Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 41

Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 41
Aðeins einu sinni lenti hún í því, að fyllibytta kom slagandi gegnum garðshliðið . . . Oft er kaupstaðarfólk haldið þeirri bábilju að lijónaskilnaðir eigi sér einungis stað meðal þess. En auðvitað á sveitafólk við ná- kvæmlega sömu vandamál að stríða og aðrir. Hún hafði verið fjósakona í tuttugu og tvö ár og þurfti ekki lengur að hafa áhyggjur af barnaskaranum, þegar hún varð ástfangin af eina traktorseklinum í sveitinni. Hann var aðeins ofurlítið yngri en hún, og hún hafði alltaf þekkt hann, en aldrei nokkurn tíma hugsað um hann á þann hátt. Hún tók því mestallar eigur sínar og flutti niðureftir til hans, hélt áfram að koma í fjósið og mjólka og fékk eftir þetta kaupið sjálf, en fjósameistarinn huggaði sig brátt við smábóndaekkju utan af Leirum. Það var henni Iéttir, sérstaklega vegna um- talsins. Og þá var líka einhver, sem gat þvegið skyrturnar hans og gefið honum heitan mat. Einu sinni fyrir mörgum árum kom hún heim úr gullbrúðkaupsveislu og fór beint í morgunmjaltirnar. Hún var drukkin og þá skaddaði hana óþæg kýr. Hún missti annað augað og lamaðist í hægri kjálkanum. Samt var traktorsekillinn dauðskot- inn í henni allan veturinn og fram á sumar. Þá urðu þau hins vegar ósátt, og hún mátti gera svo vel að fara burtu með allt sitt hafurtask. Það var einmitt um þetta leyti sem skilnaðurinn frá fjósamanninum tók gildi. Hann átti að borga henni dálitla upphæð mánaðar- lega; skelfilega mikið að hans mati, allt of lítið að hennar. Hún fékk vinnu í niöursuðuverksmiðjunni í næsta bæ, út- vegaði sér einsherbergis íbúð í nýrri blokk og þótt undarlegt megi virðast, átti hún ofurlítið eftir af einkaarfi eftir móðursystur sína í Ringe, svo að hún hafði það bara ágætt. Fingrafim var hún, fyrst að handfjalla aspargusinn, síðan rauðrófurnar, þá asíurnar og rauðkálið. Hún hafði góðan bónus. Hæðnistónninn í flysjurunum átti vel við hana og henni fannst bæjarlífið al- veg framúrskarandi ánægjulegt: upp- lýstir búðargluggarnir á kvöldin, kvik- myndahúsin tvö, pylsuvagninn á torg- inu með mörgum pylsutegundum. Hún saknaði einskis; hún hefði bara átt að vera búin að kynnast þessu fyrr. Og svo litla bakaríiskaffihúsið með mar- maraborðum og plussmublum og lit- prentunum á veggjunum! Þar sat hún alla laugardaga og sunnudaga, allt haustið og veturinn og drakk heitt kakó með þeyttum rjóma og borðaði lag- köku. Ó, hvað hún hafði það gott! En svo kom vorið. Arstíðin sú hrærir undarlega upp í manni, sérstaklega, þegar maður er einn. Hjá henni braust fram þráin eftir moldinni og plönt- unum. Nú kærði hún sig ekki hót lengur um malbikaðar göturnar. Hún stóð utan við sig í tómum suðusal verk- smiðjunnar og þvoði milljónir af krúsum undir niðursuðu á uppskeru framtíðar- innar og tók ekki þátt í venjubundnu, ærandi masinu, en hugsaði þögul um hvað jarðarberjabeðin eru falleg, þegar ferskur, gulur hálmur hafði verið lagður milli raðanna. Og hún hugsaði um steinhæðina úti við engjaveginn, allt erfiðið, sem kostað hafði að koma henni upp og um þéttar hvannbreiðurn- ar. A kvöldin sat hún og horfði með þessu eina auga sínu úr eina glugganum á einsherbergisíbúðinni og fór hvorki í pylsuvagninn né bakaríiskaffið. Fyrir hugskotssjónum hennar svifu sólberja- runnar og rifs og fúksíur og keisara- krónur og stóru graslauksþúfurnar tvær úti við gömlu vatnsdæluna. Þegar langt leið á milli þess að þau fengu eggja- köku, náði laukurinn að blómstra, stór- um fjólubláum kúlum, sem býflugurnar voru svo sólgnar í. Og ekki má gleyma fjallafurunni, sem plantað hafði verið allt of nálægt limgerðinu að húsabaki. Hún fékk sting í hjartað, ekki vegna nýs ástarskots, heldur fornrar ástar, sem hún hafði glatað. Hún hafði keypt sér gamalt ferðaviðtæki og sat nú kvöld nokkurt og hlustaði á garðyrkjuþátt og fylltist gremjukenndri gagnrýni, sem hún gat ekki látið í ljósi við neinn. Sí- grænir runnar voru sérgrein hennar og þegar rætt var um stikilsber, þá minnt- ist hún þess, að heima hjá henni höfðu þau verið frábær; snemmsprottin, sæt og safarík. Af tilviljun tók hún eftir, að eitt af stóru höfuðstaðarblöðunum birti viku- lega garðyrkjusíðu með myndum og lesendabréfum. Hún settist niður og klippti þetta út og bætti við athuga- semdum með ljótu og barnalegu þorps- skólaskriftinni sinni. En henni var næst- um allri lokið, daginn sem plöntusali nokkur hafði stillt trékössum, fullum af stjúpmæðraplöntum með moldarhnaus- um við, út á gangstéttina. Það fóru kippir um hana, en hvað átti hún að gera við slíkt, þótt hún færi og keypti nokkur stykki? Hálf eða heil tylft í pottum - það var ekkert varið í það. En þarna komst hún á sporið, eins og þegar vekja á blundandi lyktarskyn hjá veiðihundum; þá er hægt að binda afslitiö héralæri í spotta og draga það yfir gras og akra. Hún gat ekki haldið sig frá þessari plöntuverslun, og eitt sinn, er halla tók að kvöldi og alveg átti að fara að loka, stóð hún öfund- sjúk og horfði á unga konu kaupa síð- asta hálfa kassann af stjúpmæðrum. Hún elti hana eins og undarlegur, óhugnanlegur skuggi. Þær hröðuðu för sinni eftir götum miðbæjarins og komu út í úthverfi, þar sem áður höfðu verið nýlendugarðar, en nú höfðu verið byggð einbýlishús, en raunveruleg tré úr fyrri görðum fengið að standa og þétt, mannhæðarhá limgerði. Að vísu voru grasflatirnar ræfilslegar og nýbúið að helluleggja upp að bílskúrunum, en svo voru líka gróskumikil beð með fjöl- ærum jurtum og á einum stað hafði verið hlaðið upp fyrir aspargus og sýndi það mikla kunnáttu. Konan hvarf inn fyrir útflúrað smíðajárnshliðið, sem skall harkalega aftur, og sú eineygða hægði á sér og þefaði sig áfram í gegn- um hverfið. Hún horfði með skörpu kunnáttumannsauga inn í hina aðskilj- anlegustu garða; þennan gat hún næst- um viðurkennt og þessi hafði heppnast framúrskarandi vel, en þessi . . . Hún kom aftur næstu kvöld og eng- inn gaf henni gaum. Þetta var einmitt á matartíma, svo að hún gat farið eftir- litsferð sína í friði og ró og valið. Þarna bjó víst mjög ungt fólk, en auðvitað var líka almennilegt fólk þarna, sem sá um sína garða; það gat maður séð; eft- irlaunafólk eða fólk, sem var ættað úr sveit. En hún ætlaði sér ekki að skipta sér af því. Hún fann garðinn við númer átta. Hann hafði mistekist algjörlega, en samt var eins og eigendurnir hefðu lagt í hann mikla vinnu. Afturámóti var ástandið við húsið á ská hinumegin við götuna aðeins sóðaskap að kenna. Það mátti vel fá eitthvað skynsamlegt út úr 41

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.