Fálkinn - 21.06.1961, Blaðsíða 24
ígftj
\v-:-
<■
" .:V.<'.^::v'V'
V;
Geymsla á eiturefnum er atriði, sem varðar bæði karla og
konur á heimilunum. Það er gagnslítið þótt annar aðilinn
sé gætinn, ef hinn er óvarfærinn.
Daglega eru í notkun efni, sem eitruð eru eða hættuleg,
jafnt í verkahring mannsins sem húsmóðurinnar. Hægt er
t. d. að nefna öll þau lyf, sem notuð eru til að útrýma skor-
kvikindum, hreinsiefni ýmiss konar, meðöl, fægilegir o. s.
frv. Séu slík efni ekki geymd vel, geta þau valdið slysum,
sem eru þeim mun hryllilegri, að auðvelt er að fyrirbyggja
þau.
Það er engin afsökun, að eiturmerkimiðar séu á, lítil börn
geta ekki lesið, og stærri börn skilja ekki alltaf, hvað mið-
arnir tákna og auk þess hafa slíkir límmiðar tilhneigingu
til að detta af.
Meðöl öll skal geyma í aflæstum, helzt þar til gerðum
skápum, þar sem hvorki börn eða óviðkomandi hafa nokk-
urn aðgang að. Þess skal gætt, að þau séu vel merkt, ágætt
að skrifa á þau, hvers vegna þau hafa komið inn á heimilið.
Gömul meðöl og önnur, sem nokkur vafi leikur á, til hvers
eru, skal henda. Þó ekki út í ruslatunnu, heldur hella þeim
í vaskinn eða hleypa þeim niður um salernisskálina.
Verði maður hins vegar var við að barn hafi náð í meðöl,
sem innihalda svefnlyf eða magnyl, er fyrst fyrir að láta
barnið kasta upp, stinga fingrunum niður í kok á því, gefa
því volga mjólk og koma því strax undir læknishendur, eða
á sjúkrahús, þar sem hægt er að framkvæma magaskolun.
Erfiðari viðureignar eru slys, sem verða af lút eða sýru.
Lútur (t. d. vítissódi) getur á örskömmum tíma etið göt á
vélindið, sem geta orðið til þess að barnið sveltur í hel eða
getur aðeins tekið til sín fljótandi fæðu og þarf að ganga
undir margar erfiðar skurðaðgerðir.
Ef slík slys ber að höndum, skal vinda bráðan bug að því
að koma hlutaðeigandi á ajúkrahús. Hafi lútur verið drukk-
Sólföt á nál. 1 árs.
Efni: 1 mtr. af 70 cm breiðu blá- og
hvítröndóttu bómullarefni, 2% mtr.
blátt skáband, 11 bláir hnappar, 4
smellur.
Sniðið: Strikið hvítan pappír, þannig
að það myndast ferhyrningar, sem eru
2 cm á hvern veg. Teiknið síðan sniðið
á pappírinn eftir skýringarmyndinni.
Klippið sniðið, ekki á að þurfa að gera
ráð fyrir saumfari, mátið það vel á
barnið, áður en sjálft efnið er klippt.
a = buxurnar með smekk,
b = eitt axlaband, þarf að klippa
tvö slík,
c = jakkinn.
Brotna línan á baksniðinu á að vera
heil, einnig á jakkabakinu.
Buxurnar og jakkinn eru hvort
tveggja sniðið út í eitt, svo að það er
auðklippt og saumað.
Fyrst eru buxurnar saumaðar:
Saumið rennibraut á mittið að aftan,
dragið teygju í. Festið teygjuna beggja
vegna. Brjótið 4 cm inn á smekkinn að
ofanverðu, bryddið síðan allar buxurn-
ar (nema mittið að aftan) með bláu
skábandi. Látið efnið hafast dálítið við
í skrefinu til að gefa vídd og þá verður
kringingin betri. Saumið 6 hnappa í
framstykkið. Saumið síðan í hendi hlið-
Framh. á bls. 31.
24 FÁLKINN