Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 79
Vegir og flutningar.
73
— 60 aura á dagyfir allt sumarið, og eru þá brúkaðir
hvern dag hálfan; þeir sem eiga hestana, eru særni-
lega haldnir af þessari horgun, en ekkert meir. Nú
má óhælt gjöra ráð fyrir að sá hestur, sem erbrúk-
aður allan daginn án þess að hafa kral'tfóður, þurfi
að hafa jafnmarga hvíldardaga sem brúkunardaga
alls yfir sumarið, og svarar þá 1 kr. fyrir hvern
hrúkunardag til þeirrar leigu, er landssjóður borgar
fyrir vagnhesta sina.
Á torfærulausum lestavegi má ætla einum manni
að fara með 6 hesta í lest, og hefur liann þá liinn
7. til reiðar. Hæfilega dagleið má telja 4 mílur, eða
8 tíma lestagang.
Venjulega stendur svo á flutningum manna, að
lítið er að flytja aðra leiðina. Þetta á jafnt við um
klyfjaflutning og vagnflutning, og ætla jeg því í þessum
samanhurði að leggja allan flutningskostnaðinn á
aðra leiðina; gjöri ráð fyrir að hestarnir fari lausir
aðra leiðina en fullklyfjaðir hina.
Kostnaðurinn við að flytja 6 liestburði 4 milur
verður þá þessi;
1 maður í 2 daga á 3 kr. . . . 6,00 kr.
7 hestar í 2 daga á 1 kr. . . . 14,00 —
Samtals 20,00 kr.
Að flytja 6 heslhurði 4 mílur er sama sem að
llytja 24 hestburði 1 mílu. Kostnaðurinn við að
llylja hvern heslhurð eina mílu verður þá = 0,831/2
kr. — liðlegir 83 aurar.
Á akvegi, þar sem mestur halli er 1 ; 20, má
flytja 1000 pd. eða 5 hestburði á vagni, tvíhjóla eða
fjórhjóla, með einum hesti fyrir. Dagleiðina má
telja 4 mílur, og verður kostnaðurinn við að flytja
ö hestburði 4 mílur þessi: