Samvinnan - 01.12.1969, Page 70
HEIMILIS^
§
Bryndís
Steinþórsdóttir C1
>3
'S.snmmH
HANDAVINNA YNQSTU LESENDANNA
JÓLATEPPI
EFNI: 35x55 sm af hessianstriga
eSa bastdregli.
Grœnt, rautt, svart og bleikt filtefni
eða annað þétt meðalþykkt efni.
Jólaklukka og snúra í sama lit og
klukkan.
Gœruskinnsafgangur eða aðrir
skinnafgangar. (í stað þeirra
er hœgt að nota bómull).
Faldið teppishliðarnar með mjóum
faldi. Faldið efri brún teppisins með
2x3 sm faldi og þræðið bambusstöng
þar í. Búið til hanka eða skrúfið
lykkjur í stöngina.
Rekið kögur á neðri brún teppisins.
Búið til snið af jólasveininum og
sníðið síðan stígvélin svört, vett-
lingana græna, kápuna og húfuna
rauða, andlitið bleikt, augu og eyru
svört en nef og munn rauðan. Límið
síðan eða saumið stígvélin fyrst,
næst kápuna, andlitið og húfuna.
(Ath. að inn undir húfuna kemur
hárið). Límið að síðustu eyru, augu,
nef og munn, einnig skegg og vett-
linga.
Búið til gat á teppið með grófum bandprjóni og dragið snúruna þar
í gegn, eins og jólasveinninn haldi um hana. Festið síðan snúruna á
bjölluna í vinstra horn teppisins. Hnýtið hnút á hinn endann, sem
kippt er í þegar hringja á bjöllunni.
TASKA
Þessi litla taska er fljótunnin jóla-
gjöf, sem kemur sér vel að hafa
með t. d. í jólaboð eða á jóladans-
leikinn.
EFNI: 18x42 sm af efni, fóðri og
millifóðri eða öðru stífu efni.
Lítill spegill. fsaumsgarn og hnapp-
ar í lit við efnið.
Sníðið töskuna úr efni sem á vel
við kjólinn eða úr sama efni og
kjóllinn er.
Mælið fyrst 14 sm, sem er framhlið
töskunnar, næst 14 sm bakhlið og 12 sm lok. Finnið miðjuna á lokinu
og strikið hring, sem er minni en spegillinn. (Ath að það skiptir ekki
máli hvort spegillinn er kantaður eða hringlagaður).
Saumið eftir strikinu tunguspor eða hnappagataspor og látið hnútana
vísa inn að miðju. Saumið síðan önnur skrautspor, t. d. lykkjuspor,
leggsaum (kontorsting) og fræhnúta eða festið perlur í kringum speg-
ilinn. Klippið því næst innan úr hringnum þar sem spegillinn á að
koma. Þræðið millifóðrið á röngu efnisins og klippið hring úr því á
sama hátt og á efninu sjálfu, en 2x3 mm stærri. Festið fóðrið síðan
við útsauminn á röngunni. Búið því næst til slíður eða vasa fyrir
spegilinn sem er festur á röngu fóðursins. Leggið því næst réttuna á
fóðrinu á móti efnisréttunni og saumið með eins sm saumfari hliðarnar
og fyrir endann á töskulokinu. Strauið saumförin út og klippið milli-
fóðrið við sauminn. Snúið töskunni við og gangið frá opna endanum
i höndum. Þræðið brúnirnar og stingið kantana með eins sm stungu
ef vill. Saumið að síðustu hneppslur og festið hnappa á töskuna.
JÓLAÓRÓI ÚR KÖNGLUM
Búið til hring úr stálþræði eða
tágum, þvermál er hæfilegt um 24
sm. Veljið stærstu könglana og
festið þá með blómavír á hringinn,
þannig að vírnum er brugðið á
milli neðstu blaðanna og snúið upp
á hann áður en fest er við hring-
inn. Ef könglarnir eru of fáir er
fallegt að festa litlar grenigreinar
á milli þeirra. Festið síðan jafnlöng
rauð silkibönd á hringinn, bindið
þau saman og festið með einu bandi
upp í loft eða glugga. Hnýtið sfðan
mislöng bönd neðan í hringinn og
festið köngla eða litla könglakransa
með perlum á milli, í böndin.
KJÖTVEFJUR
með mismunandi fyllingum
1 kg nauta-, lamba-, hrossa- eða
hvalkjöt.
100 g reykt flesk.
3—4 msk smjörl. eða steikingarolía.
Salt, pipar, (hvitlauksduft) .
% l vatn eða kjötsoð.
SÓSAN: 3 msk hveití, dl vatn.
Beztur er alikálfa- eða nautavöðvi
í þennan rétt.
Skerið kjötið í fingurþykkar, jafnstórar sneiðar, þversum á kjötþræð-
ina og berjið. Blandið kryddinu saman og stráið yfir sneiðarnar. Skerið
fleskið í ræmur og leggið eina ræmu á hverja kjötsneið. (Til að drýgja
réttinn er gott að hafa kjötfars í fyllinguna og er þá um ein tsk látin
á hverja kjötsneið). Vefjið sneiðarnar síðan þétt saman og festið með
kjötprjónum eða seglgarni.
Steikið kjötrúllurnar og sjóðið i 2—3 stundarfjórðunga eftir kjöt-
tegund. Síið soðið og jafnið með hveitijafningi. Kryddið og bætið
sósulit í ef vill. Berið kjötvefjurnar fram með soðnum eða frönskum
kartöflum, rauðkáli og soðnu grænmeti eða hráu grænmetissalati.
70