Fréttablaðið - 01.10.2009, Qupperneq 76
52 1. október 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Bandaríska leikkonan Jessica Alba mun taka að sér hlut-
verk kynþokkafullrar ljósmóður í þriðju myndinni um
Gaylord Focker og samskipti hans við tengdaföðurinn, Jack
Byrnes. Myndinni hefur verið gefið nafnið Little Fock-
ers og flestum ætti því að vera ljóst um hvað hún fjallar,
fjölgun Gaylords og Pam Byrnes. Hollywood Reporter
greinir frá nærveru Jessicu og bætir því við að líklega
eigi Pam von á tvíburum. Alba mun síðan heilla þá Ben
Stiller, Robert De Niro og Owen Wilson upp úr skónum.
Ekki eru þó allir aðdáendur þessara skemmtilegu kvik-
mynda jafnhrifnir af Jessicu, því Empire Online greinir
frá því að sumum þykir leikkonan hreinlega hafa misst
eitthvað af sínum sjarma og vart eiga sér viðreisnar von.
Menn bíða þó spenntir eftir því hvernig endurkoman
verður en leikkonan hefur verið í ársfríi frá leiklist vegna
barneigna.
Alba verður Focker
MISJAFNAR VIÐTÖKUR Jessica Alba mun leika eitt
aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Little Fockers, þriðju
myndinni um Gaylord Focker og Pam Byrnes.
Nýjasta verk leikstjórans Rom-
ans Polanski hefur verið sett
í salt um óákveðinn tíma.
Um er að ræða kvik-
myndina The Ghost með
þeim Ewan McGregor og
Pierce Brosnan í aðalhlut-
verkum. Tökum á myndinni
er lokið og klipping er á loka-
stigi en enn á eftir að fullvinna
hana. Myndin segir frá svo-
kölluðum „skuggarithöfundi“
sem er falið að skrifa ævi-
sögu bresks forsætisráð-
herra og kemst um leið að
fjölskylduleyndarmáli sem
setur líf hans í uppnám.
Polanski á heldur erfitt
með að fylgjast með eftir-
vinnslu myndarinnar þar sem
hann situr nú í varðhaldi sviss-
nesku lögreglunnar og bíður
þess að vera framseldur til
Bandaríkjanna fyrir brot sem
hann framdi fyrir þrjátíu árum.
Polanski var handtekinn frem-
ur óvænt af svissneskum yfir-
völdum en leikstjórinn hefur
alla tíð gætt þess að ferðast
ekki til landa þar sem handtaka
yfir honum væri yfirvofandi.
Polanski nauðgaði þrettán ára
gamalli stúlku á heimili Jacks
Nicholson þegar hann var að
mynda hana fyrir Vogue-tíma-
ritið. Hann flúði land og hefur
síðan að mestu dvalist í París
ásamt eiginkonu sinni.
Fjöldi leikstjóra hefur hvatt
til þess að Polanski verði látinn
laus og franskir stjórnmála-
menn hafa biðlað til þeirra
svissnesku um að Polanski
verði leyft að snúa aftur til síns
heima. Svissneskir fjölmiðlar
hafa jafnframt verið harðorð-
ir í garð þarlendra yfirvalda og
segjast hálfpartinn skammast
sín fyrir að vera svissneskir.
Ný Polanski-mynd í biðstöðu
FÆR MIKINN STUÐNING Stuðn-
ingur stjórnmálamanna og
annarra leikstjóra við Roman
Polanski þykir vera á nokkuð
gráu svæði enda nauðgaði
hann þrettán ára gamalli
stúlku.
Kvikmyndin Karlar sem hata konur sló í gegn hér
á landi svo um munar og eflaust er orðið langt
síðan kvikmynd frá Norðurlöndunum fékk jafn
góða aðsókn og raun ber vitni. Nú er komið að
mynd númer tvö; Stúlkunni sem lék sér að eldin-
um. Áður en farið er út í söguþráð myndarinnar
er rétt að geta þess að hafi Stieg Larsson-æði ríkt
á Ísland undanfarið ár má segja að það sé síður en
svo í rénun. Larsson á þrjár bækur á metsölulista
Eymundsson sem gefin var útí gær; Stúlkan sem lék
sér að eldinum er auðvitað í fyrsta sæti en svo ná
bæði kiljuútgáfan og innbundna útgáfan af Körlum
sem hata konur inn á topp tíu.
En að bók númer tvö. Ekki þykir rétt að gefa upp
nákvæman söguþráð og skýra „plottið“ en í stuttu
mál sagt hefst bókin á því að Lisbeth Salander geng-
ur alveg sæmilega að eyða þeim milljörðum sem
henni áskotnuðust og Mikael Blomkvist á ennþá jafn
erfitt með að halda buxunum á réttum stað. Leið-
ir þeirra liggja aftur saman þegar … punkturinn
verður settur hér.
Að venju eru það Noomi Rapace og Michael
Nyqvist sem leika Salander og Blomkvist og má
fastlega búast við metaðsókn á þennan sænska
trylli.
Larsson númer tvö frumsýnd
SLÓGU Í GEGN Lisbeth Salander og Mikael Blomkvist slógu í
gegn hér á landi í Karlar sem hata konur. Þau mæta aftur til
leiks um helgina í nýrri mynd.
Hinar stóru karlkyns Holly-
wood-stjörnur virðast þurfa
að ganga í gegnum ákveðna
eldraun á sínum ferli; að
leika einmana karla í fram-
tíðinni og kljást við ógnir
þess sem koma skal.
Framtíðin er kvikmyndagerðar-
mönnum alltaf hugleikin enda
geta kvikmyndir stundum virk-
að líkt og spámenn forðum daga.
Framtíðin hefur oft verið björt,
full af tækninýjungum og fjöri
eins og í Back to the Future II. Þá
var hægt að láta sig dreyma um
flug-hjólabretti, jakka sem lög-
uðu sig að stærð og svona mætti
lengi telja.
Aðrar framtíðarmyndir hafa
reynt að skapa trúverðuga heims-
mynd þar sem áhersla er lögð
á miklar hugarfarsbreytingar,
baráttan við hlýnun jarðar virð-
ist hafa tekist, bílar eru keyrðir
áfram af vetni, virðast svífa yfir
vegum landsins og stjórnvöld
leggja sitt af mörkum til að fá fólk
til að láta af reykingum (Bruce
Willis í Fifth Element).
Og svo eru það leikstjórar og
handritshöfundar sem halda að
lífið í framtíðinni verði einmana-
legt; að vélmenni muni smám
saman taka yfir hefðbundin störf,
fólk hverfi inn í heim sýndarveru-
leika og eiginleg samskipti manna
á milli verði af skornum skammti.
Skemmst er að minnast Stallone-
myndarinnar Demolition Man þar
sem leikarinn málhalti hugðist
eiga notalega stund með Söndru
Bullock; hún dró fram einhvern
sýndarveruleikahjálm og útskýrði
fyrir Stallone að svona gerðust
kaupin á eyrinni núna, ekki ein-
hver líkamsvessaskipti eins og í
gamla daga. Ekki var nú ástand-
ið skárra í Will Smith-myndinni I,
Robot, þar sem mannfólkið þurfti
varla að dýfa hendinni ofan í kalt
vatn. Enda hafði Will, fulltrúi
gamla tímans, sitthvað við þessa
róbóta að athuga.
Rick Deckard er einnig ágæt-
is dæmi um einmana karl í fram-
tíðinni. Deckard drap vélmenni í
Blade Runner og virtist eiga erf-
itt með að sjá tilganginn í sínu
lífi. Hann var nánast viljalaust
verkfæri sem lifði eingöngu fyrir
morgundaginn. Tom Cruise í Min-
ority Report er annað sönnunar-
gagn. Sá reynir að klófesta morð-
ingja og glæpamenn sem hafa
ekki framið sinn glæp en þjáist af
einsemd og hellir sér ofan í eitur-
lyfjaneyslu á flótta sínum undan
raunveruleikanum.
Og svo virðist sem kvikmynda-
gerðarmenn hræðist það mest
að mannkynið muni loka sig af
og láta vélarnar um skítadjobb-
in. Kvikmyndin Surrogates hefur
kannski ekki farið hátt í fréttum
en myndin hefur fengið prýðis-
góða dóma í bandarísku press-
unni. Hún skartar Bruce Willis
í aðalhlutverki og gerist í náinni
framtíð. Mennirnir hafa skilið
hver við annan, fylgjast bara með
fullkomnu vélmennunum sínum
vinna sína vinnu og fara varla
út úr húsi. Þetta hljómar auðvit-
að allt saman kunnuglega og þarf
varla að koma neinum á óvart að
Willis gamli er fenginn til að rann-
saka morð sem bilað vélmenni er
grunað um að hafa framið. Og að
honum þyki ekki mikið til nútíðar-
innar (framtíðarinnar) koma.
EINMANALEG FRAMTÍÐ-
ARSÝN HOLLYWOOD
EINMANA Harrison Ford,
Will Smith, Tom Cruise og Bruce
Willis hafa allir leikið menn sem er á
einhvern hátt uppsigað við framtíðina
eða þjást af einmanaleika. Framtíðar-
sýn Hollywood virðist vera sú að
mannfólkið eigi smám saman eftir
að draga sig inn í skel sína og forðast
samskipti við hvert annað.
> ROSALEG HASARMYND
Nýjar myndir úr hasarmyndinni
The Expendables hafa verið settar
á netið og geta menn nálgast þær
á vefsíðunni empireonline.com.
Þetta er sannkallað testóster-
ónbíó því leikstjóri er Sylvest-
er Stallone og hann leikur að-
alhlutverkið en meðal annarra
leikara eru Mickey Rourke,
Bruce Willis, Jet Li og Dolph
Lundgren.
Hugh Jackman og Daniel Craig fara með hlutverk í
leikritinu A Steady Rain á Broadway. Meðan á einni
sýningu stóð hringdi farsími einhvers gestsins
og virtist sá ekki vera á þeim buxunum að
slökkva á símanum. Leikararnir héldu sér í
karakter þegar þeir báðu gestinn vinsam-
legast um að slökkva á símanum. „Viltu
svara þessu? Hver sem þú ert. Við getum
vel beðið, svaraðu bara símanum,“ sagði
Craig með þykkum Suðurríkjahreim. Að
lokum slökkti gesturinn á símanum og
Craig og Jackman gátu haldið áfram leik
sínum.
Truflaðir á leiksviði
TRUFLAÐIR Hugh Jackman og Daniel Craig voru
truflaðir við vinnu sína á Broadway.
FYRIR ÞÉR ER EINN DAGUR SEM ÞÚSUND ÁR
GUÐ BLESSI ÍSLAND
FRUMSÝND 6. OKTÓBER Í REYKJAVÍK OG Á AKUREYRI
FYRSTA KVIKMYNDIN UM HRUNIÐ OG AFLEIÐINGAR ÞESS
STURLA JÓNSSON EVA HAUKSDÓTTIR ÞÓRIR RÚNAR GEIRJÓNSSON TÓNLIST HILMAR ÖRNKLIPPING STEFFI THORSKVIKMYNDATAKA HELGI FELIXSON
MEÐ
STUÐNINGI FRÁ KVIKMYNDAMIÐSTÖÐ ÍSLANDS NORDIC FILM AND TV FOND NDR/ARTE RÚV SVT YLE TV2HANDRITTITTI JOHNSON HELGI FELIXSON LEIKSTJÓRI HELGI FELIXSON
HEINO DECKERTMEÐFRAMLEIÐENDUR EVA RINKCOLORISTOG GRAFÍK DANIEL ODDSSON FRAMLEIÐENDUR TITTI JOHNSON HELGI FELIXSONHLJÓÐVINNSLA CINEMA SOUND INGVAR LUNBERG
FELIX FILMS KYNNA “GUÐ BLESSI ÍSLAND”OG MA.JA.DE.FILMIRIS FILMÍ SAMVINNUVIÐ
II I
I
EÐ
STUÐNINGI FRÁ I I Í I I I I J I
I
I
Í I
J
I
Í I
I
www.facebook.com/graenaljosid