Fréttablaðið - 04.09.2009, Side 24
4 föstudagur 4. september
Rósa Birgitta Ísfeld
er söngkona hljóm-
sveitarinnar Sometime
sem heldur tónleika á
Jacobsen í kvöld. Í við-
tali við Föstudag deilir
hún sögum af nýfæddri
dóttur, ævintýralegum
tónleikaferðum og litla
bróðurnum sem lést úr
krabbameini.
R
ósa Birgitta, eða Diva
de la Rosa eins hún
er líka kölluð, er ný-
lent á Íslandi þegar
blaðamaður bank-
ar upp á hjá henni á Hverfisgöt-
unni í Reykjavík. Hún er nýkom-
in heim úr viðburðaríkri ferð til
Makedóníu með hljómsveit sinni,
Sometime, þar sem hún kom
fram á norrænni menningarhátíð
ásamt hljómsveitinni FM Belfast.
„Þetta var rosalega skrýtin ferð.
Það var haft samband við okkur í
gegnum MySpace í febrúar en við
höfðum ekkert fengið staðfest
fyrr en stuttu áður en við fórum
út. Ég vissi ekkert um Makedóníu
og þekkti engan sem hefur komið
þangað. Fólkið þarna var æðislegt
og rosalega vinalegt. En allt var í
niðurníðslu. Allt nema ráðhúsið,
sem var voða flott með fánum og
fossum. Þarna var rusl úti um allt,
flækingshundar á ráfi og vírarn-
ir stóðu út úr húsunum. Það var
borgarastyrjöld þarna þangað til
fyrir fimmtán árum og á meðan
svoleiðis er í gangi er auðvit-
að engin uppbygging. En það var
mjög skrýtið að upplifa þetta.“
Auk þess að koma fram á há-
tíðinni, sem fór fram á risastóru
plani fyrir framan félagsmiðstöð
unglinga, spiluðu hljómsveitirnar
tvær í beinni útsendingu í make-
dóníska ríkisútvarpinu. „Það var
eins og við hefðum stigið inn í
tímavél og komið út fyrir fjörutíu
árum. Þarna inni var myrkur og
allt grænt eða svart á litinn. Rosa-
lega flottir ´70-hljóðnemar og eld-
gamlir plötuspilarar. Þarna spiluð-
um við, báðar hljómsveitirnar, í
beinni útsendingu í meira en hálf-
tíma. Og þeir voru að spila fullt af
íslenskri tónlist þarna, sem manni
finnst auðvitað merkilegt.“
STEFNT Á HÖFÐABORG
Tónlistarlíf Rósu getur heldur
betur verið viðburðaríkt en fyrr
í mánuðinum var hljómsveit-
in boðuð til Þýskalands til að
spila í einkaveislu hjá þýskum
manni sem frétti af þeim í gegn-
um pabba hans Danna, eins af
meðlimum Sometime. „Þetta var
í litlum bæ sem heitir Furth im
Wald. Maðurinn sem flutti okkur
inn býr þarna á risastóru sveita-
býli. Á neðri hæðinni var lista-
sýning konu frá Höfðaborg. Tón-
leikarnir fóru fram úti í garðin-
um, þar sem, ásamt okkur kom
fram nokkurs konar fjöllista-
hljómsveit frá Höfðaborg sem
spilar heimstónlist. Í lok tón-
leikanna tókum við djammsess-
ion með hinni hljómsveitinni í
tvo tíma. Það var frekar sérstök
blanda en þetta var rosalega sér-
stakt og skemmtilegt, allir dans-
andi og mikil gleði. Nú erum við
að vonast eftir því að þau geti
reddað okkur til Höfðaborgar til
að spila með þeim þar.“
GLAÐLEGT RAFPOPP
Þessa dagana er Rósa að vinna
að plötu með tónlistarmannin-
um Eberg en saman kalla þau sig
Feldberg. Þetta er popptónlist sem
nær kannski til fleira fólks held-
ur en elektrópoppið. Við höfum til
dæmis gefið út lagið „Don‘t be a
Stranger“ sem Nova hefur verið að
nota í auglýsingarnar sínar.“
Rósa sér um að semja textana,
sem yfirleitt verða til á ensku.
„Ég bjó í Bandaríkjunum um tíma
þegar ég var krakki og var nánast
alveg tvítyngd, þannig að ensk-
an liggur vel fyrir mér. Tilfinn-
ingalega er hún líka mjög nálægt
mér. Mér finnst hún auðveldari
en íslenskan. En mér finnst rosa-
lega flott þegar fólk hefur góða
íslenskukunnáttu. Eins og þessir
rapparar sem kunna íslenskuna
vel og nota hana í sínum textum.
Mér finnst þeir rosalega flottir. Ég
ætti kannski að fara í íslensku í
háskólanum?“
Hún skrifaði reyndar eitt sinn
texta við lag á íslensku, sem end-
aði með öðrum hætti en lagt var
upp með. „Þegar við svo fórum að
taka það upp hljómaði það bara
asnalega. Svo var ég einn daginn
í fyndnu skapi og var syngjandi á
frönsku. Þá stakk Curver upp á því
að ég ætti kannski bara að þýða
lagið á frönsku. Það kom svo bara
svo vel út að íslenska lagið end-
aði á frönsku.“
ELEKTRÓDÍVA ORÐIN MAMMA
Diva de la Rosa Rósa lætur nýtilkomið móðurhlutverkið ekki skyggja of mikið á tónlistarferilinn. Hún vinnur nú að plötu með tónlistarmanninum Eberg sem stefnt er á að komi út
í október. Í kvöld spilar hún á tónleikum á Jacobsen með hljómsveitinni Sometime. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Viðtal: Hólmfríður Helga
Sigurðardóttir
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason