Fréttablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 8
8 1. október 2009 FIMMTUDAGUR
HRIKTIR Í STJÓRNARSAMSTARFINU
HVATNINGARRÁ STEFNA
STJÓRNVÍSI
Ókeypis
a gangur.
Stjórnendur og
a rir áhugasamir
um stjórnun og
rekstur fyrirtækja
velkomnir.
Stjórnun í gjörbreyttu
efnahagsumhverfi
Hvatningarrá stefna STJÓRNVÍSI 2009 ver ur haldin á Grand hóteli
ann 2. október, kl. 8.30 - 11.30.
Markmi rá stefnunnar er a hvetja stjórnendur til djörfungar og
bjarts ni.
Miki hefur mætt á stjórnendum fyrirtækja allt sl. ár og á rá stefnunni
munu nokkrir eirra stíga á stokk og segja frá reynslu sinni úr
gjörbreyttu efnahagsumhverfi og ví hvernig eir horfa til framtí ar.
Áskoranir Promens
Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri Promens
N1 a fer in
Hermann Gu mundsson forstjóri N1
Græn framtí
Jón órir Frantzson forstjóri Íslenska
gámafélagsins
Hlutverk endursko andans
Margrét G. Flóvenz endursko andi
og eigandi KPMG
Hver stjórnar í fyrirtækjum í kreppu?
Jón G. Hauksson ritstjóri Frjálsrar
verslunar
Nova stærsti skemmtista ur í heimi
- erfi leikar og tækifæri í breyttu umhverfi
Liv Berg órsdóttir framkvæmdastjóri Nova
óra Arnórsdóttir spjallar vi framsögumenn og
fylgir eftir spurningum úr sal.Skráning:
www.stjornvisi.is
HERMANNRAGNHILDUR
JÓN ÓRIR MARGRÉT
JÓN G. LIV
Rá stefnustjóri:
óra Arnórsdóttir
fréttama ur
Hlé
Dagskrá:
2009 Ögmundur
Jónasson
heilbrigðis-
ráðherra Sagði
af sér vegna
kröfu oddvita
ríkisstjórnarinn-
ar um að hann styðji breytingar
á Icesave-málinu.
2009 Björgvin G.
Sigurðsson
viðskiptaráð-
herra Sagði af
sér rúmum 100
dögum eftir
hrun íslenska
fjármálakerfis-
ins.
2006 Halldór
Ásgrímsson
forsætisráð-
herra Sagði
af sér í kjölfar
hruns á fylgi
Framsóknar-
flokksins í sveitarstjórnarkosn-
ingum.
1994 Guðmundur
Árni Stefáns-
son félags-
málaráðherra
Sagði af sér
eftir gagnrýni
Ríkisendurskoð-
unar á embættisveitingar.
1994 Jóhanna
Sigurðardóttir
félagsmála-
ráðherra Sagði
af sér eftir
langvarandi
átök við Jón
Baldvin Hannibalsson, formann
Alþýðuflokksins. Sagði sig
jafnframt úr flokknum.
1987 Albert Guð-
mundsson
fjármálaráð-
herra Sagði
af sér eftir að
í ljós kom að
fyrirtæki hans
hafði vantalið tekjur til skatts.
1943 Jóhann Sæmundsson
félagsmálaráðherra Sat í
utanþingsstjórn og sagði af sér
í mótmælaskyni eftir að Alþingi
gerði viðamiklar breytingar á
frumvarpi hans.
1932 Magnús Guðmundsson
dómsmálaráðherra Sagði af
sér eftir að hafa hlotið dóm í
máli sem tengdist gjaldþrota-
skiptum heildsala, en tók við
embættinu aftur eftir að hafa
verið sýknaður í Hæstarétti.
1923 Magnús Jóns-
son fjármála-
ráðherra Sagði
af sér eftir
ásakanir Alþing-
is um spillingu
í tengslum við
leigu á herbergi á Hótel Borg.
NÍU HAFA SAGT AF SÉR ÚT AF PÓLITÍK
Að auki hefur fjöldi ráðherra sagt af sér embætti í gegnum árin og tekið við
öðrum embættum, störfum eða verkefnum. Má þar nefna Davíð Oddsson,
Björn Bjarnason, Tómas Inga Olrich, Finn Ingólfsson, Eið Guðnason og Jón
Sigurðsson.
„Það er að mjög
óvenjulegt
á Íslandi, og
kannski allt of
óvenjulegt, að
ráðherra segi
af sér vegna
skoðanaágrein-
ings við ríkis-
stjórnina,“ segir
stjórnmálafræð-
ingurinn Gunnar Helgi Kristinsson
um afsögn Ögmundar Jónassonar úr
ríkisstjórninni. Fá dæmi um slíkt séu
frá lýðveldisstofnun.
„Það hefur hingað til verið eitt
af sérkennum íslenskra stjórnvalda
hvað svona prinsippafsagnir hafa
verið sjaldgæfar. Það er kannski
bara gleðiefni að við fáum að sjá
eitthvað af því taginu,“ segir hann.
Gunnar Helgi segir Ögmund hins
vegar hafa einkennilega afstöðu
til þingræðisins. „Það eru tveir
stjórnarflokkar í þessum meirihluta
en ekki þrír. Það er svona eins og
Ögmundur haldi að þeir geti bæði
verið tveir og þrír án þess að þriðji
flokkurinn hafi nokkurn tímann
komið að gerð stjórnarsáttmála
eða sé almennt viðurkenndur sem
sérstakur flokkur.
Ég held að það sé alveg klárt í
öllu þingræðisfyrirkomulagi að svo-
leiðis ganga hlutirnir ekki fyrir sig,
heldur þannig að það eru tilteknir
flokkar sem semja um tiltekna
stjórn og þeir skuldbinda sig og alla
sína flokksmenn til að styðja stefnu
stjórnarinnar. Og þá er ekki hægt
að hafa það þannig að það sé síðan
bara valkvætt fyrir einhvern hluta
flokksins hvort hann vill vera með
eða ekki þegar eitthvert leiðindamál
kemur upp.“
Þetta sé gert til að ríkið á hverjum
tíma búi við sæmilega styrka stjórn.
„Mér finnst vera einhver hola í þess-
um málflutningi hjá Ögmundi,“ segir
Gunnar. - sh
Gleðilegt að ráðherra segi af sér vegna skoðana:
Prinsippafsagnir
mættu vera tíðari
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON
„Ég harma það mjög að Ögmundur
hafi ákveðið að segja sig úr ríkis-
stjórninni. Ögmundur hefur verið
mjög góður liðsmaður, en ég fagna
því náttúrulega um leið að Ögmund-
ur lýsti því yfir að hann yrði áfram
einlægur stuðningsmaður ríkis-
stjórnarinnar,“ sagði Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra um
brotthvarf Ögmundar.
Hún sagði Ögmund góðan liðs-
mann og hún hefði viljað halda
í hann, en ríkisstjórnin yrði að
halda áfram. Verkin biðu. „Ríkis-
stjórnin hefur meirihluta enn og
verk að vinna þannig að við förum
bara yfir stöðuna eins og hún lítur
út.“ Jóhanna sagði afsögn Ögmund-
ar hafa komið á óvart. Hann hefði
hringt í hana rétt fyrir fundinn og
tilkynnt henni ákvörðun sína.
Jóhanna sagði gríðarlega mikil-
vægt að ljúka Icesave-málinu. Hún
vildi ekki segja hvort hún legði til
að tekið yrði tillit til athugasemda
Breta og Hollendinga. Tíminn væri
stuttur og það yrði að klára málið.
Um mánaðamótin verður gefið
út nýtt lánshæfismat fyrir Ísland.
Jóhanna sagði niðurstöðu í Icesave
munu geta haft áhrif á það. Hún
sagði óvíst hvort frekari uppstokk-
un yrði á ráðherraliði í kjölfar
afsagnar Ögmundar.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir tíðindin af
brotthvarfi Ögmundar hafa verið
óvænt og erfið. Hann segir menn
verða að virða ákvörðun Ögmund-
ar. „Hann hefur komið með skýr-
ingar á sínu brotthvarfi og við
verðum að virða þær við hann. Það
þýðir ekki að ég sé sammála þeim.
Ég get þó fullvissað alla um að
engan skugga mun bera á vináttu
okkar Ögmundar Jónassonar; hún
er hafin yfir svona hluti.“
Steingrímur segir óljóst hvort
náist að ljúka Icesave-málinu.
„Það er mikill stuðningur við að
halda málinu áfram í framhaldi
af viðbrögðum Breta og Hollend-
inga. Þetta er erfitt, það vita allir,
og sér ekki fyrir endann á því. Við
sjáum ekki lendingarstaðinn ennþá
en það er auðvitað gríðarlega mik-
ilvægt að það fari að finnast viðun-
andi lausn á málinu.“
Ríkisstjórnin fundaði í gær-
kvöldi og að þeim fundi loknum
sögðu Steingrímur og Jóhanna fulla
samstöðu um að halda ríkisstjórn-
arsamstarfinu áfram. Þingflokks-
fundur Vinstri grænna hófst í gær
klukkan 22.30. Þar átti að taka
afstöðu til þess hvert yrði áfram-
hald málsins. Leggist þingflokkur-
inn gegn því er útséð með áfram-
haldandi stjórnarsamstarf.
kolbeinn@frettabladid.is
Óvænt afsögn en
áfram skal haldið
Leiðtogar stjórnarflokkanna segja afsögn Ögmundar Jónassonar hafa komið
sér á óvart. Bæði sjá eftir góðum félaga en fjöldi verka bíði og því verði að
halda vinnunni áfram. Segja fulla samstöðu um að halda stjórninni áfram.
BJARSTÝN Á SAMSTARF Jóhanna og Steingrímur voru bæði bjartsýn á að samstarf
flokkanna héldi þrátt fyrir ágjöf vegna brotthvarfs Ögmundar. Reyna á að leiða
Icesave til lykta í dag, en óvíst er hvort það náist. Þingflokksfundur Vinstri grænna
stóð fram á nótt í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Brotthvarf
Ögmundar
er mikill
missir fyrir
ríkisstjórnina
og samfélag-
ið allt. Fáir
ef nokkrir
hafa verið
jafn ötulir
baráttumenn
fyrir bættara
samfélagi,“ segir Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, þingflokksformaður
Vinstri grænna. Hún segir að sér
mislíki hvernig fólki hefur verið
stillt upp; sé ekki ein skoðun við
borðið sé sjálfhætt.
Guðfríður vildi ekkert segja um
hver yrði niðurstaða þingflokks-
fundarins sem hófst í gærkvöldi.
Hún vonaðist til að þingið talaði
sig saman að bestu niðurstöðunni
í málinu.
Nafn Guðfríðar Lilju hefur verið
nefnt sem ráðherra. Hún segist
ekki vilja tjá sig um það, ýmislegt
hafi verið rætt um málið. - kóp
MIKILL MISSIR
GUÐFRÍÐUR LILJA
GRÉTARSDÓTTIR