Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 118
112
Fiskirannsóknir 1905.
mið fyrr en seinast í maí eða í júní og er þá sagður
útgotinn. Þó hefir einusinni orðið vart við ógotinn
fisk í Skagafirði; það var 1875. Sá fiskur þótti ó-
vanalega vænn.
Eftir þvi sem menn vita best, lítur út fyrir að
líkt sé um hrygningu þorsksins við Austurland (frá
Langanesi að Hornafirði) eins og við Norðurland,
það er að segja, gjóti þar ekki nema endur og sinn-
um og þá seint að vorinu, í maí og snemma i júní.
Dr. Schmidt hefir ekki, þrátt fyrir ítrekaðar rann-
sóknir, í maí og júní síðustu 3 ár, getað með vissu
fundið þorskhrogn í sjónum á þessu svæði, né þorsk-
seiði á yngsta aldursskeiði, en þegar úti fyrir Lóns-
víkinni hafa þau farið að sjást að mun. Hinsvegar
getur hann um (bls. 56, neðanm.) að umsjónarmaður
Wathnes-útgerðarinnar á Seyðisiirði hafi séð hrogn í
einstöku þorski 1903.
í Fiskeriberetningen for 1901—92, bls. 246, er
þess getið, að við rannsóknirnar á »I)iönu« 1898 og
1899 hafi fundist þorskur við Austurland, kominn að
gotum, fyrri hlula maímán., en ekki nefnt, hvemikil
brögð voru að því.
Pegar eg fór um Austurland 1898, var það að
eins á tveim stöðum að menn þótlust hafa tekið eftir
óhrygndum þorski, sem sé í Borgarfirði og Mjóafirði,
á síðari staðnum þó því að eins, að fiskur kæmi
snemma vors (fyrir miðjan einmánuð). — Það er
því allmerkilegt, að maður nokkur í Seyðistirði, Frið-
björn Holm að nafni, veiddi í vor frá 6. til 11. maí
60 þorska í net þar í firðinum innarlega, er fleslir
voru ógotnir, nokkrir með hrognum, sem farin voru
að losna (óæt), en flestir með sviljum. Samtímis
lagði annar maður þar lóð, en varð ekki var viðfisk.
Hvort nú þesskonar óliryngdur eða hrygnandi neta-
fiskur gangi að jafnaði í firðina eystra á vorin, er