Samvinnan - 01.12.1969, Page 58

Samvinnan - 01.12.1969, Page 58
sepja þar sem jeg hefi kannaö ókunna stigu og framandi lönd, en það er furða hvað jeg hefi verið gisinn, næstum allt þaö fínasta hefur sáldast í gegn um mig og jeg hefi ekk- ert annað en grófu kornin og hismið eptir. Ákaflega er jeg stundum hræddur um að jeg sje ekki skáld, jeg þarf að vinna eitthvað ærlega stórt til þess að hafa rjett til þess að trúa því að jeg sje stór maður. Já þess þarf jeg. Ef jeg aðeins gœti unnið stórar þrautir stigið föstum fœti fram á huldar brautir gœti jeg rakið lífsins þúsund þœtti þvingað gleði og sorg með orðsins mœtti tryði jeg mínum Ijúfu leiðsludraumum. Likt og Ijósið klífur loptið morgunbjarta eða ástin hrífur óspillt meyjarhjarta þannig eflaust ávallt skáldið kveður orð og hugsun Jram i leiðslu treður vœri jeg aðeins einn af þessum fáu. Jæja Þórður minn látum oss ræða um dýraiækningar. Jeg hefi fengið styrkinn og fjekk þegar inngöngu á skólann; til þess að fá hana er nægilegt að hafa 75 stig í fjórða- bekkjar „fögum“ og 4 í dönskum stíl. Mjer líkar vel námið. Það stysta sem gjört er ráð fyrir að menn sjeu að lesa dýralækningar er 4% ár og var það lengur en jeg bjóst við, en það gjörir auðvitað ekkert, fyrsta árið lesum við „Canthusuna", hún er hjer um bil alveg sú sama sem læknar lesa. Til þess að vera aðeins 4% ár verð jeg að taka „Cant- husuna" (þú fyrirgefur jeg man ekki fyrir víst hvernig „Canthusa" er skrifað) á ári, en það er lítið meir en helmingur sem gjörir það, vonast jeg til að verða ekki með þeim linari. Styrkinn er sjálfsagt fyrir þig að sækja um svo framarlega sem aðrir hafa eigi þegar gleypt stykkið, áður en þú ert fær í orustuna, en komist þú á annað borð fram á vígvöllinn þá efast jeg eigi um að þú vinnir kransinn, þótt fleiri vildu hafa. Jeg veit um menn hjer sem eru að hugsa um að sækja um styrkinn, annar er Kristján Thejll en hinn er Siggi svarti Guð, þó er það eigi víst og ekki skalt þú halda því mjög á lopti. Nei nú sný jeg við blaðinu og tek að kveða, það er ekki að tala um annað, þú skalt fá það eins og það kemur þó það jafnvel fari svo að rímið sje i annarri hvorri vísu. Ótal margt sem augun líta hjer efni vœri í margar stórar sögur fannst mjer ósjálfrátt er leit jeg land. Hallir þœr sem blöstu móti mjer mörkin dökka og rafurljósin fögur voru líkt og tálfrítt töfraband. Svo gekk jeg í land og var glaður í hug hjer gat jeg þó sjeð einhver spor eptir dug hver einasti steinn bar þess órœkan vott aö aflmikið þrek hafði raðað þeim niður úr fjarlœgum stað var hver fluttur brott mjer fannst sem jeg skildi hvað þjóðirnar styður. Mjer fannst jeg horfa á handleggsvöðva stinna er hreifðu i lyptivjelum þunga steina mjer fannst jeg skylja aö það eina, eina sem allir þurfa er holl og gagnleg vinna. í lystigarðinum Ijek jeg mjer sem lifsglaður fuglinn í greinum háum jeg sá hversu fagurt í Edinborg er og ósjálfrátt gleimdi jeg sjálfum mjer mjer fannst sem jeg liði mót himninum heim. Hefur þú sjeð á degi sumarbjörtum sólroðna stöðutjörn er augað kœtir hver sá er aldrei o’ní vatnið gœtir aldrei sjer það er hylst á botni svörtum. Líkt fór mjer augað aðeins gylling sá afvanur rökkri þoldi’ eg naumast birtu steinskreyttar hallir alla innsjón girtu allt það sem veggir geimdu hulið lá. En auga mitt vandist við birtuna brátt og birtan varð hismi er hallaði af degi og hálfnöktu börnin á helköldum vegi lijartanu sögöu að lífiö var eigi hreint (hátt) jafnt sem íslenzka heiðloptið blátt. Og þegar jeg sá þetta skinandi skraut þá skildi jeg að margur i glœpum sekur þá skildi’ eg að hatur og hefndargirnd rekur hungraða veslinga á lastanna braut. Uppá haugum rósir rauðar tœrast i rot'ni moldu sprettur sjaldan lilja það er ekki œtíð nóg að vilja eldur bjartur þarf a) lopti að nœrast. Það er Ijett að kœfa kvisti veika kuldabyljir margar fjólur taka hitinn getur lœknað blómrós bleika blíðan hatrið þýtt sem eigló klaka. Eins og kramin blóm til Ijóssins langa langar vinum fyrrta í bliðu hót því er skylda að þerra af votum vanga vinur sjerhvert tár er skín oss mót. Þegar jeg minnist allra aumra og grœtta óðar tendrast bál í sálu minni. Nóg hefi jeg talað, mjer er mál að hœtta mundu’ að skrifa langt í nœsta sinni. Þinn vinur Jóhann Sigurjónsson. Kaupmannahöfn 6. febr. 1900. Old fellow. I am very sorrow for that X did not get a lettre with the last „Steamer“ and I am angry, dit Bæst. Ich will dir nur ein sehr kurz Brief schreiben et tua neglectio causa est. J’ai bon appetit et je suis bien. Fanden gale mig, Satan portere mig, nu snakker jeg norsk osos, tosos, posos. Nú held jeg að þjer líki gárunginn þinn, mannstu eptir því þegar þú skrifaðir mjer frá Sveinstöðum, og jeg vesa- lingur varð að sitja með sveittann skallann yfir rammsnúnum latínuklausum. Um líðan mína getur þú sjeð í frönskunni! Jeg er orð- inn heldur þjettur í þeirri vísindagrein, meira að segja jeg byrjaði að lesa skáldsögur á því skáldamáli, en jeg er ekki búinn með meira 5 og 3/4 blaðsíður enn. Það er mikil guðs- blessun að pappírinn er vel strikaður svo að jeg get skrifað það allt fyrir ofan, sem jeg sleppi úr, án þess að það verði línuskakkt. Hvað viltu fá að frjetta? Nú er jeg auð- vitað moderne andatrúarmaður og nú er jeg búinn að senda sálu þinni skeyti, bráðum kemur víst svar; bíddu nú við, jeg legg aptur augun — þankastrik. Mig þyrstir að heyra eitthvað hjartnœmt frá þjer œ hrœr þú við strengjunum þínum OG SEND ÞÚ NÚ VINUR MINN SÁLUNNI í MJER því sífellt hún hrekst upp við boða og sker einhverja lœkning við óróa sínum. Ekki vantar það skáldlegt er það og skjall er það, en djeskoti skalf i þér röddin þegar þú varst að tala um boða og sker. Mjer er sem jeg sjái hann Kossuth það er að segja þig, nei þetta dugar ekki lengur, nú ert þú orðinn mátulega hýrður af reiði til þess að brenna brjefið áður en þú ert á enda kominn, en það vil jeg einmitt helzt, það er þjer mátulegt letidraugur, auðvitað er jeg engu betri en jeg fjekk skammarbrjef frá svo mörgum með seinasta pósti fyrir leti að það gildir einu þó þú fáir ögn líka, enda verð jeg að hella þeirri súru misu, sem er í minni andans kollu (getur nokkur annar en skáld mælt svo viturlega?) yfir hauskúpuna á einhverjum, því annars verður hún með tímanum að tómri miglu. Orður og titlar o. s. frv. Steingrímur Þorsteinsson (ef þú vilt getur þú breytt Þ í Th) Dannebrogskross eða riddarakross? Þú sjerð að jeg held upp á fá orð og mikið efni, það er nútímans skáldskapur. Jæja Þórður, jeg er annars í alvöru að tala allur að úthverfast, en hvað gjörir það þó að sæ- pylsu sje snúið við, þá verður maginn að húð, húðin að maga og þær lifa jafngóðu lífi eptir sem áður. í þetta sinn færðu ekki meir. Líði þjer vel. Þinn einlægur Jóhann Sigurjónsson. Kaupmannahöfn 13. okt. 1900. Kæri vinur. Beztu þökk fyrir brjefið þitt, jeg fjekk það í gærkvöldi. Það gladdi mig að heyra að þú fjekkst færi á að ferðast um fyrir útlent fjelag, það er að mínu áliti skemmtilegt að ferðast og getur verið mjög gagnlegt, jeg frjetti það snemma í vor að það væri fyrir „Stead" enska ritstjórann. Þú varst heima hjá mjer, það var jeg líka búinn að frjetta í brjefi frá mömmu, hún sagði að sjer hefði fallið vel að tala við þig og var glöð yfir því að við skyldum vera vinir. Þú biður mig að spyrja að því sem jeg helzt vilji vita, það er fleira en eitt og fleira en tvennt. Fyrst og fremst langar mig til þess að vita hvernig þjer líður, jeg meina hvað þú hugsar og hvort þú ert iðinn við það starf, sem þú einu sinni hafðir hugsað þjer að gjöra að lífsstarfi, verða íslenskur skáldsöguritari, ís- lenskt prósaskáld. Hefur þú skrifað mikið og hverskonar efni hefur þú helzt valið þjer? Það eina sem þú segir mjer er að þú búist við að standa í andófi úti á útlenskum höf- um í einhverju bátskrifli, þegar jeg borði kindaskyr og kúarjóma. Um skólann langar mig ekkert sjerlega mikið að frjetta, en vildir þú segja mjer eitthvað af furðusögunni þinni og þeim áhrifum sem mest hafa gripið huga þinn þær stundirnar væri jeg innilega þakk- látur. Það kemur stundum yfir mig ónotaleg sannfæring um það, að þó einhver vildi hrópa heima á fróni, fengi hann aldrei annað en dautt bergmál til baka, og þó að einhver vildi (anda burt hélurósunum) pissa á klaka- klumpana, þá frysu þær jafnharðan aptur. Jæja vinur, þú sjerð að blekiö mitt er dauft, jeg held að það sje vatnsblandað, því gæti jeg að minnsta kosti bezt trúað. Værir þú kominn hingað myndi margt bera á gómana, aldrei hefi jeg verið eins og jeg er nú, mað- urinn breytist svo fljótt að undrum sætir, mjer blöskrar, lífið er naumast samhangandi einu sinni í þessu lífi, hvað skyldi þá verða þegar lengra sækir fram, jeg veit það ekki, jeg held næstum að jeg freistist til þess að segja: Að hver sá sem hrópar himnum mót og hjálpar grátandi biður hann finnur að gráturinn gagnar ei hót því guð ei þann veika styður, og hvernig fer svo á endanum, köld og dauð sveimar jörðin í rúminu sem stór auður leg- staður kvalar og gleði uns hún aptur verður glóandi og síðar meir þunguð lífi, sem aptur deyr og svo koll af kolli, og hvað er svo unn- ið? Taktu lifandi skynjandi veru, taktu bráð- gáfaðan mann og skertu heila hans, stykki eptir stykki getur þú tekið burt og hver gáfan hverfur á fætur annarri, tilfinning, heyrn, mál, sjón et cetera. Skaplyndi hans getur þú breytt eptir vild, gert hann hægan og blíðan eða grimman og uppstökkan, og hvað verður svo af sálinni, er hún leyndur kraptur á bak við allt þetta undra samspil af millionum lifandi smávera eða er hún aðeins einkenni- 58

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.