Fálkinn - 24.05.1961, Síða 6
FERMING I
LANDAKOTI
FERMINGUM vorsins er fyrir nokkru
lokið og unglingarnir hafa verið teknir
í tölu kristinna manna við hátíðlega
athöfn, veizluhöld og gjafir. Fermingin
er ein af þeim stundum í lífi sérhvers
kristins manns, sem seint gleymist, þótt
árin færist yfir.
Flestum er kunnugt hvernig ferming
fer fram hjá þjóðkirkju okkar, en þar
sem okkur datt í hug, að lesendum léki •
hugur á að kynnast fermingu einhvers
annars trúarsöfnuðs, brugðum við okk-
ur vestur í Landakotskirkju 30. apríl
síðastliðinn, og vorum þar viðstaddir
kaþólska fermingu.
>f
Alls fermdust 13 börn þennan sunnu-
dag og gengu þau í skrúðgöngu frá
Landakoti og til kirkjunnar. áður en
athöfnin hófst. Á undan þeim gekk hóp-
ur af smástelpum, eins konar brúðar-
meyjum. Fermingarbörnin voru ekki
klædd neinum sérstökum einkennis-
klæðum. Drengirnir voru bara í venju-
legum fötum, sumir í ljósgráum fötum
og brúnum —• og stúlkurnar voru
klæddar fallegum kjólum. Drengirnir
voru með hvíta slaufu hnýtta um hægri
handlegg, en stúlkurnar með krans í
hári. Öll báru fermingarbörnin logandi
kerti, sem setti hátíðlegan blæ á göng-
una.
Fermingin hófst við lok messu og voru
þá börnin látin koma upp að sacristi-
unni og hafa yfir trúarjátninguna öll í
einu fyrir biskupnum. Að því loknu fóru
börnin aftur til sætis. Síðan komu þau
öðru sinni upp að altarinu til þess að
meðtaka heilagt altarissakramenti. — í
flestum tilfellum er þetta ekki fyrsta
altarisganga barnanna. Það getur allt
eins verið að þau hafi gengið til altaris
á hverjum sunnudegi frá átta ára aldri.
Þegar sjálf fermingin fer fram, koma
börnin enn upp að sacristiunni og kné-
krjúpa. Síðan fara þau eitt og eitt upp
að háaltarinu og ganga fyrir biskup og
djákna. Það er einungis kaþólskur bisk-
up, sem má framkvæma ferminguna,
enda er athöfnin nefnd biskupun allt
eins og ferming hjá kaþólskum.
Biskup breiðir út hendurnar yfir barn-
ið og ákallar heilagan anda að koma
yfir viðkomanda. Þá leggur hann hönd
á öxl hvers einstaks fermingarbarns og
smyr það á ennið með krismu (olía,
sem búin er til úr olivu og balsam).
Myndina hér til hægri tók Ijósmynd-
ari FÁLKANS af f ermingarhörnunum
13, þar sem þau stóðu fyrir utan kirkj-
una. Myndin á síðunni til hægri er tek-
in við sjálfa athöfnina.