Andvari - 01.10.1965, Blaðsíða 114
204
ÓLAFUR JENS PÉTURSSON
ANDVARI
stjóri nýbýlasjóSs síðan 1936. Gekk hann
þannig í þjónustu fyrstu samstjórnar
„hinna vinnandi stétta“, er Hermann
Jónasson myndaði 1934. Gegndi Þórólf-
ur því embætti til æviloka, en lézt í
Reykjavík 15. júní 1940, aÖeins 54 ára
að aldri. Lét hann eftir sig konu, Hólm-
fríði Hemmert frá Blönduósi, er hann
gekk að eiga árið 1938 og kornungan son.
Stundar frú Hólmfríður nú kennslustörf
í Kópavogi. Þar býr einnig Sigurður,
sonur þeirra hjóna.
Þórólfur í Baldursheimi virðist ekki
hafa látið frá sér fara ritsmíÖar í anda
georgisma eftir að hamr hætti ritstjórn
Réttar.
Georgisminn sem slíkur var úr sögunni
á íslandi. Hann gleymdist brátt eða varð
kannski óljós æskuminning gamalla
manna, þegar árin liðu.
VII.
LOKAORÐ
hlenry George sagði það satt í niður-
lagsorðum sínum að Framför og fátækt,
að í byrjun bókar hefði hann „ekki þurft
að styðja neinar kennisetningar, engar
niðurstöður að sanna“. Hann var aðeins
bundinn eigin samvizku og sannfæringu,
er hann boðaði kenningu sina. En styrk-
ur hans fólst í þvi, hve vel hann hafði
tileinkað sér stjórnmálahugmyndir og sið-
gæÖisboÖskap horfinna kynslóða. Boð-
skapurinn var þakksamlega þeginn af
fólki, sem vissi ekki, hvert efnalegar fram-
farir stefndu, óttaðist öryggisleysi líðandi
stundar og bar kvíðboga fyrir komandi
degi.
Kenningin um „einfalda skattinn", eins
og Henry George boðaði hana, var ekki
torleyst gáta fyrir þá, sem fetuðu fyrstu
sporin á vegi þjóðfélagsmála. Fyrir til-
stuðlan þessarar kenningar tóku því fleiri
en áður höfðu átt þess kost að gera sér
grein fyrir stöðu sinni í samfélaginu.
Einföld og skýr framsetning leiðtogans í
ræðu og riti, a. m. k. meðan hann hélt
fullri heilsu, fyllti menn aðdáun á hon-
um og boÖskap hans. Sumir trúðu því
jafnvel, að hann hefði hlotiÖ guðlega
opinberun og fórnað lífi sínu fyrir mál-
staðinn. Þetta varpar e. t. v. ljósi á þá
baráttuaðferð georgista að berjast fyrir
hugsjóninni hvar og hvenær, sem færi
gafst, og láta ekki lítilsigld ágreiningsefni
koma í veg fyrir samvinnu við aðra, ef
þoka mætti þjóÖunum nær markinu. Bar-
átta þeirra var ekki með öllu unnin fyrir
8Ý8-
Henry George var hvorki Móses né
Messías á sviði stjómmálahagfræði, en
hann var einlægur hugsjónamaður, sem
lagði kapp á að afla kenningu sinni fylgis,
án þess að hirða um stundleg veraldar-
gæði. Vissulega varð boðskapur hans til
að opna augu manna fyrir göllum ríkj-
andi þjóðskipulags og knýja þá til íhug-
unar og umræðu um tiltækar úrbætur.