Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 11
5
Frá Arnljóti Ólafssini.
Arnljótur Ólafsson er fæddur í þennan heira 21.
nóv. 18231 á Auðólfsstöðum í Langadal í Húnavatns-
síslu. Faðir hans var Ólafur bóndi Björnsson, er
bjó þar á sjálfseign sinni. Hafði hann erft jörðina
eftir föður sinn Björn Guðmundsson, enn liann aftur
eftir sinn föður Guðmund Björnsson, er first bjó í
Höfnum á Skaga, en flutti á eignarjörð sína Auðólfs-
staði á efri árum sínum (1781) og dó þar (1787)
lioldsveikur2. Guðmundur þessi var mesti dugnaðar-
maður og þótti bera höfuð og herðar iíir aðra hænd-
ur á Skaga, meðan hann var í Höfnum; var liann
því kallaður Guðmundur Skagakóngur. Taldi Arn-
ljótur sjer það stundum til gildis í hálfgerðu gamni,
að hann væri kominn frá Guðmundi Skagakóngi í
heinan karllegg3. Móðir Arnljóts, kona Ólafs, var
Margrjet Snæbjörnsdóttir prests í Grímstungum Hall-
dórssonar biskups á Hólum Brynjólfssonar lögrjettu-
mans Ásmundarsonar hins gamla, prófasts á Breiða-
hólsstað á Skógarströnd. Bróðir Snæbjarnar, afa
Arnljóts, var Brinjólfur gullsmiður Halldórsson, faðir
Þóru, móður Fjeturs hiskups og þeirra bræðra.
Um það leiti sem Arnljótur fæddist, hjó Arnljót-
ur lireppstjóri Árnason á Gunnsteinsstöðum í Langa-
') Svo rl82.‘5j segir í Austra' (14. ári Nr. 35) og i bókum lærða
skólans og kemur licim við brjef Arnljóts til mín, sem er dagsett
20. nóv. 1903, þar stendur: »Á inorgun vcrð jeg áttræður«. Ilitt
mun rangt, sem stendur í minningarritum lærða skólans og presta-
skólans (eftir »Vita« Arnljóts), að hann sje fæddur 1824.
s) Svo segir í sjálfsæíi afa míns Björns uinboðsmans Olsens. Björn,
afi Arnljóts, bjó íirst i Höfnum, eftir það að faðir lians fór þaðan,
enn flutti að Auðólfsstöðum, þegar faðir lians dó.
3) Pað er ekki rjett, sem Skafti Jósepsson segir i Austra 14. ári Nr.
35, aö Arnljótur væri af Vindhælisætt. Enn satt er það, að Vind*
liælisættin og ætt Arnljóts koma saman i Guðmundi Skagakóngi, því
að Guðrún, dóttir Guðmundar, afasistir Arnljóts, var móðir Björns
Olsens og þeirra Vindhælisbræðra, kona Olafs á Vindliæli Guð-
mundssonar. Oddní, sistir þeirra Vindliælisbræðra, kona Pórðar
faktors Ilelgasonar, var móðir Guðrúnar, konu Björns sislumans
Blöndals, og er þannig liáttað irændsemi Arnljóts og Blöndals-
bræðra.