Fréttablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 50
 1. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR Armani kápa Stærðir: 38–44 Litir: Svartur Efni: „Virgin Wool“ Dömukápa Armani kápa Stærðir: 38–44 Litir: fjólublár Dömukápa Armani úlpa Stærðir: 48–56 Litir: Svartur Herradúnúlpa Armani jakki Stærðir: 48–56 Litir: Grár/brúnt vatterað fóður Efni: Ytrabyrði, ullarblanda Herrajakki Klassísk fegurð eftirstríðsár- anna gengur aftur í klæðnaði þennan vetur. Eftirstríðsárin voru ekki bara tími dugnaðar og öflugs uppbyggingarstarfs. Þau voru líka tími þegar fólk þurfti að halda að sér höndum og sjá til þess að peningum þess væri sem best varið. Þessa sögu má vel sjá í yfirhöfn- unum í Sævari Karli þessa dag- ana. Vönduð efni ráða ferðinni og klassísk snið, sem leggja áherslu á að draga fram það fegursta í fari kynjanna. „Þegar við tókum inn vörur fyrir þennan vetur hugsuðum við allt upp á nýtt. Nú kaupa menn bara það sem þeir vita að þeir muni nota, þeir hafa einfaldlega minni áhuga á að taka áhættu í fatavali,“ segir Hermann Hauks- son, innkaupastjóri hjá Sævari Karli. Hermann tekur dæmi um að þar sé nú til sölu grár fóðraður jakki. Snið hans og útlit minni talsvert á svokallaða blazer-jakka sem ávallt standi fyrir sínu. Þar með sé þó ekki öll sagan sögð því í honum sé klæðilegt vesti og því megi segja að tvær hliðar séu á þessum eina jakka, sem nýtist eiganda hans vel. Auk þess sé hann þannig úr garði gerður að hann gangi vel við hvers- dagslegar gallabuxur sem og þær sem notaðar eru við virðulegri tilefni. Þá segist Hermann einnig hrif- inn af klassískum dúnúlpum, gæða- vöru sem komi aftur ár eftir ár. „Það eru hámarks gæðaefni í öllu hérna. Helst notum við 100 prósent ull og ef eitthvað er á móti er það helst bara kasmír sem er notað,“ segir hann og bætir við að með því að velja góð efni í fötin líði mann- eskjunni sem klæðist þeim betur. Fötin séu endingarbetri og einfald- lega fallegri. Hermann segir fatn- aðinn fremur aðsniðinn og fara vel á mönnum svo lengi sem þeir hugi að því að bera sig vel. Hildur Erla Björgvinsdóttir, framkvæmdastjóri Sævars Karls, segir að kventískan einnig bera dám af eftirstríðsárunum og ein- kennast af miklum kvenleika og þokka. „Lykilatriðið nú er mittið,“ segir hún. Allar yfirhafnir séu að- sniðnar og mjög kvenlegar þar sem áhersla sé lögð á mjúkar línur kon- unnar. Svartur litur sé áberandi auk grárra tóna en einnig megi sjá fjólubláan lit bregða fyrir sem og öðrum bláum tónum. Buxurnar séu háar og þröngar. Þá bendir Hildur á að hugað hafi verið að íslenskri veðráttu við valið á fatnaðinum. Yfirhafnir séu oftar með góðu fóðri með til- liti til aðstæðna hér á landi. En auk þess verði stuttir leðurjakkar tals- vert fyrirferðarmiklir og svokall- að „rock chick“ útlit í anda rokka- billísins, sem alltaf snúi aftur í hringrás tískunnar. „Það verður lítið taki áhættu í fatavali í vetur og því áhersla lögð á að fötin sé hægt að nota við sem flest tilefni og að þau séu endingargóð.“ Sígild snið, notagildi og andi eftirstríðsáranna Hermann Hauksson, innkaupastjóri hjá Sævari Karli, segir að hugsað hafi verið upp á nýtt þegar vörur voru teknar inn fyrir vetur- inn. Tímar djarfra ákvarðana í innkaupum séu liðnir í bili. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Feldur er meðal fyrstu efna sem notuð voru í föt manna og til skrauts. Í dag eru pelsar með dýrari fötum sem fást og flestir tengja þá hinum frægu og ríku. Þó eru þeir enn notaðir á köldum slóðum enda fátt sem heldur jafn vel hita og góður feldur. Á síðustu áratugum hafa miklar gagnrýnis- raddir vaknað á notkun dýrafelda þar sem dráp á dýrum fyrir klæðnað þykir ómannúðlegt og óþarft. Samtök á borð við PETA, sem berjast fyrir dýravernd, hafa vakið athygli á óréttmæti þess að rækta dýr til fata- framleiðslu. Barátta PETA og annarra dýraverndarsam- taka gegn pelsanotkun náði hámarki á níunda og tíunda ára- tugnum með þátttöku frægs fólks á borð við Alec Baldwin, Paul McCartney, Pamelu Anderson og Söruh Jessicu Parker. Þá er löngu orðið frægt þegar Christy Turlington og Naomi Campell sátu fyrir naktar undir því yfirskini að þær vildu heldur vera naktar en klæðast pelsum. Umdeildur feldur Sophia Loren er þekkt fyrir að ganga í pelsum og gefur ekki mikið fyrir and- mæli PETA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.