Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 33
Jimr
HVHIIIKII n VIHII?
aldri. Eftir að sovétstjórnin tók við
völdum, miðaði þessu starfi stórum
betur áfram en áður, því að hún
taldi það geta orðið lyftistöng fyrir
norðurhjara Rússlands, ef hægt væri
að halda uppi siglingum þangað. En
fráleitt þótti að hægt væri að halda
opinni leið nema nokkra mánuði árs-
ins. Hin síðari árin hafa verið nokk-
urnveginn reglulegar skipagöngur til
árósa Ob og Jenisei frá því í ágúst
til október.
Áttatíu vetrum eftir að Palander
skipstjóri sigldi „Vega“ Landnorður-
leiðina, var ný atlaga gerð að ein-
veldi Frosta konungs. Og nú höfðu
mennirnir fengið kjarnorkuna að
vopni. fsbreiður Karahafsins geta
ekki staðizt atlögu ísbrjótsins nýja,
sem heitir „Lenin“, og sker breiða
vik í ísinn, svo að kaupskip geta
siglt í kjörfar hans.
„Lenin“ er tvímælalaust undraverk
nútímatækni. Þar hefur kjarnorkan
tekið sess gufunnar eða hreyfilsins.
I stað kynstra af kolum eða olíu
þarf skipið ekki nema örlitla ögn
af úran til þess að framleiða orkuna,
sem yfirbugar ísinn. Stálbryjnan á
stefni skipsins er óbilandi og orkan
í iðrum þess mölvar ísinn, þótt hann
sé margra metra þykkur.
Kafbátarnir „Nautilus" og „Skate"
opnuðu með ferðum sínum undir ísa-
brynju norðurhafanna ný sjónarmið,
sem geta gerbreytt siglingunum. Og
atómísbrjóturinn „Lenin“ gefur á-
stæðu til að gera sér í hugarlund,
að framvegis verði siglingaleiðir um
íshafið. Það yrði nýr sigur manns-
andans á náttúruöflunum.
Fyrsta ofansjávar atómskipið,
„Lenin“ lauk fyrstu ferð sinni í októ-
ber 1959 í Eystrasalti. En eftir
nýárið hélt það á burt úr innhafinu
og norður með Noregi til framtíðar-
bækistöðva sinna i Murmansk á ís-
hafsströndinni. Á skipið að halda
þeirri höfn opinni á vetrin framvegis.
Það er alls ekki óhugsandi, að
„Lenin“ freisti þess að ryðja sér
braut um ísinn alla leið norður að
heimskauti. Ef það tekst, þá verður
það þrekvirki, sem skráð verður á
spjöld sögunnar.
„Lenin“ verður flaggskip rússneska
ísbrjótaflotans í Norðuríshafi. Þar
verða mörg skip, meðal annars tvö
diesel-elektrisk, sem heita „Moskva"
og „Leningrad", og hafa þau 26.500
hestafla vél hvort. Aðalhlutverk
„Lenins" verður að halda Landnorð-
urleiðinni opinni, svo lengi sem hægt
er, frá Murmansk til Vladivostock, en
það er 17.600 kílómetra leið.
Auk þess á skipið að verða fljót-
andi atómrannsóknastöð, æfingastöð
fyrir skipasmiði og vísindamenn.
Áhöfn skipsins er 100 manns, en auk
þess er rúm fyrir 30—40 farþega.
Isbrjóturinn „Lenin" er 16.000 lest-
ir. Með öðrum orðum ekki eins stór
og ameriska atómskipið „Savannah",
Frh. á bls. 34.
ii
ijiinnjKin;i;jiiiiig!iinH!iiSiiiHrmng!iiigi!gij|iiu!ij3!?gBg!iiiijmjji!j|HjjijællllPlliBilj|ijjjg|ji3HillilijllifflllS!j1iailIjlBinBn!ljliluilUlillijllljj|jjlHllli
STJÖRNUSPÁIN
H YÚ t/ S1716 V ld ð.
Gætið þes's vel, að spilla ekki fyrir yður með óþarfa
skensi og hnútukaseti í menn, sem hafa reynzt yður vel
og gert yður margan vinargreiða. Með staðfestu og vilja-
styrk ættuð þér að geta fengið meira jafnvægi 1 líf yðar.
Góðar horfur í peningamálunum.
H:|5 (
|ii NautsmerkiS. . , ...
Þér eigið dálítið erfitt með að samtvmna krofur vina
!ll yðar, fjölskyldu, eigin áhugamála og skylduverka. En ef þér
iiiíi skipuleggið tíma yðar vel, setti þetta að takast og þa verður
7 vikan einkar skemmtileg og þægileg.
STvíburamerkiS.
Þér megið reikna með dálitlum leiðindum í vikunni og
þau munu stafa fyrst og fremst frá öfundarmönnum yðar.
Það er erfitt að vera lukkunnar pamfíll og njóta velgengni
í lífinu. En þetta verða engan veginn erfið vandræði og
þér verðið að reyna að gera yðar bezta.
S| KrabbamerkiS.
Manneskja, sem þér slituð öllu sambandi við fyrir nokkr-
|1 um árum, getur rétt yður hjálpandi hönd í mjög brýnu
11 máli. Leitið til hennar og reynið að endurnýja vinskap
I ykkar. Vikuiokin verða rómantísk og ánægjuleg.
Œ LjónsmerkiS.
Verið ekki of dómharður um verk samstarfsmanna yðar.
11 Það er alltaf auðveldast að gagnrýna og segja hvernig eigi
iS að gera hitt og þetta. Einnig mættuð þér líta i eigin barm
1 0g athuga hvort yðar verk eru með öllu óaðfinnanleg.
JómfrúarmerhiS.
Þetta verður í alla staði. góð vika. Þér verðið óvenjulega
vel upplagður og komiö nú í verk ýmsu, sem þér hafið
lengi þurft að gera og sem hefur legið á yður eins og mara.
Fyrir bragðið verðið þér í fyrsta flokks skapi og sjáið hvar-
vetna björtu hliðarnar á tilverunni.
V o aarskálarmerkiS.
An þess að taka tillit til þess, hvað aðrir ætla og meina,
skuluð þér halda óhikað áfram á sömu braut og gera ein-
ungis það sem þér álitið sjálfur réttast og bezt. — Ævin-
týralegt atvik endar vel, þótt það liti ekki sem glæsilegast
út um tíma.
SporSdrekamerkið.
Þér eruð dálítið annars hugar um þessar mundir og_ hugur
yðar snýst allur um eitt ákveðið mál, sem þér eruð í mikl-
um vafa um. Leitið ráða hjá sem flestum, áður en þér takið
ákvörðun. Mál þetta hefur mikla þýðingu fyrir framtíð yðar.
BoqmannsmerkiS.
Þér hljótið harða gagnrýni úr mörgum áttum samtímis.
Látið þaö ekki fá of mikiö á yöur. Hún byggist mestmegnis
á einu litlu atriði, sem er að mestu leyti á misskilningi
byggt og það mun upplýsast fyrr eða síðar. — Vanrækið
ekki eiginkonu yðar eða fjölskyidu!
^TþessaTiTiku^skuluð þér vera sérstaklega varkár í pen-
ingamálum, því að ýmsar hættur verða á vogi yðar 1 þeim
efnum. Hikið ekki við að tjá tilfinningar yðar þeirri mann-
eskju, sem stendur yður næst og vill hag yðar sem beztan
á allan hátt.
VatnsberamerkiS.
Gamall vinur verður á vegi yðar. Og enda þótt margt
sé breytt, síðan þið sáust siðast, er vináttan ennþá jafnhlý
og traust. Látið ekki ómerkilegt slúður gera yður gramt
í geði. Reynið heldur að svara í sömu mynt.
FiskamerkiS.
Yður er farið að lengja eftir breytingum, sem undanfarið
hafa staðið til og verið á næsta leiti. Verið þolinmóður!
Það gerist ekki allt á einum degi. Þetta er allt á réttri
braut og kemur hægt og hægt. Góðar horfur í fjármálunum.
Síðustu dagar vikunnar verða beztir.
21. MARZ —
20. APRlL
21. APRlL —
21. MAl
22. MAl —
21. IÚNI
22. lÚNl —
22. IÚLI
23. IÚLI —
23. AGÚST
24. AGÚST—
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OET.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES, —
20. IAN.
21. IAN. —
19. FEBR.
20. FEBR. —
20. MARZ