Fréttablaðið - 04.09.2009, Page 25

Fréttablaðið - 04.09.2009, Page 25
4. september föstudagur 5 ✽ bak við tjöldin Stjörnumerki: Sporðdreki. Besti matur í heimi: Allt sem kemur frá Fylgifiskum finnst mér ótrúlega gott. Og auðvit- að úr Garðinum á Klapparstíg. Ég er búin að borða þar í svo mörg ár að ég má syngja þar fyrir mat á öskudag. Uppáhaldsdrykk- urinn: Það fer eftir skapi. Stund- um er vatn best í heimi. Stundum er það ógeðslegt. Þá er það kannski Bailey‘s. Já og marokkóskt te, helst í Mar- okkó. Flottasta versl- unin: Ég vildi að ég ætti óendan- legt fjármagn til að versla í Kisunni og í KronKron. Og ég sé ótrúlega eftir Systrum. Svo langar mig aftur í hattabúðina í Prag. Uppáhaldstónlistin: Úff, það er óendanlegt. Ég get enda- laust hlustað á Sin Fang Bous og Emilönu Torrini. Svo hlusta ég heimikið á djass og Bob Dylan. Besta bókin: Ég er að lesa þrefalda trílógíu eftir Robin Hobb. Þetta eru sem sagt níu ævintýrabækur sem tengjast allar saman sem ég er alveg á kafi í. En skemmti- legasta bók sem ég hef lesið er sjálfsævisaga Miles Davis. MISSTI LITLA BRÓÐUR SINN Rósa stelur athyglinni hvar sem hún fer, enda litríkur persónu- leiki sem oftast er yfirmáta kátur og brosir út að eyrum. Hún hefur þó upplifað sinn skerf af erfið- leikum. Fyrir tíu árum missti hún litla bróður sinn, Sigurð Þengil, úr krabbameini. Þá var hann tíu ára gamall. „Hann var rosalega dug- legur og mikill kraftur í honum. Hann greindist fyrst þegar hann var þriggja ára en var svo í sjö ár í meðferðum. Læknarnir héldu allt- af að þeir væru búnir að ná þessu en svo kom það alltaf aftur. Þrátt fyrir að vera svona veikur var hann algjör hetja. Hann var einn af þessum krökkum sem virðast alltaf vera að drífa sig að öllu, eins og hann vissi að hann hefði ekk- ert of mikinn tíma. Hann var til dæmis uppi í Þórsmörk að ganga á fjöll tveimur vikum áður en hann dó og hann keppti á Andrésar andar-leikunum sama ár. Ég hef misst aðra vini úr krabbameini og þeir áttu þetta sameiginlegt með bróður mínum. Þeir náðu að áorka hlutum sem sumt fólk nær ekki á heilli ævi. Létu drauma sína ræt- ast og biðu ekki með það.“ Rósa saknar bróður síns en þó tengir hún einnig mikla gleði við minningu hans. „Hann var svo stórkostlegur karakter hann bróðir minn. Mér finnst ég hepp- in að hafa kynnst honum og hafa fengið þessi tíu ár með honum en ekki misst hann strax. En auðvit- að hugsa ég mikið um hvar hann væri í dag hefði hann lifað. Nú hefði hann til dæmis verið að ljúka menntaskóla og kannski verið kominn með kærustu.“ GAMAN AÐ VERA MAMMA Rósa á stóra fjölskyldu en hún á hvorki meira né minna en fimm systkini. Enn fjölgaði svo í fjöl- skyldunni þegar Rósa eignaðist sitt fyrsta barn fyrir fjórum mánuðum. dótturina Ísadóru, með Finni Há- konarsyni. Bæði eru þau í tónlistar- bransanum, hann reyndar „hinum megin við búrið“, en hann rekur stúdíó og vinnur hjá Sýrlandi. Dótt- irin hefur því frá fyrsta degi alist upp við mikla tónlist, fylgir móður sinni í tónleikaferðalögin og eyðir með henni virkum dögum í stúdíó- inu. „Ég fer bara með stelpuna með mér í kerru, set mónitor í vagninn og fer svo bara með hann inn í stúdíóið. Ég var reyndar með hana heima þangað til hún var mánað- argömul en eftir það var ég komin á fullt að syngja.“ Það er því gaman að vera mamma, þykir Rósu, þótt það sé töluvert meiri binding en hún hafði gert sér grein fyrir áður. „Þetta er dálítið erfiðara en ég hélt. Þótt ég hafi alltaf verið að passa þegar ég var krakki hef ég aldrei áður verið bundin skyldum eins og þessum. Að þurfa alltaf að ákveða fyrir- fram hvernig ég ætla að gera hlut- ina, það finnst mér stundum erfitt og þetta er endalaust púsluspil. Og svo er ég ekki lengur sjálf í fyrsta sæti. Það er skrýtið fyrir mann- eskju eins og mig, því ég er vön að dunda mér mikið ein. Þetta er skemmtilegt, en það tekur tíma að venjast þessu. En auðvitað er þetta bara munstur sem maður þarf að temja sér.“ Brjóstagjöfin er svo annað mál. „Fyrst fannst mér þetta voðalega kósí. En ég skal viðurkenna að nú er ég aðeins farin að ókyrrast. Sko, einhvern tímann vorum við dýr úti í náttúrunni. Þá hefur ekkert verið eðlilegra en að gefa brjóst. En ekk- ert sem við erum búin að byggja upp í kringum okkur er náttúrulegt. Þess vegna er það skrýtið að gera eitthvað, sem er eins náttúrulegt og að gefa brjóst, í þessu umhverfi. Ef ég byggi í strákofa einhvers stað- ar í skógi væri þetta ekkert mál. Þá væri ég ekkert að stressa mig á því að ég þurfi að hlaupa út og ná í bankann fyrir lokun. En ég myndi samt aldrei vilja sleppa þessu. Maður verður að reyna að halda í þá náttúru sem maður hefur.“ Engin málamiðlun í gæðum Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni. Rannsóknir staðfesta árangur - www.celsus.is Vöðvabólga og stirðleiki Byltingarkennt andoxunarefni !! Lagar f ljótt vöðvabólgu, stirðleika, eymsli, harðsperrur og sinaskeiðabólgu. Gefur aukna mýkt og vellíðan. Eykur styrk og þol vöðva. Greinilegur  árangur við  líkamsrækt, álagsvinnu og ferðalög. Íþróttafólk og sjúkraþjálfarar mæla með AstaZan AstaZan styrkir einnig húðina sem verður  fallegri og fyrr brún í sól eða ljósabekk. 1 hylk i á dag . Virkar strax! Eykur styrk og þol vöðva Betri árangur!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.