Samvinnan - 01.12.1969, Síða 66

Samvinnan - 01.12.1969, Síða 66
Árið 1917 er þáttaskilaár í sögu styrj- aldarinnar. Tvo viðburði ber hæst á þessu ári: þátttöku Bandaríkjanna í stríðinu og byltinguna í Rússlandi. Nú fyrst varð þessi Evrópustyrjöld að heimsófriði í orðsins fyllsta skilningi. Pámennur hópur manna taldi umskiptin í Rússlandi upphaf heims- byltingar. Á þessu viðburðaríka ári birtast einnig nýir menn í sviðsljósi styrjaldarinn- ar, búnir úrslitavaldi. Lloyd George er ný- orðinn forsætisráðherra Bretlands, þegar árið 1917 gengur í garð. í ágústmánuði tekur háaldraður stjórnmálamaður, Clem- enceau, við aktaumum Frakklands. Báðir voru þessir menn ráðnir í að berjast, unz unninn væri fullur sigur á Miðveldunum. Báðir voru þeir hlaðnir óbilandi starfsorku, enski forsætisráðherrann gæddur óvenju- arinnar; ári síðar steyptu þeir honum, og kanslarastöðuna hlaut Michaelis, alls óþekkt- ur maður utan prússneska embættiskerfis- ins, en herstjórninni virtist hann vikalipur. Öll styrjaldarárin hafði Bethman Hollweg kanslari aldrei sleppt augum af þeim stríðs- markmiðum, er hann hafði túlkað við upp- haf ófriðarins, en vegna embættis síns, af pólitískum ástæðum bæði af innlendum og erlendum toga, varð hann að orða þessi markmið opinberlega með þeim hætti, að margir sem frekastir voru í kröfum grun- uðu hann um undanlátssemi. Sjálfur hafði hann í æ ríkara mæli orðið að láta undan vilja herstjórnarinnar og braut þar þá reglu, sem Bismarck gamli hafði sett og framfylgt: að leyfa ekki hernum að marka stjórnar- stefnuna. Járnkanslarinn hafði jafnan haft rætast. Saga hálfrar aldar hefur einnig dæmt þá drauma hismið tómt. Því hefur fyrr verið lýst, að þýzka stjórn- in hafði fi'á upphafi styrjaldarinnar stundað mikinn áróður meðal hinna sundurleitu þjóða og þjóðarbrota rússneska keisaradæm- isins og jafnvel ekki hikað við að tendra þar e!da þjóðfélagslegrar byltingar. Þegar þessi bylting brast á í marzmánuði 1917, mátti þegar frá upphafi greina þar pólitískt tvíveldi: borgaralega bráðabirgðastjórn, sem sprottin var úr skauti rússneska þingsins, dúmunnar, og verkamanna- og hermannaráð Pétursborgar. Pétursborgarráðið varð frum- mynd þeirra sovéta, sem risu af grunni um allt hið heilaga Rússland. Lenín, sem stadd- ur var í Sviss þegar byltingin hófst, skildi þegar í stað, að hér var um að ræða tví- Sverrir Kristjánsson: 1N| UM Þegar STRÍÐSMARKMIÐIN í HEIMSÓFRIÐNUM skýjaborgírnar nBBN'ÉÍlPffe' fjHBpL JUKiHSr 1914—18 hrundu ííí®.,'.v: tfgriV, ■ III legu hugmyndaflugi, hinn frakkneski maður búinn ólmum ástríðum foringjanna frá tímum hinnar miklu frönsku byltingar, og sjálfur raunar síðborinn sonur hennar. En í vestri reis hin nýja stjarna Bandaríkjanna hátt á himni, Wilson forseti, og ætlaði sér ekki minni hlut en að frelsa heiminn. Lloyd George segir um hann í endurminningum sínum, að Wilson hafi verið líkastur heið- ingjatrúboða, sem hafi ætlað að fá Evrópu- menn til að hverfa frá villu sinni og brenna sín gömlu og grimmu goð. Og þegar hann bar þá saman, þessa samverkamenn sína í heimsstríði og friðargerð, sýndist honum ekki betur en Clemenceau hafi talið sig vera Napóleon mikla, en Wilson ætlað sig lík- astan Jesú Kristi. Slíkir voru forustumenn Bandamanna, er báru að lokum sigur úr býtum og náðu að vísu sumum þeim mark- miðum, er þeir höfðu sett sér, ýmist leynt eða ljóst, á stríðsárunum. Á Þýzkalandi urðu einnig mannaskipti á hæstu stöðum árið 1917. í júlímánuði er Bethman Hollweg kanslara vikið frá völd- um. Flestir flokkar ríkisþingsins höfðu þá snúið við honum baki, en þó hefði það eitt ekki nægt til að bola honum úr sessi; reglur þingræðisins ríktu ekki í þeirri stjórnlögun, er Bismarck hafði gefið Þýzkalandi. En hitt skipti öllu, að þýzka yfirherstjórnin heimt- aði höfuð þessa stríðskanslara á silfurfati, og keisarinn varð við kröfunni. Þessi yfir- herstjórn Þýzkalands er í þýzkri sagnfræði kölluð Þriðja æðsta herstjórnin — die dritte Oberste Heeresleitung — kennd við tvi- stirnið Hindenburg og Ludendorff. Að vísu var Hindenburg bara goðsagan, Ludendorff raunveruleikinn. Að ætt, uppruna og eðli var Hindenburg tákn hins gamla herskáa og dálítið vitgranna prússneska júnkara- aðals, Ludendorff fulltrúi hinnar þjóðernis- sinnuðu þýzku borgarastéttar á öld imperíal- ismans. Bethman Hollweg hafði lyft báðum þessum mönnum í æðsta valdasess herstjórn- herinn að tæki til að framkvæma stjórnar- stefnu sína, en hann hafði bannað honum sjálfvirkar pólitískar athafnir. Raunar var það æði torvelt að fylgja þessari reglu í þýzka keisararíkinu svo sem það var að þjóðfélagslegri og pólitískri skipan, og Bis- marck háði marga harða glímu við herinn í þessum efnum. En árið 1917 var svo kom- ið, að þýzki herinn og herstjórn hans höfðu náð alræðisvaldi í ríkinu: keisarinn áhrifa- laust og aðgerðalaust núll og ríkisþingið valdalaus umræðuklúbbur, sem kvaddur var til funda þegar greiða þurfti atkvæði með nýjum stríðslánum. Herstjórnin hafði barið fram þá ákvörðun að hefja ótakmarkaðan kafbátahernað í byrjun febrúar 1917 á sömu stundu og Wilson leitaðist við að bera klæði á vopn stríðsaðila. Þýzka flotastjórn- in lofaði því, að Bretland yrði bugað innan fárra vikna, ef skotin yrði í kaf hver ein- asta kæna sem flaut á sjó. Bethman Holl- weg hafði lengi verið tregur til að sam- þykkja ótakmarkaðan kafbátahernað; hann hafði þann grun, sem nálgaðist fulla vissu, að Bandaríkin færu þá samstundis í stríðið. Grunur hans reyndist réttur. Það ber vitni furðulegri pólitískri nesja- mennsku, að Þýzkaland, sem stefndi í átt til heimsveldis, botnaði hvorki upp né niður í þeirri staðreynd, sem heitir Bandaríkin. Það er engu líkara en þýzkir valdamenn í her og ríkisstjórn hafi ekki gert sér neina grein fyrir ævintýralegri framleiðsluorku Vesturheims né þeim hernaðarmætti, sem þar var falinn. Þeir vanmátu með öllu stríðsmátt Bandaríkjanna og skildu ekki, að með þátttöku þeirra í styrjöldinni höfðu orðið hin miklu vatnaskil. En öðru máli gegndi um annan hófuð- viðburð ársins 1917: rússnesku byltinguna. Þar eygðu valdhafar Þýzkalands hið gullna tækifæri til að snúa allri rás heimsstyrj- aldarinnar og sjá djörfustu drauma sína skipt ríkisvald, annars vegar bráðabirgða- stjórnina, sem setzt hafði í gamalt bú, hins vegar vísi að nýju ríkisvaldi verkamanna og bænda. Hann leit ekki á marzbyltinguna sem orðinn hlut, er ekki tæki breytingum. Hann leit á hana sem ferli í flaumi sög- unnar og baráttan ein mundi skera úr um það, hvort ráðin, sovétin, þessi vísir að al- þýðlegu ríkisvaldi, yrði allsráðandi og fleytti byltingunni áfram að sósíalískum markmiðum og yrði upphafsþáttur þeirrar heimsbyltingar, er hann taldi vísa og hið eina rétta andsvar við heimsstyrjöld imper- íalismans. Valdataka bolsévikaflokksins i nóvember 1917 var fyrsti áfanginn í fram- kvæmd þessara pólitisku hugmynda Leníns. Viðbrögð Þýzkalands við rússnesku bylt- ingunni voru öll mörkuð vonum valdhaf- anna um sérfrið í austri og ráðagerðum um hve langt mætti seilast til yfirráða og þýzkrar drottnunar í Austur-Evrópu. Það var frá upphafi ljóst, að hin borgaralega bráðabirgðastjórn Rússlands var ófáanleg til að bregðast Bandamönnum og semja sér- frið við Þjóðverja. Hins vegar kvað við annan tón í ávarpi Pétursborgarráðsins 27. marz, sem stílað var hvorki meira né minna en til „alls heimsins". Þar var hvatt til frið- ar „án landvinninga og skaðabóta“ á grund- velli sjálfsákvörðunarréttar þjóðanna. Það varð því brátt rík tilhneiging hjá þýzku stjórninni að styðja hin róttækustu öfl rúss- nesku byltingarinnar til að ná völdum, þá menn sem gengu fremst í kröfum um frið þegar í stað. Undir kjörorðinu „brauð og friður“ sópuðu bolsévikar að sér fylgi fólks- ins, og daginn eftir sigur byltingarinnar í Pétursborg, hinn 8. nóvember, birti hin nýja stjórn friðarályktun, sem Lenín hafði sam- ið og beint var til allra stríðandi þjóða og ríkisstjórna þeirra. í ályktuninni var þess krafizt, að gerður yrði „réttlátur, lýðræðis- legur friður án landainnlimunar eða skaða- bóta, friður sem grundvallast á sjálfs- 66
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.