Samvinnan - 01.12.1970, Side 15
Eyhildarholti, 16. nóv. 1970.
Herra ritstjóri.
Þú kvartar um pennaleti les-
enda. Sjálfsagt er ástæða til.
Og lítt mun ég úr bæta, þótt ég
taki mig til og skrifi nokkrar
línur — og þá helzt í aðfinnslu-
skyni.
Ég gæti raunar sitthvað gott
um Samvinnuna sagt og þakk-
að fyrir margt, enda þótt
stundum fljóti með fáránlegar
greinar, eins og t. a. m. Pólitísk
orð Vesteins Lúðvíkssonar í síð-
asta (.5.) hefti. í heild er sú
grein endileysa ein, þótt sumt
— og þó fátt — sé þar réttilega
og skynsamlega mælt.
En sleppum því.
Vel fer á því að taka fyrir
mikilsverð málefni, sem hátt
ber hverju sinni, og fá þar til
umræðu góða menn. Að vísu
getur verið dálítið þreytandi að
lesa margar greinar um sama
efni, hverja á fætur annarri, ef
ekki er alls staðar sæmilega á
haldið. Og þessar ritsmíðar eru
að vonum næsta misjafnar,
sumar ágætar, aðrar lítils virði
eða einskis — og ekki um að
sakast. En hitt verð ég að
átelja, að við val þeirra manna,
sem til þess eru kvaddir hverju
sinni að gera nokkur skil því
málefni, sem fyrir er tekið, er
Hangikjöt er
hátíðamatur
Fjölskyldan
byrjar dnœgð hdtíðina
með hangikjöti frd okkur
RAUÐARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022
...þauviljaleikföngin
f rá Reykjalundi
REYKJALUNDUR, sími um Brúarland. Skrifstofa í
Reykjavík: Bræðraborgarstíg 9, síml 22150
15