Samvinnan - 01.12.1970, Page 24

Samvinnan - 01.12.1970, Page 24
Sveinn Björnsson: Sögulegt ágrip íslenzkrar iðnþróunnar INNGANGUR Markaður. Vinnuafl. Mennt- un. Fjármagn. Orka. Hráefni. Samgöngur. Veðrátta. Stefna valdhafa. Þetta eru nokkur lykilatriði, sem efnahagsþróun byggist á, bæði i tíma og rúmi. Hvort, hvenær og hvernig þjóðfélag er til þess fallið að iðnvæðast, byggist á innbyrðis afstöðum þessara þátta. í eðli sinu eru þeir breytilegir frá einu landi til annars og frá einum tíma til annars. Fyrr á öldum, þegar sam- göngur leyfðu ekki verulega verkaskiptingu milli landa eða landsvæða, varð hvert byggð- arlag að búa meira og minna að sínu, og afkoma ibúanna var meira og minna háð glím- unni við náttúruöflin. Þá sögu þekkja íslendingar e. t. v. þjóða bezt. Á þessari öld hafa áður- nefndar afstöður tekið algjör- um stakkaskiptum víða um lönd, og er ísland þar engin undantekning. Miðað við legu landsins, veðráttu og landsgæði var ekki annars að vænta, að óbreyttum atvinnuháttum, en að þjóðin mundi um ófyrir- sjáanlega framtið verða að sætta sig við kröpp lífskjör á hrjóstrugu, einangruðu eylandi. Svo mjög hefur þetta breytzt, að ekki einasta á þjóðin í dag að búa við lifskjör sambæri- leg því sem bezt gerist annars staðar, heldur lita íslendingar á sitt eigið land sem land hinna ótæmandi tækifæra. Á sama tima og alþjóðleg tækniþróun hefur leitt til bættra lífsskilyrða fyrir hundr- uð milljóna fólks í mörgum löndum, hefur þessi sama tækniþróun endurmótað is- lenzkt þjóðfélag og atvinnu- hætti þess, rétt eins og þjóðin byggi nú i nýju landi. Og allt þetta hefur skeð á einum mannsaldri eða svo. SÖGULEGT ÁGRIP í töflunni hér á eftir sést, hvernig skipting íbúanna á at- vinnuvegi eftir framfærslu hefur breytzt á íslandi á árun- um 1860—1960. fót verksmiðjuiðnaði. Þannig var t. d. eftir miðja átjándu öld stofnað til ullarverksmiðju, sútunar og kaðlagerðar. En þessi viðleitni rann út í sand- inn innan tveggja áratuga, fyrst og fremst vegna þess að landsmenn urðu að lúta boði og banni erlendra hagsmuna- aðila á sviði verzlunar. Á fyrri hluta nitjándu aldar mótast fyrsti vísirinn að var- anlegri verkaskiptingu í þjóð- félaginu, með því að þá varð til lítil stétt handiðnaðarmanna. Komu þeir sér upp verkstæð- um á sviði trésmiða, málm- smíða, skinnaiðnaðar, skógerð- ar, brauðgerðar og fleiri greina, og á siðari hluta aldarinnar kemur svo til skjalanna úr- smiði, húsamálning, ljós- myndagerð, og enn aðrar þeg- ar kemur fram á þessa öld. Þegar á árinu 1867 er stofnað og atvinnuháttum. Þjóðin fær heimastjórn 1904; fyrsta raf- stöð til almenningsafnota tek- ur til starfa 1904; byrjað er að setja hreyfla í fiskibáta skömmu eftir aldamót; og ís- lendingar eignast fyrsta togar- ann 1905. Talsímastrengur er lagður til meginlandsins 1906, og svo mætti áfram telja. Um aldamótin eignast íslendingar fyrstu verkfræðinga sína, sem flytja heim með sér frá námi erlendis þekkingu og nýjungar, sem örva landsmenn til að til- einka sér tækniþekkingu í end- ursköpun atvinnulifsins. Þrátt fyrir þetta er ekki um að ræða neinar stökkbreyting- ar í tæknilegum efnum, enda er vélvæðing lengi vel framan af þessari öld að mestu tak- mörkuð við aflvélar fiskiskipa. Árið 1921 er tekin í notkun fyrsta rafstöðin í Reykjavík. Skipting ibúa eftir atvinnuframfærslu á íslandi 1860—1960 (í hundraðshlutum) Frumframleiðsla 1860 1880 1890 1910 1920 1930 1940 1950 1960 Landbúnaður 79,5 73,9 65,5 51,0 42,9 35,8 30,6 19,9 14,0 Fiskveiðar 9,4 12,4 18,1 18,7 18,9 16,7 15,9 10,8 8,7 Iðnaður 1,1 2,2 2,9 8,3 11,3 18,9 21,3 32,5 36,2 Þjónustustarfsemi 5,5 5,8 7,1 18,3 22,6 24,7 27,0 29,5 32,8 Lífeyrisþegar 4,5 5,7 6,4 3,7 4,3 3,9 5,2 7,3 8,3 Rétt er að hafa í huga, að tölfræðilega getur þessi skipt- ing ekki talizt örugg. Engu að siður varpar hún ljósi á þær stórkostlegu breytingar, sem eiga sér stað í íslenzku þjóð- félagi á þessum hundrað árum. Forsaga þess iðnaðar, sem er að finna í landinu í dag, er til- tölulega stutt. Að vísu hefur margs konar heimilisiðnaður þróazt í landinu frá fyrstu tíð, þar sem landsmenn þurftu að vera sjálfum sér nógir meira og minna um framleiðslu fatn- aðar, matvæla, verkfæra, hús- búnaðar o. s. frv. öldum saman. Á átjándu og nítjándu öld áttu sér stað nokkrar tilraunir tii þess að auka fjölbreytni í at- vinnulifinu með því að koma á iðnaðarmannafélag í Reykja- vík, og fyrsti formlegi iðnskól- inn er stofnaður í Reykjavik árið 1904. Eins og vænta mátti, beind- ist fyrsta viðleitni til iðnaðar- framleiðslu einkum að því að vinna afurðir hinna hefð- bundnu atvinnugreina, fyrst og fremst landbúnaðar, en einnig sj ávarútvegs. Þannig hófst vélræn vinnsla í ullar- og mjólkuriðnaði þegar um eða fyrir aldamótin siðustu, en á sviði fiskiðnaðar rúmum tíu árum seinna með framleiðslu fiskmjöls og lýsis. Þegar kemur fram á tuttug- ustu öldina rekur hver atburð- urinn annan, sem leggur grundvöll að nýjum þjóðfélags- Voru þá þegar komnar raf- stöðvar í tólf kaupstöðum og kauptúnum víðs vegar um landið, og 1934, þrjátíu árum eftir byggingu fyrstu rafstöðv- arinnar (í Hafnarfirði), voru slíkar rafveitur orðnar 38 að tölu með 5000 kW afl samtals. Þótt í smáum stil væri, örvaði þetta mjög notkun aflknúinna véla og verkfæra. Á áratugnum 1920—1930 hafði skeð sú breyting, að meirihluti þjóðarinnar átti orðið heima í bæjum og þorp- um (með yfir 300 ibúum), og leiddi þessi breyting fljótlega af sér stóraukna verkaskipt- ingu í þjóðfélaginu og skilyrði til betri nýtingar vinnuafls og tækniframfara, enda eykst 24

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.