Spegillinn - 01.04.1951, Blaðsíða 34

Spegillinn - 01.04.1951, Blaðsíða 34
70 SPEGILLINN /V • 3 • Frá fréttaritara Tímahs ■•á Bar3aströnd. Sve’Ialög- eru hér orðin :meir. en menn muna áður, 'enda haía skipzt á gagns- ■lausir bíotar og hriðarbylj- fr. Hefir orðið að járna naut. er koma hefjr þurft á mill' I>reja_, því að á annan hátt \ það ógerningur.' - LISTAVERK - í SKÖPUN oe FRAMKVÆMD Eftir Dúk & Disk Nú halda menn eflaust, að ég ætli að skrifa um Vatnsber- ann hans Ásmundar og Fegrunarfélagið eða aðra abstrakt list. En þar lék ég á ykkur, góðir hálsar. Ég er ekki vitund abstrakt, nema það að ég geng skóna mína skakka á hælun- um. En það er ekki mér að kenna, heldur jörðinni, að hún þurfi endilega að vera hnöttótt. Ég ætla að skrifa um góða og gamla list, sem er lítt þekkt hér á landi, af því að atóm- öldin þekktist þá ekki. Nú hefur sem sagt hinn röggsamlegi Þjóðleikhússtjóri vor, Guðlaugur Rósinkranz, sem sumum þykir of lítill til að stjórna svona stóru þjóðleikhúsi, ákveðið að hér skuli leikast á vori komanda eitthvað, sem heitir Rigo- lettó, og lái ég engum hér, þótt hann kannist ekki við orðið, en haldi í fyrstu, að það sé tóbakstegund í London (auðvitað London okkar í Austurstræti). Vér höfum því tekið að oss að uppfræða landslýðinn um þessa tegund skemmtana, því að varla verður mikið á leikdómunum að græða. Loftur (sá, sem getur lifað án lofts) segir auðvitað, að allt heila klabbið sé hreinasta snilldarverk, og þar með er Alþýðuflokkurinn búinn að afgreiða málið, en Halldór okkar á Eddu-Kirkju- bóli (eða Eddubóli) segir, að þar sé ekkert ákaflega drukkið og megi því vel sjá þetta. Sigurður Grímsson, sem alltaf fer með leikritin heim í vasanum, rekur ævisögu höfundar (að svo miklu leyti, sem hún er rekin eftir kjaftasögum á prenti) og segir að hann (þ. e. höf., en ekki Sigurður) hafi verið við- staddur og hafi verið klappað ákaflega fyrir honum og hann hafi fengið blómvönd í sellofani (sem líklega einhver annar hefur átt að fá) o. s. frv. Já, á propos blóm í sellofani, sem otað er að leikurunum á sviðinu, eins og verið væri að reka þá í gegn með rýtingi (hvað margir þeirra ættu náttúrlega skilið fyrir að vera að trana sér fram á skökkum stað), þá kemur það oss helzt til ómannúðlega fyrir sjónir, því að fyrsta ósjálfráða hreyfingin, sem menn gera, er að beygja sig niður og lykta að þeim. Og leikari, sem lyktar að sellofani, er jafnhörmuleg ásjón og Esja (allt svo skipið) upp á Vatna- jökli. Jæja, vér ætluðum að undirbúa lesendur vora undir það, sem í vændum er, og lýsa fyrir þeim óperum og óperettum, því að nafnið Rigolettó, svo og allir búningarnir, sem Þjóð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.