta
efnalega velferð.
5
Til að átta sig á pólitísku ástandi er nauð-
synlegt að kanna merkingu þeirra hugtaka
sem stjórnarvöld og fjölmiðlunartæki nota
yfir þetta sama ástand. Til að losa sig úr
pólitískum blekkingavef getur verið nauð-
synlegt að blása nýrri (eða ný-gamalli)
merkingu í hugtök sem orðin eru velkt og
slitin af misnotkun. Til að gera okkur grein
fyrir hvorumegin byssuhlaupsins við komum
til með að standa, þá er nauðsynlegt að blása
skýrri merkingu í hugtak sem hægt er að
nota yfir það pólitíska ástand er leitt getur
til meira ofbeldis en sagan hefur hingaðtil
getið um. ♦
55