Samvinnan - 01.04.1983, Page 38

Samvinnan - 01.04.1983, Page 38
væntanlegan stórmarkað í Holtagörðum í Reykjavík, loðdýrarækt og þátttöku samvinnuhreyfingarinnar í vinnslu og sölu loðskinna, og fleira. • Mikilvægi fjárhagsmálanna Þá var tekið fyrir sérmál aðalfundar sem var fjárhagsmál samvinnuhreyfing- arinnar. Framsögu hafði Eggert A. Sverrisson fulltrúi forstjóra, og flutti hann ýtarlega framsöguræðu. Hann ræddi mikilvægi fjárhagsmálanna og skipulags þeirra fyrir alla framtíðarþró- un samvinnuhreyfingarinnar. Hann út- skýrði fjármagnsstrauma innan hreyf- ingarinnar og fjárbindingu á hennar vegum, ásamt því hvernig hún er fjár- mögnuð. Þar kom m. a. fram að þýðing stofnsjóðanna fyrir fjármögnunina hef- ur farið minnkandi, sem er skýrt þann- ig að ekki hafi verið gætt nægilega að ávöxtun þeirra. Þá rakti hann efnahags- horfur í þjóðarbúinu með hliðsjón af stöðu einstakra fjármálaþátta, og ræddi einnig fjármagnsþörf samvinnuhreyfing- arinnar í nánustu framtíð og þá mögu- leika sem eru á því að mæta henni. Fram kom, að útlitið er dökkt fram- undan, og nauðsyn ber til að sýna fyllstu gætni, sérstaklega þó í sambandi við hvers konar fjárfestingar í nánustu framtíð. Að framsöguerindinu loknu skiptu fundarmenn sér í fjóra umræðuhópa sem fjölluðu um eftirtalin efni: 1. Fjármögnun samvinnuhreyfingarinnar. 2. Fjármagnsnýting samvinnuhreyfing- arinnar. 3. Félagsmenn og fjármála- tengsl við samvinnuhreyfinguna. 4. Fjár- málastjórn í samvinnuhreyfingunni. Eftir að umræðuhópar höfðu skilað álitum og nokkrar frekari umræður far- ið fram, afgreiddi fundurinn málið með ályktun, sem birt er á öðrum stað. + Samvinnufrœðsla í skólum Aðalfundinum barst sam- þykkt frá aðalfundi Kaupfélags Árnesinga, þar sem bent er á nauðsyn þess að gel'a út fræðileg rit, sem nota mætti sem kennslugögn í skólum. Um þetta mál samþykkti fundur- inn svohljóðandi ályktun: „Aðalfundur Sambands ísl. samvinnufélaga haldinn að Bif- röst 9.-10. júní 1983 beinir því til Sambandsstjórnarinnar, að saminn verði bæklingur um sam- vinnuhreyfinguna, starfsemi hennar og skipulag, er síðan mætti nota til kennslu í fjöl- brautaskólum landsins, t. d. við kennslu í þjóðhagfræði á við- skiptabraut." + Friðarmál Um friðarmál samþykkti fundurinn eftirfarandi ályktun: „Aðalfundur Sambands ísl. samvinnufélaga haldinn að Bif- röst 9.-10. júní 1983 lýsir yfir stuðningi við nýstofnaða friðar- hreyfingu kvenna. Fundurinn beinir því til stjórnar Menningar- sjóðs Sambandsins að hann veiti nýstofnuðum friðarsamtökum kvenna fjárstuðning og taki þar með undir með miðstjórn Al- þjóðasamvinnusambandsins (ICA) á fundi höldnum í Róm 26. - 28. október 1982, að sam- vinnufélögin taki undir kröfur um frið og afvopnun.“ + ur kaupfélög og frystihús sem átt hafa í rekstrarerfiðleikum, og undirbúning að endurnýjun Sambandsskipaflotans. Valur lauk skýrslu sinni með því að leggja áherslu á nauðsyn aðhaldsað- gerða í samvinnurekstrinum, en erfið- leikar hans hlytu að teljast óhjákvæmi- leg endurspeglun þjóðfélags óðaverð- bóigu. Hann kvaðst sannfærður um að með samstilltu átaki ættu íslendingar að geta sigrast á núverandi efnahags- vanda á stuttum tíma. • Öflug hreyfing Erlendur Einarsson rakti í sinni skýrslu rekstur og afkomu Sambands- ins, og einnig greindi hann frá helstu viðfangsefnum einstakra deilda þess og ræddi málefni kaupfélaganna og sam- starfsfyrirtækja Sambandsins. I lok skýrslu sinnar sagði Erlendur að það væri áhyggjuefni að halli væri nú á rekstri Sambandsins í fyrsta skipti í langan tíma. Það hlyti að vera for- gangsmál stjórnenda samvinnuhreyfing- arinnar að snúa þeirri þróun við, og það yrði reynt að gera á þann hátt að það bitnaði sem minnst á félags- mönnum og starfsmönnum. „Tap er ekki hægt að þola,” sagði Erlendur, „en við búum að uppbyggingu fyrri ára og getum glaðst yfir því að eiga eina öflugustu samvinnuhreyfingu að tiltölu meðal þjóða heims.” Þrátt fyrir erfiða tíma bæri okkur nú sem fyrr að stefna að því að bæta hag þjóðarinnar allrar með aukinni samstöðu og betra skipu- lagi. Að loknum skýrsluflutningi voru al- mennar umræður, þar sem margir tóku til máls og mörg efni bar á góma. Með- al annars var talsvert rætt um vandamál litlu kaupfélaganna á yfirstandandi erf- iðleikatímum, málefni innlánsdeilda, 38

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.