Fréttablaðið - 01.10.2009, Page 47
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2009
Carhartt
Stærðir: xs–xxl
Litir: svartur, blár
og brúnn
Verð: 38.990 kr.
Herraúlpa
Mia
Stærðir: xs-xl
Litir: svartur
Verð: 15.990 kr.
Dömuúlpa
Carhartt
Stærðir: xs–l
Litir: svartur
Verð: 38.990 kr.
Dömuúlpa
Mao
Stærðir: xs–xxl
Litir: svartur
(coated)
Verð: 24.990 kr.
Herraúlpa
Loðfeldir koma og fara úr tísku og
þrátt fyrir að ákveðinn hópur snið-
gangi loðfeldi algerlega, eins og
Brigitte Bardot og fleiri vinkonur
hennar, virðist loðfeldurinn aldrei
sleginn út af laginu.
Í vetur á skinn og hvers kins
fjaðrir og annað slíkt úr dýrarík-
inu upp á pallborðið og stuttir pels-
ar, sem ná að mitti eða rétt fyrir
neðan rass verða sérstaklega áber-
andi. Ef manni finnst svo of þungt
að ganga í heilum pels er um að
gera að hressa upp á heildarútlit-
ið með því að setja skinnkraga til
dæmis á jakkann. Stakir skinn-
kragar fást til að mynda í Rauða
kross búðinni. -jma
Carhartt-, MAO- og MIA -úlpur
njóta vinsælda í SMASH og
Gallerí Sautján.
Í verslununum SMASH og Gallerí
17, sem tilheyra NTC-verslana-
keðjunni, fyllist allt af úlpum og
öðrum útivistarfatnaði á þessum
tíma árs. Yfirhafnirnar eru bæði
hugsaðar fyrir fólk að spóka sig í
á götum úti sem og uppi um fjöll
og firnindi, enda smart, hlýjar og
endingargóðar.
„Carhartt-úlpurnar okkar eru
sérstaklega vinsælar en við höfum
verið með sömu týpuna undanfar-
in ár. Herra- og dömuúlpurnar eru
búnar svipuðum eiginleikum og
er hægt að taka loðið af hettunni
og þrengja þær í mittið,“ segir
Sigríður Garðarsdóttir rekstrar-
stjóri SMASH. „Ég hef átt mína
úlpu í þrjú ár og hún er eins og
ný þrátt fyrir mjög mikla notk-
un og að hafa farið ófáum sinnum
í þvottavélina.“ segir Sigríður. “
Þá fást líka flísfóðraðir anorakk-
ar fyrir bæði kyn í miklu úrvali.
„Anorakkarnir hafa yfirleitt verið
einlitir, en í vetur bjóðum við upp
á þá í mismunandi mynstrum.“
SMASH hefur selt Carhartt-merk-
ið í allnokkur ár en um er að ræða
evrópska útgáfu sem byrjað var
að framleiða árið 1997. Merkið
er einnig framleitt fyrir Banda-
ríkjamarkað en fötin í SMASH
eru sniðin að evrópskum kaup-
endum.
„Hjá NTC fást líka MAO -og
MIA- úlpur sem NTC hannar og
framleiðir. Þær hafa notið mik-
illa vinsælda í gegnum árin enda
flottar úlpur á góðu verði. Úlpurn-
ar eru í stöðugri þróun og í vetur
var bætt við skemmtilegum Ipod
vasa og krækju fyrir heyrnartól-
asnúruna.” MAO og MIA úlpurnar
eru seldar í Sautján, Deres, Urban
og Retro.
Sigríðir segir svarta litinn ráð-
andi þó aðrir litir slæðist með.
„Úlpur og aðrar yfirhafnir eru
flíkur sem fólk ætlar sér að eiga í
einhver ár og þá hallast flestir að
svörtu sem fer við allt.“
Hægt að ganga að
vinsælasta sniðinu vísu
Hægt er að ganga að Carhartt-úlpunum vísum í SMASH en sama vinsæla sniðið hefur fengist þar undanfarin ár. Sigríður er hér fyrir
miðju. MYND/KRISTJÁN GÚSTAFSSON
Skinn og fjaðrir í vetur
Gucci sýndi þessa dásemdaryfirhöfn
á pöllunum fyrir nokkru sem tilheyrir
vetrarlínunni hjá þeim í ár.
Kate Moss sést
gjarnan í pels.