Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 31

Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 31
Áhrifamikil auglýsing Auglýsing Samvinnutrygginga og klúbbanna Oruggur akstur, sem sýnd hefur \erið í sjón- varpinu að undanförnu, hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli. Þar er á örskammri stundu og á eftirminnilegan hátt brugðið upp staðreyndum varðandi ógætilegan akstur og þá hryggilegu staðreynd, að 7 - 800 manns slösuðust á síð- asta ári, sumir til lífstíðar. Þetta er auglýsing í sérflokki og aðstandendum til mikils sóma. Hvar eru sœnsku konurnar? Það er víðar en hér á landi, sem saknað er frekari þátttöku kvenna í sam- vinnustarfinu. Á síðasta aðalfundi KF, sænska samvinnusambandsins, voru 54 konur af 205 fulltrúum - og þótti lítið. Þess má geta, að á aðaifundi Sam- bandsins 1983 var hlutfall kvenna næstum hið sama og hjá starfsbræðrum okkar í Svíþjóð eða 25 konur af 108 fulltrúum. ForstöÖumadur MarkaÖsráðs samvinnufélaganna Markaðsráð samvinnufélaganna gegnir mikilvægu hlutverki innan smásöluverslunar samvinnuhreyfingar- innar. Hefur oft á undanförnum árum verið rætt um nauðsyn þess að efla starfsemi ráðsins og jafnframt að fela ákveðnum starfsmanni að fylgja eftir málefnum þess. Nú hafa mál skipast þannig, m.a. í framhaldi af ályktun um þetta efni frá kaupfélagsstjóra- fundi í nóv. s.l., að Sambandið hefur ráðið mann í fullt starf til að veita forstöðu málefnum Markaðsráðs. Er þess vænst að með þessum hætti muni áhrifa af starfsemi ráðsins og vöru- valsnefndanna, sem starfa við hlið þess, gæta meira en áður og stuðla að eflingu verslunarrekstrar samvinnu- hreyfingarinnar. Það er Sigurður Jónsson sem ráðinn hefur verið forstöðumaður Markaðsráðs samvinnufélaganna. Hann var verslunarráðunautur hjá Sambandinu 1971-75 og kaupfélags- stjóri á ísafirði 1978-80, en hefur auk þess starfað um allmörg ár sem ráðu- nautur við norræna samvinnuverkefn- ið í Austur-Afríku. Verkefni Sigurðar verða í samræmi við samþykktir kaupfélagsstjórafund- ar 1967 um starfssvið Markaðsráðsins. Það skal m.a. móta sameiginlega stefnu í verslunarmálum fyrir kaupfé- Iögin öll og samvinnuhreyfinguna í heild. Einnig skal það fylgjast með þróun neysluvörumarkaðarins í landinu og viðbrögðum samkeppnis- manna, og hafa á þeim grundvelli frumkvæði um að verslunarstefna hreyfingarinnar sé jafnan í samræmi við kröfur tímans. Þá skal ráðið láta gera skrár yfir þær vörur sem kaupfé- lögin koma sér saman um að versla með, og gera tillögur að kerfisbund- inni vöruöflun fyrir kaupfélagabúðirn- ar. Ráðið á einnig að taka ákvarðanir um hvernig bjóða skuli fram vörur, hvaða eiginleika þeirra skuli leggja áherslu á við viðskiptavini og hvernig eigi að koma þeim á framfæri við neytendur. Þá skal ráðið ákveða hæfi- legar búðagerðir, og um stefnu í út- stillingum í þeim og sameiginlegar merkingar. Einnig á ráðið að taka ákvarðanir um vörumerkingar og móta stefnu í auglýsingamálum. Sömuleiðis skal ráðið marka stefnu í málefnum starfsmannafræðslu, hlutast til um að námskeið séu haldin, bæk- lingar gefnir út o.s.frv. Sigurður Jónsson

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.