Samvinnan - 01.12.1970, Side 59

Samvinnan - 01.12.1970, Side 59
stiga, en Maó æsir til menningarbylting- ar til þess að rífa hann niður. Það sem einkennir Teg. II (iðnaðarþjóðfélag nú- timans) er samkeþþni og efnishyggja, og mikil streita fylgir klifri einstaklingsins upp valda- og metorðastigann. Nýleg rannsókn sýnir, að þvi iðnþróaðri sem þjóð er, þeim mun meiri svartsýni og vantrú á breytingar rikir meðal íbúanna. Þessi rannsókn náði til 8 Evrópurikja og 2 Asíuríkja, Japans og Indlands. Það er augljóst, að engin þjóðfélög eru fullkomin. Það sem hægt er að gera er að læra af reynslu mismunandi landa og smærri hópa innan einstakra landa og gera myndir af því, hvernig gerð mann- legs samfélags getur orðið betri. Það liggja margar leiðir til Teg. IV-samfélags, og Galtung er ekki svo þröngsýnn að halda fram sínum hugmyndum sem „pat- entlausn“, heldur er hann að sýna fram á raunhæfar afleiðingar grundvallar- atriða, s. s. jafnréttis og réttlætis, fyrir uppbyggingu og starfsemi mannlegs samfélags. Þessi umbreyting hugsjóna- legra atriða yfir i lýsingu á mannlegum samskiptum í samræmi við hugsjónir er mjög hrífandi framlag Galtungs, og með talsverðum rétti gagnrýnir hann vinstri- sinna fyrir að hafa ekki gert nóg af þvi að lýsa, hvað gerist að lokinni bylting- unni. f grein sinni „Pluralism and the Future Human Soeiety“ gefur Galtung mörg dæmi um, hvernig mannfélög mundu geta starfað í framtíðinni, og í fyrirlestri sínum á þinginu bætti hann miklu við. Það verður verðugt verkefni að skýra nánar frá hugmyndum Galt- ungs síðar.* Annar frægur, en allt öðruvísi þenkj- andi maður setti svip sinn á þingið. Það var Olaf Helmer, dæmigerður bandarisk- ur línuhugsandi súperskrifstofumaður, sem kynnti á þinginu aðferð sína við að fá sérfræðinga til að spá fyrir á kerfis- bundinn hátt um framvindu mála innan síns sérsviðs. Kallar hann aðferðina „Delfi“ og er að leggja drög að því að tengja sérfræðingana saman í tölvu- net, þannig að þeir geti skrifað svör sín beint á telex-tölvu-borð í skrifstofu sinni, í stað þess að fylla út spurningalista sem sendir eru i hægfara flugpósti. Helmer er fyrrverandi samstarfsmaður neyzluþj óðf élagstæknirisans Hermans Kahns, sem frægur er fyrir bók sina, Árið 2000, en sú bók byggist mjög á tækniþróunarspádómum með Delfí-að- ferðinni. Kahn hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að vera fulltrúi þröng- sýns hugsunarháttar tæknivæddrar yfir- stéttar, og kom fram á þinginu að við stofnun hans, The Hudson Institute, er nú unnið að áætlun um „Heiminn árið 2000“, sem m. a. felst í kerfisbundinni leit að svæðum hentugum fyrir orkuver og verksmiðjur. Hvort slíkt er kallað iðnþró- unaráætlun eða skipulagt arðrán, fer líklega eftir því, hvort sá sem talar er gerandi eða þolandi í slíkum viðskiptum. * Grein Johans Galtungs, „Pluralism and the Future Human Society“, er að finna í FUTUR- IBLERNE nr. 2, 1969—70, útg. Akademiet for Fremtidsforskning, Aarhus. FramtíSarrannsóknir og stjórnmál Sérhverri mynd af mögulegri framtíð fylgir sá eiginleiki, að líkur eru á að hún hafi áhrif og verði að raunveruleika. Vísindalega unnar samtengj andi f ramtiðarmyndir eiga að geta endurspeglað það bezta, sem hægt er að skapa hverju sinni, sem hægt er að gera að veru- leika. Þær eru raunsæjar hugsjónir, og þær eiga að vera í samræmi við óskir og þarfir fólks af öllum svið- um þjóðlifsins. Það liggur í augum uppi, að slíkar framtiðarmyndir hafa mikið stjórnmálalegt aðdrátt- arafl, og starfið við að vinna að gerð þeirra er því ekki aðeins vís- indalegt, heldur um leið stjórn- málalegt í eðli sínu. Þeim, sem vinna að gerð framtíðarmynda, er þetta auðvitað ljóst, og eru þeir sennilega oft í sama báti og hinir „vitsmunalegu verkamenn", sem Þröstur Ólafsson nefndi í grein sinni í siðasta hefti þessa rits. Vís- indi hljóta auðvitað að fara að láta beint til sín taka á vettvangi stjórnmálanna, eins og á öðrum sviðum mannlífsins, og samtengj- andi framtíðarrannsóknir eru vísir að því að verða vísindaleg stjórn- mál. Á þinginu benti Robert Jungk á, að stjórnmálamenn eru svo önn- um kafnir við eltingaleik starfs síns, að þeir hafa engan tíma til að hugsa. Framtíðarrannsakendur gætu hér veitt hugmynda- og ímyndunarhjálp. Rómverjinn Val- erio Selan lagði einnig að mönnum að koma aðferðum og hugsunar- hætti framtíðarrannsókna á fram- færi við félagslega og pólitíska áhrifahópa. Johan Galtung horfði lengra fram í tímann og benti á, að stjórnmálamenn yrðu úreltir sem sérstök stétt, því þeir einokuðu starfsemi, sem fólk getur vel séð um sjálft. Augljóslega verður vax- andi víxlverkun milli framtíðar- rannsókna og stjórnmálastarfs. Einna lengst munu þau mál vera komin í Frakklandi, en þar vinna nú framtíðarfræðingar hjá frönsku ríkisstjórninni. Eins og framtíðar- rannsóknir eru hærra þróað af- brigði af stjórnmálalegri stefnu- mótun, þá er líkrar þróunar að vænta á framkvæmdahlið stjórn- málanna. Einn möguleiki er hug- mynd Roberts Jungks um fram- tíðarskapandi starfshópa, og má búast við, að ýmis slík ný fram- kvæmdatæki verði til, eftir því sem framtíðarfræðin vaxa úr grasi. Lesendum skal bent á mjög gott safn greina eftir framtíðarrann- sakendur, Mankind 2000, sem tekið hafa saman Johan Galtung og Robert Jungk, útg. Universitetsfor- laget, Oslo 1969. Heildarhyggja Einstaklingshyggj a Valdamismunur I. íhaldsþjóðfélag II. Frjálslynt þjóðfélag J af nrétti III. Byltingarþjóðfélag IV. Þjóðfélag eftir byltingu 59

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.