Fálkinn


Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 20

Fálkinn - 24.05.1961, Blaðsíða 20
LITLA SAGAN ÞJÚFURINN LAS GLÆPASÖGUR Hann hafði sprengt peningaskápinn og horfið á burt með það sem átti að borga í kaup þá vik- una. HÉR HAFA svei mér ekki verið neinir klaufar á ferð, þetta er laglega gert, sagði erindreki ríkislögreglunnar glott- andi, er hann var að rannsaka innbrot í skrifstofu stóriðjufyrirtækis í Norr- land. Þar hafði dynamítsprengir verið á ferð, sprengt peningaskápinn og horf- ið með meginið af því, sem átti að borga í kaup þá vikuna, talsvert yfir 100.000 krónur í seðlum. Engin vísbending var þarna um þjóf- ana. Þetta voru leiknir menn. Og ekki þurfti að kvarta undan umgengninni, því að þama var engu umturnað, eins og oft vill verða. Þeir höfðu þrifið til er þeir voru búnir. Munu hafa þótzt geta gefið sér tíma til þess, því að þeir höfðu klippt sundur þjófabjöllu- leiðslurnar. Hvað var nú hægt að gera? Lesa alla glæpamannaskrána og yfirheyra síðan alla þá, sem ekki voru í fangelsinu, en kunnir voru sem æfðir innbrotsþjófar? En það var hægar ort en gert. Fyrst var að rannsaka hverju hafði verið stolið, og skrásetja það. Talsverður tími fór í þetta. En meðan verið var að því kom yngsti skrifarinn i stofnun- „Og ej þér viljið spara benzínið alveg, þá getið þér tekið hann uncL- ir handlegginn!“ inni og sagði mjög alvarlegur frá Því, að stolið hefði verið frá sér glæpasögu- riti, sem hann keypti að staðaldri en hefði gleymt í skrifstofunni kvöldið fyr- ir innbrotið. Lögreglufulltrúinn varð gramur. Var nokkur ástæða til að trufla hann með svona hégóma, meðan hann var að graf- ast fyrir stuld á yfir 100.000 krónum í bankaseðlum? Hann hlýddi betur á vitn- ið, sem sagði honum, að skjalataska hefði líka horfið úr skrifstofunni. Lík- lega höfðu þjófarnir þurft á henni að halda undir alla seðlana þegar þeir fóru. En lengra komst rannsóknin ekki. Fimm vikum síðar gerðist óvænt at- vik í málinu. Bóndi nokkur, sem hafði verið að hirða hey í hlöðuna sína, eigi langt frá staðnum, sem stolið var á, auglýsti í blaði, undir „Tapað — fund- ið“, að hann hefði fundið skjalatösku, sem hann vildi skila réttum eiganda. Lögreglan fékk vitneskju um þetta og nú tók hún til óspilltra málanna á ný. Skjalataskan var skoðuð nákvæmlega, en ekkert hafðist upp úr því annað en það, að þetta reyndist vera sú hin sama, sem stolið hafði verið þegar brotizt var í peningaskápinn hjá iðnaðarfyrirtæk- inu. í töskunni var ekkert nema saka- málaritið, sem stolið hafði verið frá skrifstofumanninum unga. — Líklega munu þjófarnir Viljað hafa eitthvað til að líta í ef þeim leiddist að loknu af- reksverkinu sínu! Hugsanlegt var að einhverja vísbend- ingu væri að finna í riti þessu? Það var sent „Krinfinaltekniska Anstalten" í Stokkhólmi. Ritið var útatað í fingra- förum — mörg þeirra voru að sjálfsögðu fingraför skrifstofumannsins. En neðst á einni blaðsíðunni voru greinileg för eftir fjóra fingur hægri handar. Og nú var farið í fingrafara- skrá lögreglunnar og þekktist þá að þetta voru fingraför gamals dynamít- sprengis. Hann hlaut að hafa lesið þetta blað. Von bráðar náðist hann og var settur inn. Hann neitaði lengi vel, en varð tvísaga og taldi að lokum þann kostinn vænztan að játa á sig glæp- inn. Tveir félagar hans náðust síðar. Hann hafði undirbúið innbrotið með mestu nákvæmni. Hvergi látið eftir sig verksummerki. — Nú bölvaði hann klaufsku sinni, að hafa tekið með sér þetta blað. Hann hafði ekki litið í það fyrr en nokkru eftir innbrotið og þótt- ist viss um, að það gæti aldrei komið upp um sig. „Nú gleymduð þér enn einu sinni að drepa á dyr, Hansen gjaldkeri.“ 20 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.