Fréttablaðið - 04.09.2009, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
FRÆÐSLUGANGA Skógræktarfélags Hafnar-fjarðar verður farin laugardaginn 5. septemer og er sú síðasta á þessu ári. Skoðuð verða tré og runnar
í trjásafninu í Höfðaskógi. Lagt verður af stað frá Þöll
við Kaldárselsveg klukkan 10.
„Af fuglakjöti er kjúklingur oftast á borðum hjá mér en ég er samt með hálfgerða fuglakjötsdelluþessa dagana hef v iðö
Er með dellu fyrir fuglakjöti þessa dagana
Brynhildur Stefanía Jakobsdóttir eldar gjarnan rétti sem eru fljótlegir og einfaldir og er allt fuglakjöt í
miklu uppáhaldi. Þannig segist hún vera að uppgötva ýmsar tegundir fuglakjöts þessa dagana.
Brynhildur Stefanía Jakobsdóttir snyrtifræðingur og sonur hennar, Patrekur Úlfarsson, eru sammála um að kjúklingaréttir séu
eitthvað sem allir á heimilinu samþykki.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KJÚKLINGUR MEÐ KASJÚ-HNETUMFyrir fjó
6.990 kr.
4ra rétta tilboðog nýr A la Carte
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn með sérvöldu víni með hverjum rétti: 10.990 kr.
Barolo „Ornato“ 200 Í
Glas af eðalvíni
· Reykt önd með fíkjum, valhnetum og rauðvínsgljáa ·
· Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·* E Ð A *· Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar ·· Skyr “Tonka crème brûlée” með karamelluís ·
FÖSTUDAGUR
4. september 2009 — 209. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
BRYNHILDUR JAKOBSDÓTTIR
Eldar einfaldan og
fljótlegan kjúklingarétt
• matur
Í MIÐJU BLAÐSINS
Karate í þrjátíu ár
Karatefélagið Þórsham-
ar hefur starfað í þrjá-
tíu ár og heldur upp á
daginn á morgun.
TÍMAMÓT 18
Besta bók
Mankells
í 15 ár!
REYKJAVÍK
Klettagörðum 12
Sími 562 4011
AKUREYRI
Draupnisgata 2
Sími 460 0800
REYÐARFJÖRDÐUR
Nesbraut 9
Sími 470 2020
Ís
sk
áp
ur
180 cm
149.900
RK60355DE
BJARNI HAUKUR OG JÓHANNES
Hellisbúar
sameinaðir
Gera grínþætti fyrir sjónvarp.
FÓLK 34
Hættur í Sign
Egill Rafnsson
hætti í Sign eftir að
sveitinni bauðst stór
plötusamningur í
Þýskalandi.
FÓLK 34
12
10
12
10
SKÚRIR VESTAN TIL Í dag verða
suðaustan 3-8 m/s vestan til
annars hægviðri. Skúrir vestan til
annars yfirleitt þurrt og bjart með
köflum. Hiti 8-13 stig.
VEÐUR 4
Vinnuafl eða fólk?
Ef ekkert verður að gert til
að aðstoða íbúa af erlendum
uppruna við að aðlagast íslensku
samfélagi gæti það haft skelfi-
legar afleiðingar, skrifar Guðbjörg
Björnsdóttir.
Í DAG 16
HEILBRIGÐISMÁL Reynt verður eftir
fremsta megni að komast hjá upp-
sögnum á Landspítalanum þótt
mikill niðurskurðir blasi við. Þetta
segir Hulda Gunnlaugsdóttir, for-
stjóri Landspítalans, sem mun
funda með starfsfólki spítalans í
dag. Þó sé líklegt að starfshlutfall
verði skert eða vöktum breytt.
„Þetta verður erfitt, verður
stór biti, en við reynum að kom-
ast hjá uppsögnum. Við erum með
ákveðnar hugmyndir sem ég ætla
að ræða við starfsfólkið,“ segir
Hulda.
Mikill niðurskurður blasir við í
heilbrigðiskerfinu á næstu árum.
Í ár er boðaður niðurskurður um
sjö til tíu prósent eða 2,8 milljarð-
ar. Búið var að skera niður um 70
prósent af þeim kostnaði, að sögn
Huldu, en vegna gengisáhrifa
nemur niðurskurðurinn nú ein-
ungis um fjörutíu prósentum.
„Í fyrra fengum við aukafjár-
veitingu sem dekkaði að stórum
hluta gengisáhrifin en nú fáum
við ekki neitt þar sem ríkiskass-
inn er tómur,“ segir Hulda. „Til að
mæta þessum kröfum þurfum við
að fara í harðari aðgerðir.“
„Ég sagði í byrjun árs að við
myndum ekki lækka þjónustustig-
ið eða minnka gæðin, ekki fækka
rannsóknum og ekki minnka
kennslu. Við höfum staðið við það.
Það er mikill sigur fyrir starfsfólk
Landspítalans sem hefur staðið
sig gríðarlega vel í þessum breyt-
ingum. En þar sem gengið er svo
óhagstætt þá er sá frábæri árang-
ur bara ekki nægur. Við þurfum
að gera meira,“ segir forstjórinn.
„Ef við náum ekki að gera allt
sem við ætlum okkur á þessu ári
verðum við að taka verkefnin með
okkur yfir á næsta ár. Halli spít-
alans hverfur ekki og við vitum
ekki hvert gengi krónunnar verð-
ur á næsta ári. Verkefnið verður
bara stærra og stærra.“ - kh
Forstjórinn segir þörf
á hörðum aðgerðum
Niðurskurðartillögur á Landspítalanum verða kynntar starfsfólki í dag. Gengi
krónunnar hefur skemmt starfið þar. Þetta verður erfitt, segir forstjórinn.
Þróttarar
fallnir
Grindavík og ÍBV
gerðu jafntefli í
gærkvöld og sendu
Þrótt þar með
niður í 1. deild.
ÍÞRÓTTIR 30
EFNAHAGSMÁL Erlendar skuldir
íslenska þjóðarbúsins námu sam-
tals 14.343 milljörðum króna í lok
júní. Erlendar eignir námu 8.389
milljörðum króna, og skuldir því
5.954 milljarðar króna umfram
eignir. Þetta kemur fram í yfirliti
Seðlabanka Íslands sem birt var í
gær.
Gunnar Tómasson hagfræðing-
ur, sem starfaði hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum í um aldarfjórðung,
sagði í samtali við Stöð 2 í gær-
kvöldi að teflt sé á tæpasta vað
með skuldastöðu þjóðarbússins.
Íslendingar séu mjög nærri því að
stefna í greiðsluþrot.
Skuldir þjóðarbúsins eru nú um
233 prósent af áætlaðri landsfram-
leiðslu, að því er fram kom í frétt-
um Stöðvar 2. Í yfirlýsingu stjórn-
valda vegna samkomulags við AGS
kom fram að fari erlendar skuldir
upp í 240 prósent geti landið ekki
staðið undir skuldabyrði sinni.
Inni í tölum um skuldir og eignir
erlendis eru eignir og skuldir við-
skiptabankanna þriggja, sem enn
eru í greiðslustöðvun. Áætlaðar
skuldir þeirra nema um 5.347
milljörðum króna. Erlendar skuld-
ir þjóðarbúsins utan við það eru
því um 606 milljarðar króna.
Ekki náðist í Steingrím J. Sigfús-
son fjármálaráðherra vegna máls-
ins í gærkvöldi. - bj
Erlendar skuldir þjóðarbúsins umfram eignir tæplega 6.000 milljarðar króna:
Ísland hættulega nærri greiðsluþroti
ATVINNUMÁL „Það er alltaf gott
að koma í Karíbahafið í sól-
ina og hitann þar. Mönnum líst
vel á þetta og það sést á fjölda
umsókna,“ segir Loftur Árna-
son, framkvæmdastjóri Ístaks.
Fyrirtækið auglýsti nýlega eftir
tæknimönnum til starfa í borg-
inni Falmouth á Jamaíku, en þar
stendur fyrir dyrum bygging
fjórtán þjónustubygginga fyrir
skemmtiferðaskip.
Um þrjátíu stjórnendur á
vegum Ístaks komi til með að
vinna við byggingarnar, en ekki
liggi enn fyrir hversu margir
nýir starfskraftar verði ráðnir til
verksins. - kg
Sótt í störf á Jamaíka:
Fólki líst vel á
Karíbahafið
KARÍBAHAFIÐ Byggingarnar eiga að rísa
við nýja höfn sem verið er að byggja
fyrir skemmtiferðaskip.
BÖÐLAR Í MENNTASKÓLANUM Í REYKJAVÍK Sjöttubekkingar í Menntaskólanum í Reykjavík tóku vel á móti nýnemum í gær. Böðl-
arnir, sem voru klæddir í toga að rómverskum sið, buðu nýnemana velkomna með tolleringum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BRETLAND Heilablóðfall sem sjö-
tugur breskur maður varð fyrir
nýlega hafði hliðarverkanir sem
læknar gátu ekki séð fyrir. Eftir
að hafa notað sterk gleraugu frá
unga aldri hefur maðurinn nú
nær fullkomna sjón, að því er
fram kemur á vef BBC.
Sjón Malcolms Darby hafði
alla tíð verið slæm, þar til hann
vaknaði eftir aðgerð eftir hættu-
legt heilablóðfall. Heilablóðfall-
ið hafði reyndar önnur og verri
áhrif, því eftir að hann vakn-
aði komst Darby að því að hann
kom ekki upp orði á frönsku, sem
hann talaði áður vel. Læknar
segja þekkt að sjónin geti versn-
að við heilablóðfall, en fáheyrt sé
að hún batni. - bj
Sjónin betri eftir heilablóðfall:
Frönskukunn-
átta gufaði upp