Fálkinn


Fálkinn - 24.05.1961, Side 15

Fálkinn - 24.05.1961, Side 15
Hið fræga sjóskrímsli í Lock Ness-vatni skýiur á hverju ári upp kollinum í greinum blaða og tímarita um allan heim. Fjöldi fólks fullyrðir að hafa séð sjóskrímsEið, en það eru víst ekki aðrir en höfundur þessarar grernar, froskmaðurinn John Newbold, sem hafa fært sönnur á að hafa komizt í snertingu við það. hvíld og litaðist um, burtséð frá grugg- inu var ekkert að sjá. Skyggnið var minna en einn metri, og þó að það hafði verið eitthvað skrímsli á ferð í grenndinni, hefði ég ekki getað séð það, nema þá ef það hefði rekizt á mig eða skotizt framhjá mér. Þegar ég var kominn á 18 metra dýpi, fann ég í fyrsta skipti á ævinni til eins konar ótta, án þess þó að vita við hvað ég var hræddur. Ég skildi alls ekkert í mér, en ég hafði á tilfinningunni, að ég væri að nálgast eitthvað skelfilegt. Ég opnaði meira fyrir loftstreymið og tróð marvaða um stund. Á meðan reyndi ég að fullvissa mig um að hræðsla mín væri algjörlega ástæðulaus og barnaleg. Ég synti nokkra metra til hliðar og fór í hringi og þreifaði fyrir mér með hægri hendinni, en hélt á hnífnum mín- um í vinstri hendinni. Það var nú orðið svo dimmt að ég sá ekki hendina fyrir framan mig. Að lokum tókst mér að hristi af mér þessa hræðslutilfinningu, sem hafði ver- ið að ná tökum á mér. Ég minntist þess, er ég einu sinni hafði klifrað upp á 150 metra háan reykháf, til að gera við hann. Þá sagði ég við sjálfan mig, að ég væri úr það sterku efni, að ég væri ekki hræddur við neitt, sem gæti synt eða gengið, ef ég aðeins hefði eitthvað vopn. Og nú var ég með hnífinn minn. Eiginlega veit ég ekki, hvers vegna ég stakk hnífnum á mig, áður en ég fór niður. Ég var svo fullviss um að ekkert væri til í þessu vatni, sem ég þyrfti að nota hnífinn á. Nú var ég þakklátur fyr- ir að hafa hann með. Ég hélt áfram niður á við. Á 21 metra dýpi var það dimmt, að ég sá ekki hend- urnar á mér nema halda þeim 25 senti- metra frá andlitinu. Ég synti aftur í hringi, og allt í einu var ég gripinn þessari hræðslu aftur, hún var óskilj- anleg, en meiri en nokkru sinni áður. Andartaki seinna snerti framrétt hendin á mér eitthvað slímugt fyrir framan mig. Ég reyndi að grípa í það, því að ég hélt að það væri trjábolur vaxinn gróðri. En um leið og ég kom við það, sneri það í burtu með snöggum rykk og rakst svo harkalega í mig, að ég kastaðist á höfuðið og endasentist í vatninu. Samtímis missti ég hnífinn úr hendinni. Ég hef sennilega kastast eina tvo eða þrjá metra niður, og snögglega fann ég að ég fékk ekki nægjanlegt loft; ég varð því enn að opna meira fyrir loft- streymið. Nú varð ég fyrst hræddur fyr- ir alvöru, en ég hafði ekki misst ræn- una. Það var eitt af því fyrsta, sem ég lærði, þegar ég byrjaði að kafa. Maður má ekki láta hræðslu eða óðagot ná völdum á sér, það er sama og dauðinn. Ég leit upp á við, þar hefði ég átt að geta séð, í fjarska að minnsta kosti, tært vatn, sem birta kæmist í gegnum. En það virtist vera jafndimmt þar uppi eins og þegar litið var niður á við. Og ég vissi, hver ástæðan var. Eitt- hvað var á milli mín og yfirborðsins. Stór og svartur skuggi; ef það væri trjábolur, þá væri hann grunsamlega stór. Ég fór að synda upp á við og kom brátt að þessum svarta skugga. Ég rétti hendina út eftir því og fann aftur fyrir þessum hála og slímuga hlut. Ég ýtti harkalega við honum, og um leið sneri hann sér við. Hreyfingarnar minntu mig á fisk^ og eitthvað, sem líktist hala, slóst til í vatninu rétt hjá mér. Ég var svo nálægt að ég gat greint grásvartan líkama, sem sniglaðist up.n á við, til að loka leiðinni fyrir mér. í næstu andrá fann ég þéttingsfast tak um hægri fótinn. Það líktist einna helzt gripörmum kolkrabbans, og í fyrstunni kom mér ekki í hug að útilok- að var að kolkrabbi væri í vatninu. Ég hélt því að þetta væri kolkrabbi, og ég breytti eftir því. Með vinstri hendinni hélt ég mér frá líkama ófreskjunnar, en með þeirri hægri reyndi ég að losa um griparmana, sem héldu fast um fótinn á mér. Þá rann það upp fyrir mér, að þetta voru engir griparmar. Kolkrabbi er alveg skaðlaus, nema maður missi rænuna og hann geti kom- ið á mann föstu táki eða að hann geti haldið sér föstum við klett eða stein. Hér voru engir klettar eða steinar, og þetta var heldur enginn griparmur af kolkrabba, sem sneri sig utan um fót- inn á mér. Þessi hlutur var langur og Framh. á bls. 32. FÁLKINN 15 Á efri myndinni sjáum við froskmanninn John Newbold og konu hans. John er sá eini, sem hefur fært sönnur á, að hann hafi komizt í snert- ingu við skrímslið. — Neðri myndin: Þegar ferðamen koma að þessum rústum, segja leiðsögumennirnir þeim, að það hafi verið sjóskrímslið, sem eyðilagði kastalann. En það eru ekki allir, sem geta viðhaft spaugs- yrði um ófreskjuna.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.