Fréttablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 94
70 1. október 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. erindi, 6. vörumerki, 8. magi, 9.
kúgun, 11. tveir eins, 12. neðar, 14.
faðma, 16. klafi, 17. miskunn, 18. við,
20. guð, 21. karl.
LÓÐRÉTT
1. lofttegund, 3. eftir hádegi, 4.
valdaskeið, 5. stykki, 7. möttull, 10.
starf, 13. leturtákn, 15. megin, 16.
mælieining, 19. utan.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vers, 6. ss, 8. hít, 9. oki,
11. kk, 12. niðri, 14. knúsa, 16. ok, 17.
náð, 18. hjá, 20. ra, 21. mann.
LÓÐRÉTT: 1. óson, 3. eh, 4. ríkisár,
5. stk, 7. skikkja, 10. iðn, 13. rún, 15.
aðal, 16. ohm, 19. án.
„Ég fæ mér gróft rúnstykki með
smjöri, osti og papriku og drekk
kókómjólk með. Svo fæ ég mér
súkkulaðimöffin og mjólk.“
Magnús Öder, tónlistarmaður og upp-
tökustjóri.
„Það voru mikil viðbrögð hérna
eftir að fréttin birtist, allar síma-
línur hafa verið rauðglóandi,“
segir Sigríður Heiðberg, formaður
Kattavinafélagsins sem á og rekur
Kattholt.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í vikunni ríkir hálfgert ófremdar-
ástand í Kattholti en aldrei hafa
komið þangað jafnmargir kettir og
á undanförnum vikum og dögum.
Margir þessara katta verða veikir
af því áfalli sem fylgir dvölinni í
Kattholti og sumum þarf hreinlega
að lóga.
Þegar Fréttablaðið hafði sam-
band við Sigríði í gær var hins
vegar ögn léttara yfir henni því
tekist hafði að koma átta köttum í
öruggt skjól. Búið var að örmerkja
þá og hreinsa. Sigríður segir að hún
sé alveg ótrúlega ánægð með þessi
viðbrögð og vonast til að fleiri muni
jafnvel koma heimilislausu kisun-
um til bjargar. „En auðvitað getum
við ekki bjargað öllum,“ segir Sig-
ríður og bætir því við að Kattholt
sé reiðubúið að gefa manni gær-
dagsins, Ögmundi Jónassyni, kött
en hann sagði af sér ráðherradómi.
„Ögmundur og kettirnir eru svip-
aðir, þeir fara sínar eigin leiðir.“
- fgg
Kattholt vill gefa Ögmundi kött
ÁTTA BJARGAÐ Mikil viðbrögð urðu við frétt Fréttablaðsins um ófremdarástand í
Kattholti. Átta fjölskyldur höfðu þegar tekið að sér kisur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Hvernig útskýrir maður fyrir konunni sinni
að maður hafi týnt nærbuxunum á barnum?
Maður segir bara satt og rétt frá,“ segir
Jóhannes Haukur Jóhannesson, leikari og
Hellisbúi með meiru. Eins og Fréttablaðið
greindi frá fyrir nokkru á Jóhannes sínar
lukkunærbuxur sem hann leikur alltaf í.
En kvöld eitt ákvað hann að skella sér
aðeins út á lífið með félögum sínum og hafði
lukkubrækurnar með sér í plastpoka. Svo
óheppilega vildi til að Jóhannes gleymdi pok-
anum með heillagripnum í og hann reiknar
fastlega með því að enginn hafi verið svo
góður í sér að geyma brækurnar eða passa
þær þar til hann vitjaði þeirra aftur. Þær séu
því týndar og tröllum gefnar.
Jóhannes kveðst líta á það sem lán í óláni
að undirfötin séu horfin, því nú gefist honum
kærkomið tækifæri til að standa eigin fótum
á sviði, reyndar nærbuxnalaus. „Ég er ekki
búinn að gera það upp við mig hvort ég verði
í nærbuxum eða ekki, það kemur bara í ljós.
Eða ekki,“ segir Jóhannes en Hellisbúinn fer
á smá ferðalag um miðjan mánuðinn og verð-
ur meðal annars sýndur á Akureyri hinn 16.
október.
Annars er í nægu að snúast hjá leikaranum
og hann hefur varla haft tíma til að syrgja
lukkubrækurnar. „Nei, við erum að fara að
taka upp sjónvarpsþáttinn Hjá Marteini í
næstu viku og svo er ég að bíða eftir því að
Gunnar Björn, leikstjóri Skaupsins, hringi í
mig,“ segir Jóhannes, meira í gríni en alvöru,
jafnvel þótt hann hafi farið á kostum í síðasta
skaupi sem Geir H. Haarde. „Ég er reyndar
búinn að vera að stúdera annan náunga, Sig-
mund Davíð. Það hlýtur bara að vera tíma-
spursmál hvenær sveitungi minn úr Hafnar-
firðinum, Gunni, tekur upp símann og heyrir í
mér.“ - fgg
Týndi nærbuxunum sínum á barnum
TÝNDAR Jóhannes Haukur varð fyrir því óláni að týna
lukkunærbrókunum. Hann segir það lán í óláni því nú
geti hann staðið á eigin fótum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég held að peysan slái einhvers
konar met í að vera dýrasta
lopapeysa sem hefur verið seld
úr landi,“ segir listamaðurinn
Rebekka Guðleifsdóttir.
Ekki er langt síðan Rebekka
byrjaði að selja sérhannað-
ar lopapeysur sem hún prjónar
sjálf. Í dag er hún með biðlista af
útlendingum sem vilja ólmir kom-
ast í snertingu við íslensku ullina,
en æstasti kaupandinn var án efa
ríkur Ameríkani sem greiddi 1.000
dollara fyrir peysu – um 120 þús-
und íslenskar krónur. „Það er ekki
gangverðið, þó að það væri næs.
Hann vildi fá fínni lopa og smellur
frekar en rennilás,“ segir hún og
tekur fram að sá ríki hafi átt frum-
kvæðið að því að hækka verðið.
Rebekka er þekktust fyrir að
vera með eina vinsælustu síðuna á
ljósmyndavefnum Flickr. Þar hefur
hún vakið alþjóðlega athygli, sem
hún trúir að hjálpi til við söluna á
peysunum. „Ég held að kúnnarnir
séu yfirleitt fólk sem hefur fylgst
með mér, mínum myndum og því
sem ég geri sem listamaður,“ segir
Rebekka. Þegar hún klárar peysu
tekur hún mynd af sér í peysunni,
vandar eftirvinnsluna og birtir
á Flickr. „Þá fæ ég tonn af fyrir-
spurnum og það hafa alltaf verið
passlega margir sem eru til í að
borga uppsett verð. Þannig hef ég
myndað biðlista sem hefur staðið
í stað – það bætist alltaf við end-
ann á honum um leið og ég klára
peysu.“
Rebekka hefur meðal annars
selt peysur til Mexíkó, Rússlands,
Ástralíu, Púertó Ríkó og Banda-
ríkjanna. Verðið á peysunum er
í hærra lagi, sem heldur pöntun-
um í skefjum. „Ég anna því ekki
að prjóna milljón peysur. Ég hef
ekki áhuga á því að gera bissness í
kringum þetta og ráða prjónakon-
ur til að prjóna fyrir mig. Þetta
verður að vera mitt handverk,“
segir Rebekka. Hún leggur mikið
upp úr því að hver peysa sé ein-
stök og notar munstur sem hún
teiknar sjálf. „Það réttlætir það að
hafa peysurnar aðeins dýrari. Það
er ekki þverfótað fyrir lopapeys-
um á Íslandi, en þetta eru oftast
munstur sem er búið að endurtaka
milljón sinnum.“ Ekki hafa þó allir
verið sáttir við verðið og Rebekka
segir hlæjandi frá afar æstri
bandarískri konu sem taldi að eng-
inn væri til að greiða uppsett verð
fyrir „f***ing“ peysu.
Rebekka er þó hvergi hætt að
taka ljósmyndir. Hún segist vilja
spara orkuna sem færi í að starfa
við ljósmyndun og nálgast ljós-
myndamiðilinn sem myndlist.
atlifannar@frettabladid.is
REBEKKA GUÐLEIFSDÓTTIR: PRJÓNAR SÉRHANNAÐAR LOPAPEYSUR
Ríkur Ameríkani keypti
lopapeysu á 120 þúsund
1.000 DOLLARA PEYSAN Rebekka notar vefsíðu Flickr til að auglýsa peysur sem hún
prjónar og sendir um allan heim. MYND/REBEKKA
Vetrarborgin, skáldsaga Arnald-
ar Indriðasonar, kom nýverið
út í Danmörku. Þar kallast sagan
Vinterbyen. Mette Strømfeldt,
gagnrýnandi stórblaðsins Berlings-
ke Tidende, tók bókina til umfjöll-
unar á þriðjudaginn og
er vægast sagt hrifin.
Mette gefur bókinni
fimm stjörnur af sex
mögulegum og segir
kafla í bókinni eiga að
vera á námskrá fyrir
aðra sakamála-
höfunda.
Rithöfundurinn Hallgrímur Helga-
son var áberandi í búsáhaldabylt-
ingunni, eins og til að mynda þegar
hann barði á bíl Geirs H. Haarde
forsætisráðherra fyrir utan stjórnar-
ráðið. Hallgrímur mun ætla að gera
upp við þennan tíma á
myndlistarsýningu
sem hann opnar á
þriðjudaginn næsta.
Þá verður ár liðið
frá frægu ávarpi
Geirs og verður
forvitnilegt að
sjá hvernig
Hallgrím-
ur gerir
upp við
þennan tíma.
Félagarnir Auðunn Blöndal og
Kjartan Guðjónsson hafa sést á
fundum saman að undanförnu. Í
bígerð er víst leikin sería með þeim
tveim í aðalhlutverkum en hún er
öll á frumstigi. Þáttaröðin ku þó
fjalla um tvo sköllótta náunga
sem ákveða
að verða að
mönnum aftur
og hefja nám
á heimavist.
Auðunn mun
leika ærslabelg-
inn en Kjartan
einstæðan
föður sem
auðvelt er
að lokka út í
hvað sem er.
- hdm, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
MEIRA EN
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r