Fálkinn


Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 7

Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 7
Pessi oi.ia er vigo íynr arið a sKiraag. Olívan merkir að hinn biskupaði er efld- ur til baráttu gegn óvmum hjálpræðis- ins, en balsamið merkið, að hann fái náð til þess að vernda sig gegn allri spillingu og til þess að útbreiða ilm dyggðarinnar með hreinu líferni. Þá gerir biskup krossmark á enni fermingarbarnsins og skorar á það að skammast sín aldrei fyrir krossinn. Síð- an slær biskup létt högg á kinn barns- ins og er það þar með slegið til riddara í her Krists og ákveður að þola allar skapraunir vegna trúarinnar. Þetta mun upprunnið frá þeim tíma, er kristin trú átti í vök að verjast. Fermingunni lýkur með því að biskup segir: — Friður sé með þér. unum, par sem pau stoou vio J_.anaa- kotskirkju og héldu hvert á sínu kerti, en kertið merkir hjá kaþólskum ljós heimsins eða Krist. Að fermingunni lokinni fengum við að taka mynd af öllum fermingarbörn- Það er sitthvað fleira en það, sem hér hefur verið lýst, sem er frábrugðið fermingu þjóðkirkjunnar. Aldur ferm- ingarbarna er til dæmis ekki fastákveð- inn. Aldur hópsins sem fermdist þenn- an sunnudag var frá 11—15 ára og það kemur oft fyrir að fullorðið fólk ferm- ist. Eina skilyrði til fermingar er, að við- komandi hafi verið skírður fyrst. Það hvíldi hátíðlegur blær yfir þess- ari kaþólsku fermingu og ekki er að efa, að minningin um þennan bjarta sunnu- dag mun verða rík í hugum fermingar- barnanna meðan þau lifa. FALKINN bregður sér í Landakotskirkju einn sunnudag og er viðstadd- ur kaþólska fermingu. FALKINN 7

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.