Fálkinn


Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 11

Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 11
NÝR BÁT- UR Á SJÖ ÞAÐ VAR HÉR á dögunum, þegar við vorum staddir í Hafnafirði, að við fréttum að sjósetja ætti nýjan bát hjá Skipasmíðastöðinni Bátalón h.f. þá um daginn. Þegar þangað kom, var verið að leggja síðustu hönd á allan undirbúning. Við náðum sem snöggvast tali af einum eiganda bátsins, Guðmundi Eggertssyni, lögregluþjóni í Reykjavík. Guðmundur fræddi okkur á því, að vinna við smíði þessa nýja báts hefði hafizt í febrúarmánuði síðastliðnum, en bát- urinn er teiknaður af Þorbergi Ólafssyni, framkvæmdastjóra Bátalóns. — Við erum þrír eigendur að bátnum, sagði Guðmundur, — auk mín eiga hann þeir Kristinn Óskarsson, sem einnig er lögregluþjónn og Guðmundur Andrésson, sem verður for- maður á bátnum. Guðmundur sagði, að til að byrja með færu þeir á hand- færi og myndu fyrst um sinn að minnsta kosti róa ýmist frá Patreksfirði eða Dýrafirði, enda væri nú útlit fyrir fisk- gengd á Vestfjarðamiðum. Báturinn, sem heitir Vestfirðingur, er 9 lestir að stærð og í honum er ferskvatnskæld Lister-vél, 36—52 hestöfl, og reikna Þeir félagar með, að hann gangi til jafnaðar 8 mílur. í bátnum er rúmgóður lúkar með kojum fyrir fjóra, enda er ætlun þeirra félaga að búa um borð í bátnum í sumar og róa þaðan sem mest er fiskivon hverju sinni. Það gekk eins og í sögu að setja Vestfirðing fram, og þeg- ar hann vaggaði tignarlega á voginum fyrir framan skipa- smíðastöðina, var ekki laust við að við landkrabbarnir öf- unduðum þá félaga. Það er ekki amalegt að eiga fyrir hönd- um að sækja gull í greipar Ægis á þessum fallega og traust- byggða bát. Á efstu myndinni sjáum við Vestfirðing í skemmu hjá Bátalóni h.f. í Hafnarfirði. Verið er að leggja síðustu hönd á hann, þar til honum verður hleypt af stokk- unum. Á myndinni neðst til vinstri er hann á leiðinni til sjávar, og á stóru myndinni til hægri er hann loks kominn á flot. (Ljósm. Herdís Guðmundsdóttir).

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.