Andvari - 01.10.1965, Side 93
ANDVARI
HENRY GEORGE OG „EINFALDI SKATTURINN"
183
baráttunni. George var og rétti maður-
inn til að sameina menn í raunhæfri
baráttu gegn kosningavélum stóru flokk-
anna. 1 landsmálum var hann yfirlýstur
demókrati og fagnaði sigri Clevelands í
forsetakosningunum 1884 eftir aS repúbl-
ikanar höfSu gegnt forsetaembætti í
aldarfjórðung samfleytt. Honum var ekki
ókunnugt um gangverkið í sterkustu
kosningavél Bandaríkjanna, Tammany
Hall, því að hann hafði kynnzt henni
þegar sama árið og hann fluttist til borg-
arinnar. Demókratar lögðu sig í fram-
króka um að fá þennan frambjóðanda
til að draga sig í hlé og munu jafnvel
hafa boðið honum öruggt kjördæmi í
væntanlegum kosningum til Bandaríkja-
þings. Alltv kom fyrir ekki, og Henry
George lagði ótrauður út í einhverja harð-
vítugustu kosningabaráttu, er sögur fara
af í New York-borg. Árangurinn var
ótrúlega góður, ekki sízt þegar þess er
gætt, að kosningar voru ekki leynilegar
og mönnum gat orðið hált á að styggja
atkvæðasmala stóru flokkanna. Stuðn-
ingsmenn Georges margir voru auk þess
sannfærðir um, að kosningavél demó-
krata hefði fengið atkvæðatölum hagrætt
sínum frambjóðanda í vil. Eftir kosn-
ingaúrslitin mátti vissulega nefna Henry
George sem sigurstranglegan frambjóð-
anda í næstu forsetakosningum innan
tveggja ára.
*
Hinir bjartsýnu baráttumenn, er
studdu Henry George í borgarstjórakosn-
ingunum í New York, áttu eftir að
verða fyrir miklum vonbrigðum næstu
misserin. Verkalýðshreyfingin var marg-
klofin hugmyndafræðilega, hagsmuna-
árekstrar greinilegir milli einstakra hópa,
og foringjarnir tóku að snúast gegn
beinni þátttöku verkalýðsfélaga í stjórn-
málabaráttu. Sú afstaða var vissulega
skiljanleg, því að atkvæÖaseÖillinn hafði
ekki komið að gagni í kjarabaráttu a. m.
k. í hálfa öld. Samt sem áður gerðu New
York-búar tilraun til að halda þeirri sam-
stöðu, er myndazt hafði um Henry
George með því að stofna Sameinaða
verkamannaflokkinn (United Labor
Party). Einn helzti hvatamaður flokks-
stofnunarinnar var dr. Mc Glynn, sem
áður var nefndur. Dr. Edward Mc Glynn
lýsti fyrst fylgi sínu við kenningar georg-
ista vegna írlandsmálanna, en kaþólsk
kirkjuvöld bönnuðu honum að skipta sér
af þeim málum opinberlega. Nú taldi
prestur það bann ekki ná til málefna New
York-borgar, svo að hann studdi Henry
George ötullega í kosningabaráttunni með
þcim afleiÖingum þó, að hann var settur
út af sakramenti eftir kosningar (til 1891).
Fyrstu tölublöðin af málgagni georgista,
Standard, sem stofnað var í ársbyrjun
1887, fjölluðu mjög um þetta svo kall-
aða Mc Glynn-mál, nær eitt blaða. Mc
Glynn lét ekki bugast af bannfæringu
kirkju sinnar. Sem eins konar deild í
flokknum stofnuðu þeir Henry George
Félag fátæktarandstæðinga (Anti Poverty
Society). Dr. Mc Glynn varð formaÖur
þess, en George varaformaður. Félagið
hélt fundi sína á sunnudögum með all-
miklum trúarblæ, en þar voru saman
komnir kaþólskir menn og mótmælend-
ur, andatrúarmenn og Gyðingar, Múham-
eðs- og Búddatrúarmenn. í flokknum
sjálfum voru þar að auk marxistar og
kristilegir sósíalistar, kaupsýslumenn og
verkamenn, rótgrónir New York-búar og
innflytjendur. Honum var ætlað að
starfa á landsmálagrundvelli í öllum
fylkjum. Helztu stefnumálin voru skatt-
lagning jarðeigna og þjóðnýting náttúru-
gæða, járnbrauta og ritsíma, bæjarrekst-
ur á vatns-, gas- og rafveitum.
Augljóst var frá upphafi, að erfitt yrði
að balda slíkum flokki saman. Sam-
keppni við frjálslynda repúblikana um