Fálkinn


Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 5

Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 5
að hœgt er að gera fólk „þyngdarlaust“ hér á jörð- inni? Til þess að komast að hvernig manni líði í geim- flugi, þar sem hann losnar við áhrif þyngdarlágmáls- ins, hefur verið smíðaður „null-gravity simulator“. Þetta er geymir, fullur af vatni, og í hann er látinn maðurinn, sem prófa skal. Svo er geymirinn látinn hringsnúast eins og skil- vindukúla, og þá finnur mað- urinn ekki hvað upp snýr eða niður á honum, og er í sama ástandi og hann væri úti í himingeymnum. — Vís- indamenn hafa tæki til að athuga, hvernig þetta verkar á manninn. Hann er búinn sem froskmaður. ★ að Belgar nota mesta sápu alllra Evrópuþjóða? Það er venjan að mæla hreinlæti fólks eftir því hve mikið það notar af sápu, og samkvæmt því verða Belgar hreinlegastir og nota þeir 14,5 kíló af sápu á mann, að meðaltali. Næst koma Hol- lendingar og Svisslendingar, en þýzka sambandslýðveldið kemur síðast með 9,2 kíló. Nú á þessum síðustu og verstu tímum, þegar dýrtíð- in vex með degi hverjum, væri okkur máske hollt að læra eitthvað af sparsemi og nægjusemi Skotanna. Við skulum því að þessu sinni rifja upp nokkrar Skotasög- ur meðan rúmið endist: Tveir gamlir Skotar sátu á vegarbrún og reyktu pípur sínar. — Eiginlega finnst mér ekkert gaman að reykja, Sandy, sagði annar þeirra. — Því ekki það, spurði hinn. — Sjáðu nú til: Þegar maður reykir sitt eigið tó- bak, þá gremst manni hvað það er dýrt og þegar maður fær í pípuna hjá öðrum, þá er hún svo troðin, að hún trekkir ekki! ★ Skoti og Gyðingar voru a gangi saman. Allt í einu beygir Gyðinguririn sig nið- ur og tekur upp einn shill- ing. sem hann hafði komið auga á. Skotinn hljóp til næsta augnlækis og lét rannsaka í sér sjónina! ★ Tveir Skotar voru saman á baðstað og lentu í deilu um það, hvor þeirra gæti verið lengur í kafi. Þeir veðjuðu sínum shillingnum hvor og fengu baðverðinum pening- ana. Erfingjarnir kröfðust pen- inganna! /V+Áus 1782 skrifaði hinn frægi stjörnufræðingur Lalande grein í Journal de Paris og í henni sýndi hann fram á með rökum, að það væri alls- endis ómögulegt, að maður- inn gæti útbúið sig þannig, að hann gæti flogið um loft- in blá. Greinin var skrifuð í tilefni af flugtilraun Blan- chards. Hinn lærði stjörnu- fræðingur sagði í grein sinni: „Útreikningar á kröftum manns sýna, að maður verð- ur að hafa vængi, sem eru 12.000 til 15.000 feta langir og þeir þurfa að hreyfast um 3 fet á sekúndu. Jafnvel fjandanum sjálfum hefur ekki dottið í hug svo fárán- leg hugmynd, að ætla sér að hefja sig til • lofts og fljúga!“ — Við þessi ummæli mætti máske bæta því, að í nóvember sama ár fann Etienne Montgolfier upp fyrsta loftfarið. 1536 trúlofaði sig Henrik konungur VIII af Englandi. Sú „hamingjusama“ var í þetta skipti Jane Seymour. Almenningur hneykslaðist stórlega á þessari trúlofun, sér í lagi, þar sem konung- ur hafði daginn áður látið taka af lífi eiginkonu sína Önnu Boleyn, sem hann sak- aði um ótryggð, án þess að leggja svo mikið sem snefil af gögnum fram máli sínu til sönnunar. Jane Seymour hef- ur þá sérstöðu meðal kvenna þessa miskunnarlausa kon- ungs, að hún var hvorki háls- höggvin né skotin, heldur lézt af barnsförum eftir rúm- lega árs hjónaband. Þá mó loks minnast á annað óvenju- legt í sambandi við þetta, en það er, að næstu tvö ár á eftir lifði Henrik VIII ógift- ur. ★

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.