Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 113
Fiskirannsóknir 1905.
107
Á síðustu 10 árum hefi eg gerl ýmsar athuganir
til að komast eftir því, hvenær hrygningin byrjaði
og endaði í Faxaflóa og safnað uppljTsingum um
önnur svæði, er athuganir mínar gátu ekki náð til.
Skal eg nú fyrst gela þess, er eg hef orðið vísari um
byrjun hrygningarinnar í Faxaflóa einstök ár.
1806 varð fyrst vart við þorskgöngu í Súluál
uorður af Garðskaga og í Garðsjó 20. og 21. marz;
varð vart við fiskinn á þilskip og í net. Helir hrygn-
ingin því ekki getað byrjað fyr en þetta.
1897 leitaði hotnvörpungur fyrir íisk í flóanum
10. marz, en varð ekki var. Fiskur þá ekki geng-
inn. 20. s. m. aflaðist töluvert af allvænum legu-
fiski á lóð í Garðsjó. Eg sá nokkuð af honum,
cn lirogn og svili voru enn ekki fullþroskuð. 25.
marz komu inn mörg þilskip, höfðu þau aflað vel,
miðlungs þorsk, ógotinn, undanfarna daga í Miðness-
sjó. 26. apríl allaðisl ógotinn fiskur á Sviðshrún og
í Akranessjó.
1898 varð ekki verulega vart við flsk í flóan-
um fyr en að mikil ganga var komin alt að Garð-
slcaga 26. marz; þó liafði orðið vel vart á færi og
lóð í Akranesforum 4 dögum fyr, og hefir því hrygn-
ing ekki átt sér stað fyr en þelta.
1900 byrjaði ekki að aflast í flóanum fyr en
um pálmasunnudag (8. apríl).
1901 byrjaði afli fyrst um og eftir 20. marz í
Garðsjó og á Akranesmiðum, og það sem eg sá af
fiski, veiddum á síðari staðnum 28. marz, var ekki
farið að hrygna.
1902 varð ekki vart við annað en smáýsu í
Akranessjó í byrjun marzmán., og botnvörpuskip,
sem leitaði í flóanum um sama leyti, varð ekki vart;
fyrst um 18. s. m. fór að allast í net í Garðsjó, og