Fálkinn


Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 25

Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 25
3 msk. salatolía 2 msk. edik 1 tsk. sykur 1 tsk. söxuð steinselja. Agúrkan þvegin og skorin í þunnar sneiðar, salti stráð á í hálítíma. Betra er að láta dálítið farg á þær á meðan. Látnar á sigti, látið síga vel af þeim. Olíunni, vatninu, edikinu og öllu krydd- inu er blandað vel saman. Hellt yfir agúrkusneiðarnar. Agúrkur sýrðar. í 1 1 af ediki þarf krydd sem hér segir: 1 msk. gott sinnep 1 tsk. hvítur pipar 8—10 hvít piparhulstur 12—14 spönsk piparhulstur 2 lárberjalauf 2 laukar, hakkaðir 250 g sykur. Agúrkurnar eru flysjaðar og skornar eftir endilöngu, kjarnarnir hreinsaðir úr þeim. Nuddaðar með fínu salti og látn- ar bíða til næsta dags í lokuðu íláti. Settar á gatasigti, svo saltlögurinn renni sem bezt af þeim. Raðað í hreinar leir- eða glerkrukkur. Edikslögurinn: Sé edikssýra notuð, er hún blönduð 6 hlutum af vatni á móti einum af edikssýru. Edikið er soð- ið, hellt á agúrkurnar, þurrka lögð yfir krukkuna og bíði á köldum stað í 2 sólarhringa. Edikinu hellt af, soðið aft- ur og hellt heitu yfir gúrkurnar, látið bíða 2 sólarhringa á ný. Þá er edikið mælt og fleygt. Jafnmikið nýtt edik tekið. Allt kryddið, nema laukur, sett í poka úr grysju og soðið með nýja edik- Framh. á bls. 30. Einkenni- legir kálbögglar Sjóðið 1 bolla af hrísgrjónum í sölt- uðu vatnið, þannig að þau haldist heil. Takið 8 yztu blöðin af góðu hvítkáls- höfði, sjóðið þau 3—5 mínútur í vatni, sem kryddað er með 2—3 lárberjalauf- um, 2—3 piparkornum, 1 lauk og salti. Sjóðið 6—8 ólitaðar pylsur eða medister- pylsur í sama soðinu. Geymið soðið. Takið himuna af pylsunum og sker- ið þær í bita (1. mynd). Blandið saman hrísgrj ónunum og pylsubitunum, skiptið þessu jafnt á hvítkálsblöðin og vefjið þeim þétt utan um. Leggið bögglana í smurt, eldfast mót (2. mynd). Hellið vel af brúnuðu smjöri yfir bögglana og setj- ið málmpappír yfir. Sett inn í heitan ofn. Takið málmpappírinn af eftir 10 —15 mínútur og látið bögglana brún- ast. Búið til sósu úr soðinu. Bragðbætið hana með súpukrafti, ef þörf gerist (3. mynd). HEILRÆDI BÆLT FLAUEL, sem tekur sig ekki, þótt því sé haldið yfir gufu, verður sem nýtt, ef það er lagt með réttuna niður á hreinan bursta. Efnið síðan strokið á röngunni með volgu straujárni. GÚMMÍBRÚN Á GLERHILLUNNl hlífir bæði hillunni sjálfri og ekki síð- ur þeim krukkum og flöskum, sem kunna að eiga þar samastað, varnar því að þær hrynji fram af. Brúnina er auð- velt að útbúa úr gúmmí- eða plast- slöngu. Ristið slönguna að endilöngu og bregðið henni upp á brúnina. HALDGÓÐIR HANKAR. Teiknið hring á stærð við 25-eyring. Þræðið þétt með hringnum, klippið frá miðju að brún hringsins, eins og mynd- in sýnir. Beygið oddana inn á röngunni og saumið þétt með kappmelluspori. Snyrtið rönguna til. Hankar sem þessir slitna ekki svo auðveldlega og ættu að geta enzt eins lengi og leirþurrkurnar sjálfar.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.