Spegillinn - 01.07.1965, Qupperneq 27
Hér er sko ekki um neina
afborgunarskilmála að ræða.
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Með morgunkaffinu maula ég harðan snúð;
til miðdags fæ ég að Iíkindum kæsta skötu.
Konan er reyndar í ketstríði út í búð,
en krakkamir eru í skítkasti út’ á götu.
Flughratt með fjölbreyttu móti
fram streymir lífið sjálft:
í Tímanum þruglar Tóti,
á Tjörninni kvakar álft.
Frá skriffinnsku og skjaladrasli
í skjótheitum stinga menn af,
til að drekkja blankheitabasli
á baðstað við Svartahaf.
Það lendir svo margt í heimi hér
í handaskolum og pati.
Á Iandsprófum öllum erum vér
oftast á rótargati.
Og verðbólgan magnast og vindurinn fer
úr viðreisnarapparati.
Og hver sjálfstæðishetja orðin er
jafnvel aumari en hægri krati.
Ketleysi
Hamingjan hjálpi oss!
Nú er uppétið allt:
hrútlömb, gimbrar og gamalær,
folöld og fulltíða hross,
aflóga kýr og kálfar.
Ketlaus bær!
Ket, ket, ket,
er kveinað um allan bæinn;
ket, ket, ket,
gaula görnin og maginn.
Ket, ket, ket!
Saltað eða reykt,
soðið eða steikt.
Ket, ket, ket!
Hvort heldur nýtt eða fryst,
feitt eða magurt.
(Á fiski hef ég enga lyst).
- Hér stend ég og get ekki annað
en grenjað eins hátt og ég get
Ket, ket, ket!!!