Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 112
106
Fiskirannsóknir 1905.
Svo hefi eg heima fyrir haldið áfram athugunum
viðvíkjandi líffræði sumra vorra mestu nytsemdar-
íiska, svo sem þorsks og síldar, eins og eg mintist á
í síðustu skýrslu minni til stjórnarráðsins. Frá þessum
athugunum mun eg nú skýra nánara í sambandi við
það, sem rannsóknirnar á »Thor« liafa þegar leitt í ljós.
I. Um lirygningrn þorsks, síhlar og Iirognkélsa.
Undanfarin ár lieíi eg liaft tækifæri til athug-
ana viðvíkjandi þessu atriði á þorski, síld og nokkr-
um fleiri flskum hér í Reykjavík, af því að allmikið
liefir borist að af þeim liingað til bæjarins á vetrar-
vertíð og fram eftir sumri. Auk þess hefi eg oft get-
að fengið upplýsingar hjá skipstjórum úr Reykjavík,
er verið hafa að veiðum úli fyrir suðvesturströndinni.
1. Porskurinn. Frá gömlum tímum hefir vetr-
arvertíð á Suðurlandi verið talin að standa yfir frá
Kyndilmessu, 2. febrúar, til 11. maí. Eins og lcunn-
ugt er, eru veiðar þær, er þá fara fram, bygðar á
því, að þá safnast raikill urmull af þorski (og ýsu)
til að hrygna við suður- og suðvesturströnd lands-
ins, það er með öðrum orðum, að hrygning þorsks-
ins fer fram á þessum sama tima, en þar með er
þó ekki sagt að hvorttveggja, lirygningin og vertíð-
in, standi jafnlengi yfir. Um þetta atriði, um hrygn-
ingartíma þorsksins, eru engar upplýsingar til á
prenLi, nema það sem eg hefi slutllega drepið á það
til og frá í skýrslum mínum, og það sem Dr. Schmidt
segir1 að aðalhrygningartíminn við suðurströndina
sé í marz og apríl og nokkru seinna við vestur-
ströndina, einkum norðan til. Af því að »Thor« hefir
aldrei komið liingað til rannsókna fyr en eftir miðj-
an apríl, þá liefir þar eigi verið mögulegt að ákveða
nákvæmlega, hvenær hrygningin byrjar.
1) í Fiskeriundersögelser ved Island og Færöerne 1904, hls 58.