Fréttablaðið - 01.10.2009, Qupperneq 82
58 1. október 2009 FIMMTUDAGUR
Tónlist ★★★★
Skelkur í bringu
Húðlitað klám
Ferskt húðlitað klám
Skelkur í bringu er frábær Reykjavíkursveit, fjórir rokk-
strákar og söngkona sem hljómar eins og Magga Stína
á helíumblöðru. Hún spilar líka á bassa og í sumum
lögum kemur saxófónleikari með gott innlegg. Flippað-
ur tónn sveitarinnar minnir á hina frábæru hljómsveit
PPPönk sem leikkonan Laufey Elíasdóttir leiddi fyrir
mörgum árum. Að auki er sterkur samhljómur með Risaeðlunni og Oxzmá.
Á Húðlitu klámi rennir bandið sér í 15 verk á innan við 25 mínútum.
Margt er flippað uppfyllingarefni en þarna er haugur af geðveikum lögum.
Ég nefni tvö: „Morð og eldingar“ og „Sindri drepa“. Bandið tekur Batman-
lagið, sem er dálítið slappt, en því betri er útgáfan af „Goo Goo Muck“,
sem Cramps gerði kunnuglegt í rokkkreðsum. Skelkur tekur það á íslensku,
„Slímógeð“. Umslag plötunnar er flott og textablaðið líka.
Mér finnst þetta einhver ferskasta plata sem ég hef heyrt á árinu. Ég vona
innilega að þessir krakkar geri meiri músík en fari ekki að gera eitthvað
leiðinlegt. Dr. Gunni
Niðurstaða: Hressandi og skemmtilegt hrárokk, sem minnir um margt á
íslensk eðalbönd fortíðar, eins og Risaeðluna og PPPönk.
Haraldur Leví Gunnarsson rekur
Record Records-útgáfuna. Hann
hefur gefið út plötur með Mamm-
út og Foreign Monkeys og er nú
með þrjár nýjar plötur á teikni-
borðinu: „Þetta er önnur plat-
an með Bloodgroup, þriðja plata
Láru Rúnarsdóttur og fyrsta plat-
an með Sykri. Platan með Blood-
group kemur í nóvember en fyrsta
lagið af henni fer í spilun í byrj-
un október. Plata Láru heitir eftir
laginu Surprise sem er búið að
vera vinsælt í sumar. Þessi plata
er mjög frábrugðin fyrra efninu
hennar. Hljómsveitin Sykur er
svo skipuð ungum og mjög efni-
legum strákum. Platan heitir
Frábært eða frábært og er full af
ansi hressandi rafpoppi. Plöturn-
ar með Láru og Sykri koma báðar
út 13. október.“
Haraldur er meðvitaður um
það að útgáfubransinn er ekki
leið að ríkidæmi. „Það sem skiptir
mestu máli fyrir mig er að þetta
er ógeðslega gaman,“ segir hann.
„Ég hef ekki efni á einkaþyrlu og
Range Rover, en ég lifi af.“
Haraldur er kominn í sam-
starf við upptökustjórann Magn-
ús Árna Öder og þeir eru nú að
leggja lokahönd á að koma sér
upp hljóðveri. „Þetta verður alveg
svaðalegt, langmesta og besta
úrvalið af hljóðfærum á staðnum.
Ég bara hef ekki tíma í að telja
það upp. Þetta verður allt á einum
stað, hljóðver, framleiðsla, útgáfa
og dreifing, þú getur þess vegna
komið til mín og tekið upp heila
plötu og komið henni út í búð dag-
inn eftir eða sama dag ef þú ert í
stuði fyrir það.“
Haraldur segir ágætis móral á
meðal plötuútgefenda á Íslandi.
„Það þýðir ekkert að vera óvin-
ir, enda eru allir að reka plötubúð
og eitthvað annað með útgáfunni
sem kemur hinum vel. Við þykj-
umst að minnsta kosti vera vinir.“
- drg
Record Records spýtir í lófana
FRÁBÆRT EÐA FRÁBÆRT Fyrsta plata
Sykurs er væntanleg.
Hljómsveitin Sometime hefur gefið
út endurgerða útgáfu af fyrstu (og
einu) plötunni sinni, Supercalifra-
gilisticexpialidocious, sem kom út
2007. „Platan seldist upp á nokkrum
mánuðum þá og hefur ekki verið til
fyrr en nú. Platan er öll „remaster-
uð“ og fjögur lög eru alveg mixuð
upp á nýtt,“ segir Danni (í Maus),
sem er stofnmeðlimur í bandinu
auk söngkonunnar Rósu (Diva de
la Rosa).
„Bandið er á fullu. Það hafa orðið
mannabreytingar og Rósa eignaðist
barn í apríl. Þetta setti smá strik
í reikninginn. En við spiluðum á
Réttum og verðum á Airwaves og
erum með efni
tilbúið á næstu
plötu sem við
vonum að geti
komið út næsta
sumar.“
Sometime gaf
nýlega út kass-
ettu í fimmtíu
tölusettum ein-
tökum með fimm
remixum af lag-
inu „Heart of Spades“, meðal ann-
ars með Steed Lord og SvenBit
(Hermigervli). „Kassettan er tísku-
vara og því seld í KVK og Kron
Kron,“ segir Danni. „Það var bölvað
vesen að gefa út spólu og rándýrt
en hverrar krónu virði því sándið á
kassettum er svo skemmtilegt!“
Sometime-platan komin aftur
Hljómsveitirnar Pontiak Pilat-
us, Swive og Keanu koma fram
á kreppukvöldi á Bar 11 í kvöld.
Húsið verður opnað klukkan 21 og
tónleikarnir hefjast klukkan 22.
Í tilkynningu frá hljómsveit-
unum kemur fram að allur ágóði
tónleikanna renni til bágstaddra
útrásarvíkinga, sem hafi þurft
að flýja land vegna ofsókna. Það
hlýtur því að skjóta skökku við að
miðaverð er núll krónur.
Pontiak Pilatus inniheldur
meðlimi úr hljómsveitinni Lokbrá,
sem naut talsverðra vinsælda fyrir
nokkrum misserum og sendi frá
sér plötuna Army of Soundwaves
árið 2003.
Pontiak Pilatus á
kreppukvöldi
PONTIAK PILATUS Hressir strákarnir.
DANÍEL
ÞORSTEINSSON
KOMIN AFTUR
Fyrsta plata
Sometime.
Fyrirmenni heimsins eru
tekin að safnast saman í
Kaupmannahöfn þar sem
Alþjóðaólympíunefnd-
in situr á rökstólum og
skeggræðir hvaða borg fær
að halda Ólympíuleikana
2016. Íslenskur veitinga-
maður í borginni hefur boð-
ið forseta Bandaríkjanna í
hamborgara af því tilefni.
„Ég reikna ekki með að gera þetta
aftur þótt auðvitað eigi maður
aldrei að segja aldrei,“ segir Frið-
rik Weisshappel, eigandi kaffi-
hússins Laundromat við Arhus-
gade í Kaupmannahöfn. Hann,
líkt og danska þjóðin, er ákaf-
lega spenntur fyrir komu Bar-
acks Obama, forseta Bandaríkj-
anna. Friðrik hefur ákveðið að
bjóða honum og eiginkonu hans,
Michelle, í hamborgara enda sé
Barack búinn að lýsa því yfir
að hann sé mikill aðdáandi þess
vinsæla réttar.
Til þess að skötuhjúin sjái nú
örugglega boðskortið frá Frið-
riki hafa starfsmenn Laundromat
hengt boðskortið upp um alla borg
og loks ætlar Friðrik að birta heil-
síðuauglýsingu í stórblaðinu Pol-
itiken á föstudaginn þegar Bar-
ack mætir á svæðið. „Það er
góður íslenskur siður að bjóða
fólki sem maður kann vel við í
mat og ég kann bara ákaflega vel
við þau hjónin,“ segir Friðrik sem
hefur fengið mikil viðbrögð við
þessu uppátæki sínu frá íbúum
Kaupmannahafnar.
Friðrik segir kostnað við heil-
síðuauglýsingu í Politiken vera
töluverðan og kannski ekki alveg
í takt við kreppuna. Hann hafi þó
náð að prútta verðið aðeins niður.
„Þetta er bara svona „once in a
lifetime“-dæmi og ef þetta fær
fólk til að brosa og hlæja þá er til-
ganginum náð,“ útskýrir Friðrik.
Hann bætir því við að hann sé
Frikki býður Bar-
ack Obama í mat
HEILSÍÐAN
Í POLITIKEN
Friðrik Weisshappel hyggst birta
boðskortið í heilsíðuauglýsingu í
Politiken. Þar kemur fram að Bar-
ack Obama og eiginkonu hans sé
boðið í hamborgara. Geti þau ekki
mætt núna þá
eigi þau það
inni þegar
þau mæta
á loftslags-
ráðstefnuna
í desember.
ekkert sérstaklega vongóður um
að forsetinn mæti í matinn en
hann liggi þó á bæn. „Ef hann
getur ekki mætt núna þá stendur
honum til boða að mæta í desem-
ber þegar loftslagsráðstefnan
verður haldin hérna.“
freyrgigja@frettabladid.is
Skiptabókamarkaður með erlendar kiljur.
Spörum gjaldeyri með því að skiptast á erlendum kiljum.
Þú færð 400 kr. inneign fyrir erlenda kilju
gefna út árið 2000 eða síðar.