Fréttablaðið - 01.10.2009, Síða 54
1. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● dagur græðara
Eygló Þorgeirsdóttir shiatsu-
þerapisti vinnur með alda-
gamlar aðferðir til að jafna út
orkuflæði líkamans.
Eflaust eru þeir ekki margir sem
hafa heyrt shiatsu getið en þar er á
ferð ævaforn austurlensk meðferð
sem hefur skotið rótum hérlendis.
Eygló Þorgeirsdóttir, sjúkranudd-
ari og formaður Shiatsu-félagsins,
veit allt um málið. „Þetta er hálf-
gert sambland af þrýstipunkta-
meðferð og fleiru. Meðferðin fer
fram þannig fram að sjúklingur-
inn leggst alklæddur á þykka dýnu
á gólfinu. Við taka tog og teygjur,
pressur, öndun og slökun, þar
sem þrýst er á orkubrautir lík-
amans til að auka flæði lífs-
orkunnar,“ segir hún.
Við hverju leitar fólk sér helst
lækningar? „Það er misjafnt. Sum
vandamálin eru líkamleg en önnur
af andlegum toga og þau eru mis-
alvarleg, meðal annars eftir því
hversu lengi þau hafa hrjáð við-
komandi,“ svarar hún. „Yfirleitt
er því betra að leita sér strax
meðferðar, þá má vænta skjótari
bata.“
Hver tími tekur á bilinu 40 til
80 mínútur þar sem sérfræðiku-
náttu Eyglóar nýtur við, en auk
þess að vera sjúkranuddari og shi-
atsu-meðferðarfulltrúi hefur hún
lokið námi í nálastungum. „Ég hef
alltaf verið heilluð af óhefðbundn-
um lækningaraðferðum og ákvað
að læra líka nálastungur.“ Slík-
ur var áhuginn að Eygló gerði sér
ferð eftir nám til Kína til að fylgj-
ast þar með starfi nálastungu-
lækna.
„Þarna var svo margt frábrugð-
ið því sem við eigum að venjast
hér. Í forstofu spítalans sem ég
heimsótti voru til dæmis myndir
af læknunum ásamt upplýsingum
um sérfræðisvið hvers og eins. Í
innri salnum var apótek hvort
sínum megin, með jurtum öðrum
megin og jurtablöndum, lyfjum
og fleiru hinum megin. Þar var
líka skjávarpi þar sem viðtals-
tímum var sjónvarpað beint líkt
og kennslumyndböndum. Svo kom
þarna fólk í daglegar nálastungu-
meðferðir, en hér mætir það einu
sinni til tvisvar í viku.“
En hvers má vænta af shiatsu-
meðferð? „Að vandamálið minnki
eða hverfi,“ segir Eygló en minn-
ir á að sjaldnast gerist það fyrir-
hafnarlaust. „Það fer auðvitað eftir
umfangi vandamálsins.“
Áhugasömum er bent á að Eygló
verður með fyrirlestur á Degi
græðara á Hótel Loftleiðum laug-
ardaginn 3. október. Þar mun hún
velta því fyrir sér hvort og hversu
meðvitaðir menn eru um líkama
sinn og sál. - rve
Ævafornar aðferðir til bóta
Shiatsu er upphaflega kínverskt með-
ferðarform sem hefur tekið á sig ýmsar
myndir. Hér er það stundað að japanskri
fyrirmynd. MYND/EYGLÓ ÞORGEIRSDÓTTIR
„Ég hreifst af þessum orkubrautum sem tengja ólíka líkamshluta,“ segir Eygló um shiatsu og bætir við að það sé hægt að læra á
Englandi. „Helgarnámskeið hafa verið kennd innan Nuddskólans en það veitir ekki viðurkenningu.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Forstjóri eiturefnadeildar frönsku
ríkislögreglunnar, dr. Griffon,
hefur kynnt sér vel getu ilmolía
til að vinna á bakteríum, meðal
annars í andrúmslofti.
Blanda af ýmsum ilmolíum var
sett í herbergi, meðal annars fura,
blóðberg, piparmynta, lofnarblóm,
rósmarín, negull og kanill.
Olíurnar voru settar í margar
petrískálar (flatbotna glerskálar
með lausu loki, einkum notað til
gerla- eða frumuræktunar), sem
voru 15 sentimetra fyrir ofan
gólfflöt. Þær fengu að standa í
24 klukkutíma. Geta sýkla til að
fjölga sér var mæld fyrir og eftir
staðsetningu olíanna.
Fyrir tilraunina fundust 210
sýklategundir í herberginu, þar af
tólf tegundir myglusveppa og átta
tegundir staphylococci eða klasa-
kokka. Var nú olíunum sleppt út
í andrúmsloftið. Eftir fimmtán
mínútur voru aðeins eftir fjórtán
sýklategundir. Innan hálftíma
höfðu áhrifin frá ilmolíunum
eytt öllum myglusveppunum og
klasakokkunum. Aðeins voru
átta aðrar sýklategundir lifandi
en enginn þeirra talin hættuleg
manninum.
Það hefur verið víða, bæði nú og
fyrr á tímum, sýnt fram á að ilm-
olíur geta fyrirbyggt margskonar
sýkingar á spítölum, vinnustöðum
og heimilum. Víða tíðkast það nú
til dags að ilmolíur eru settar í
loftræstikerfi, til dæmis í flug-
vélum, járnbrautarvögnum, sund-
stöðum og stórum fyrirtækjum.
Selma Júlíusdóttir, formaður Aromatherapy-
félags Íslands. Líkamstenging og ilmolíumeðferð,
Lífsskólinn 2004.
Áhrif ilmolía á bakteríur
EFTIRFARANDI HEFUR VERIÐ SÝNT FRAM Á VIÐ RANNSÓKNIR:
Aðeins 4-5 tegundir sýkla eru á hvern rúmmetra í skóglendi.
Um það bil 20.000 tegundir sýkla eru á hvern rúmmetra á heimilum í
borgum.
Nokkrar milljónir tegundir sýkla eru á hvern rúmmetra í stór-
mörkuðum.
5 milljónir tegundir sýkla eru á venjulegu
skrifborði.
Um það bil 9 milljónir tegundir sýkla eru á
hvern rúmmetra á teppi á gangi sem mikil
umferð er um.
HEIMILD: FENGIN AF HEIMASÍÐU DR. GRIFFON.
● FJÖLBREYTT STARFSEMI Í
Lágafellslaug, nýrri og glæsileg sund-
laug í Mosfellsbæ, er 25 metra útisund-
laug, innilaug með hæðarstillanleg-
um botni, heitir pottar, eimbað, sauna
og rennibrautir. Í innilauginni er kennd
vatnsleikfimi og sundnámskeið fyrir
börn á leikskólaaldri. Einnig hefur sund-
deild Aftureldingar aðstöðu í lauginni.
Stór íþróttasalur er í húsinu sem er nýtt-
ur meðan sundlaugin er opin. Einnig
er líkamsræktarstöðin World Class með
mjög öfluga og góða starfsemi í húsinu.
Fjölbreytt heilsuþjónusta er í boði
í Lágafellslaug. Meðferðaraðilar eru
þar starfandi. Boðið er upp á mismunandi nudd en fjórir nuddarar eru
starfandi sem allir hafa sína sérstöðu. Tveir aðilar bjóða upp á höfuð-
beina- og spjaldhryggjarmeðferð sem einnig getur farið fram í innisund-
lauginni. Meðferðin er bæði fyrir börn og fullorðna. Félagsráðgjafi er með
sálfélagslegan stuðning fyrir einstaklinga, hjón og fjölskyldur. Hómópati
hefur að bjóða heildræna meðferð þar sem lækningarmáttur líkamans er
virkjaður og kemur inn á öll svið er viðkoma líkama og sál. Snyrtifræðing-
ur býður upp á fjölbreyttar meðferðir.
Sjá www.big.is, www.www.mos.is (velja Lágafellslaug), www.ham-
ingjulindin.is, www.homopatar.is og www.craniosacral.is.
Til að verjast flensu getur
verið gott að setja ilmkjarna-
olíur í úðabrúsa og úða út í
andrúmsloftið. Það sem þarf
til er:
• Úðabrúsi (50 eða 100 ml)
• 50 ml flaska fer vel í veski
eða vasa.
• Vatn
• Tea Tree-ilmkjarnaolía tólf
dropa
• Lavender-
ilmkjarna-
olía sex dropa
• Lemon-
ilmkjarna-
olía níu dropa
Gegn flensum
Lavender-ilmkjarnaolía virkar á
flensur.
Góð fyrir
meltinguna, liðina
og húðvandamál
Fæst í flestum matvöruverslunum
Hörfræolía
Auðug af Omega 3 og 6
fitusýrum