Samvinnan - 01.04.1983, Page 22
Ritgerðasamkeppni Sambandsins
lensku þjóðina úr fjötrum skulda og
efnahagslegrar ánauðar.
Þau félög sem hér hafa verið nefnd,
hafa, ásamt ntörgum hliðstæðum víða
um landið, orðið mönnum hvatning til
að vinna saman að umbótum, auka
þekkingu og bæta efnahag sem síðan er
grunnurinn að raunverulegri og öflugri
sjálfstæðisbaráttu.
• Af hverju samvinna?
Fyrsta kaupfélagið sent stófnað var
og þau sem á eftir komu höföu stærri
markmið en að annast sauðasölu og
innflutning á nauðsynjunt. Peir menn
sem stóðu að stofnun kaupfélaganna og
Sambandsins gerðu sér grein fyrir að
stöðva þyrl'ti landflótta og koma efna-
hag landsins á réttan kjöl eftir margra
alda harðrétti. Þeir töldu að samvinnu-
stefnan væri líklegust til að stuðla að
framförum og koma á efnahagslegum
jöfnuði í landinu.
Pétur Jónsson á Gautlöndum var
einn af forystumönnum fyrsta kaupfél-
agsins, stjórnarformaður K. P. frá
1889-1919 og fyrsti formaður Sam-
bandsins. Arið 1893 ritaði hann grein í
Búnaðarritið sem hét „Kaupskapur og
kaupfélagsskapur“. Par segir: „Eitt hið
versta gönuhlaup þjóðanna er misskipt-
ing auðsins, ekkert hefur meiru illu til
leiðar komið en hún. Það er ekki ein-
ungis allir þeir annmarkar og lestir,
sem skorturinn kemur til leiðar beinlín-
is, heldur og búksorg, eyðsla og ólifn-
aður, sem fylgir of miklum auðæfum;
ekki einungis þrældómur og undirokun
með öllu þeirra föruneyti, sem auðs-
valdið hreppir fjöldann í, heldur iðju-
leysi og drottnunargirni þeirra, sem
auðsvaldið hafa með höndunt. Ef til vill
er ekki allur skortur sprottinn af ntis-
skiptingu auðsins og náttúrugæðanna
og vafalaust verður náttúrugæðunum
aldrei miðlað jafnt til allra. Allsnægtir
verða að líkindum aldrei til nema í
hugmyndinni, en sú hugmynd er líka
svo mikils virði, að hún ætti að vera
leiðarstjarna þjóðanna til sannra fram-
fara og farsældar".
Þannig fórust orð einum helsta
frumkvöðli að stofnun Sambandsins,
manni sem varði starfsævi sinni í þágu
almennings með forystu sinni og þrot-
lausu starfi að samvinnumálum.
Að koma á efnalegum jöfnuði meðal
landsmanna, hverra sem er og hvar
sem er, var og verður vonandi eitt af
meginmarkmiöum samvinnuhreyfingar-
innar.
• Nútíminn
Samvinnuhreyfingin telur u. þ. b.
43.000 félaga. Styrkur hreyfingarinnar
hlýtur að vera sá fjöldi sent innan
hennar er. Þau santvinnufélög sem eru
innan Sanibandsins, kaupfélögin, eru í
byrjun hagsmunasamtök félagsmanna
þar sem allir geta orðið félagar. En eru
kaupfélögin enn hagsmunasamtök? 1
stefnuskrá samvinnuhreyfingarinnar
segir m. a.: „Verkefni samvinnufélag-
anna er að bæta efnahag og lífskjör fé-
lagsmanna sinna og efla almannaheill.
Samvinnuhreyfingin á því samleið með
samtökum launafólks og vill jafnan
hafa gott samstarf við þau og önnur fé-
lagasamtök, sem vinna að sömu mark-
miðum“.
Samvinnuhreyfingin er þó atvinnu-
rekandi, rekur verslun, útgerð, fisk-
vinnslu, sláturhús og kjötiðnað, mjólk-
urbú og svo mætti lengi telja. Rekstur
samvinnufélaganna er geysilega fjöl-
þættur. Ymsar greinar rekstursins
þarfnast mikilla fjárfestinga, stöðugrar
endurnýjunar tækjabúnaðar og birgða.
Öllum ber saman um að fjármagns-
kostnaður sé aðal höfuðverkur starf-
seminnar. Þá reka kaupfélögin oft viða-
mikla þjónustu við almenning sem oft
á tíðum er langt frá að vera arðbær.
Einnig vill skuldasöfnun félagsmanna
oft verða nokkuð þungur baggi.
• Andstæð sjónarmið
Gagnrýni á samvinnuhreyfinguna,
félagsform hennar, störf og fram-
kvæmdir hefur frá upphafi verið tölu-
verð. Gagnrýni er nauðsynleg en á síð-
ari árum hefur hún verið óhemju nei-
kvæð, þar kennir ýmissa grasa og er
margt tínt til henni til foráttu.
Þannig er því haldið fram að sam-
vinnuhreyfingin sé ólýðræðisleg, hún
byggi á forstjóraveldi, hún stundi ein-
okunarviðskipti og sé auðhringur. Þá er
því gjarna haldið fram að hún taki
einhliða stjórnmálalega afstöðu og
henni er talið til lasts að hún njóti for-
réttinda í sköttun.
Því verður vart á móti mælt, að fé-
lagsform samvinnufélaga er eitt hið
lýðræðislegasta sem þekkt er. Þar geta
allir orðið félagsmenn og allir félags-
menn hafa jafnan rétt innan félagsins
og þá er átt við öll þau atriði er snerta
áhrif á störf félagsins og stjórnun, áhrif
á framkvæmdir og fjárfestingar, kjör
stjórnar, fulltrúa og endurskoðenda.
Öll helstu mál félagsmanna eru borin
undir fundi þar sem fulltrúar hafa allir
jafnan tillögu- og atkvæðisrétt. Hvernig
er atkvæðisréttur í hlutafélogum? Jú,
þar ræður magn hlutabréfa atkvæðis-
rétti. Urn þesskonar félagsform sagði
Jónas Jónsson eitt sinn: „Hlutafélög
verða gulltáknið, sem mænt verður á,
félagsform efnahagslegrar stiga-
mennsku".
Að samvinnuhreyfingin sé auðhring-
ur og að hún stundi einokun er fjarri
lagi og raunar út í hött. Auðhringir eru
nefnd þau fyrirtæki og félagasamsteyp-
ur sem stunda auðssöfnun, keppa að
því markntiði að raka saman gróða. Að
vísu skila vel rekin kaupfélög iðulega
tekjuafgangi en það á víðar við og get-
ur varla kallast löstur.
Það er hætt við að lítið yrði um upp-
byggingu og endurnýjun fyrirtækja ef
þau skiluðu aldrei hagnaði. Að sjálf-
sögðu þurfa samvinnufyrirtæki, eins og
önnur, að binda fé í endurnýjun og
ýmsu viðkomandi rekstrinum en verði
rekstrarafgangur umfram fjárþörf er
hann greiddur til félagsmanna.
Einokun er ekki stunduð af sam-
vinnuhreyfingunni frekar en öðrum fyr-
irtækjum hér á landi. Ríkið er eini að-
ilinn sem hefur einkasölu og einkarétt-
araðstöðu í landinu.
Það sem andstæðingar kalla forrétt-
indi í skattamálum er fásinna. Skatt-
skyldur rekstrarafgangur er lagður í
stofnsjóði félagsmanna. Þeir greiða
væntanlega skatta af sínunt tekjum,
þessum jafnt og öðrum. Það væri lítill
akkur í að hafa hér skattakerfi sem
legði sama skattinn tvisvar á sömu
krónuna.
Andstæðingar samvinnustefnunnar
halda því fram að hreyfingin sé rekin á
grundvelli ákveðinnar stjórnmála-
stefnu.
Innan samvinnuhreyfingarinnar er og
starfar fólk alls staðar úr þjóðfélaginu,
22