Fálkinn - 21.06.1961, Side 33
ODYRAR
:
|
SKALDSÖGUR
Við bjóðum yður nú þessar vin-
sælu sögur á ótrúlega lágu verði:
Babs hinn ósigrandi .... kr. 18.00
Morðið í skóginum ..— 18.00
Skrifið okkur, og við sendum yð-
ur sögurnar burðargjaldsfritt hvert
á land sem er.
Kjörbækur si.
Box 304 - Reykjavík
PRr:NTivrYNDA';i:-m 11n
MYNDAMÓT H.F.
MORGUNBLADSHÚSINU - SÍMI 17152
inn
STJÖRN USPÁIN
Hrútsmerkið.
Þér verðið fyrir miklu baktali, sem stafar af einhverju,
sem þér hafið gert eða sagt í ógát.i. Látið það sem vind um
eyrun þjóta, og hafið ekki hinar minnstu áhyggjur af því.
Rógburðurinn þagnar smátt og smátt, ef þér látið eins og
ekkert hafi í skorizt.
Nautsmerkið.
Yður mun finnast vikan heldur hversdagsleg og viðburða-
snauð, en litlu at.vikin geta líka haft sína þýðingu og verið
skemmtileg engu síður en stórviðburðirnir. í ástamálunum
verður vikan hagstæð, sérstaklega fyrir unga fólkið og þá,
sem eru ungir í anda.
Tvíburamerkið.
Margvísleg vandamál verða á vegi yðar í þessari viku,
en yður mun takast að leysa þau öll á giftusamlegan hátt.
Þér skuluð ekki hika við að ráðfæra yður við aðra, en vandið
þó vel val trúnaðarmanna yðar. Á laugardag býðst yður
tækifæri, sem þér skuluð taka á stundinni.
Krabbamerkið.
Ef yður tekst að skilja hismin frá kjarnanum, verður þetta
skínandi góð vika. Varizt að fara út á braut, sem þér hafið
ekki nægilega þekkingu á, en reynið heldur að einbeita kröft.-
um yðar að því, sem er yðar rétta svið. Því fyrr sem menn
viðurkenna mistök sín, því betra.
Ljónsmerkið.
Þér skuluð ekki hvika hið minnsta frá hugmyndum yðar
og stefnu í þessari viku og láta ekki gagnrýni annarra hafa
áhrif á yður. Þér eruð á réttri braut. og stjörnurnar eru
hliðhollar yður. Á sviði ástamálanna verður næsta vika
erfið — tími vonar og ótta.
J ómf rúarmerkið.
Yður hættir til að hafa eilítið ákveðnar skoðanir og setja
þær fram á þann hátt, að svo virðist sem þér álítið engan
vita betur en einmitfc yður sjálfan. Þetta hefur mjög ertandi
og óþægileg áhrif á þá, sem þurfa að umgengast yður. Takið
tillit til skoðana og sjónarmiða annarra.
Vogarskálarmerkið.
Loks fáið þér betri tíma og næði til þess að sinna hugðar-
efnum yðar. Þér mættuð gjarnan vera ögn ákveðnari á
vinnustað. Það mun veita yður aukna virðingu og traust.
Á laugardaginn berast yður óvenjuskemmtileg og óvænt
tíðindi.
Sporðdrekamerkið.
Það birtir yfir lífi yðar í þessari viku. Öllum erfiðleikum
og hindrunum er skyndilega sem rutt. úr vegi. Þér fáið góð
tilboð, en þér skuluð þó íhuga vendilega, hvort þau henta
yður að nokkru gagni. Heimilislífið verður talsvert erfitt,
en yður tekst að kippa því í lag.
Bogmannsmerkið.
Ef yður geðjast. vel að eftirvæntingu og spenningi, þá mun
yður sannarlega ekki leiðast í næstu viku. Þér skuluð ekki
hika við að reyna nýjar leiðir og taka djarfar ákvarðanir.
Fyrir ungt fólk verður vikan rómantísk, en þá rómantík
verður varhugavert að taka of hátíðlega.
Steingeitarmerkið.
Þér hafið verið einum of bjartsýnn og örlátur í peninga-
málum í seinni tíð, og ekki líður á löngu, þar til tími reikn-
ingsskilanna kemur. Ekki mun þó ástæða til að tileinka sér
andstæða öfga og gerast nirfill. Hinn gullni og vandrat-
aði meðalvegur verður heppilegastur, eins og ævinlega.
Vatnsberamerkið.
Vikan verður erilsöm en lífleg, og það er ekki frá því,
að miklar breytingar gerist í lífi yðar. Það var mál til kom-
ið, að þér breyttuð viðhorfi yðar til ýmissa mála. í vikulokin
mun sennilega gamall vinur yðar leita á náðir yðar og þér
skuluð hjálpa honum, þótt það kosti talsvert erfiði.
Fiskamerkið.
Ekki skuluð þér örvænta, þótt persóna, sem hefur verið
yður mjög kær, hagi sér vægast. sagt einkennilega þessa dag-
ana. Þetta líður hjá fyrr en varir. í vikulokin kemur dá-
lítið óvænt fyrir, sem snertir yður persónulega. Það mun
gerast á opinberum stað.
21. MARZ —
20. APHlL
21. APRlL —
21. MAl
22. MAl —
21. JÚNl
22. JÚNl —
22. JÚLl
23. JÚLl —
23. AGÚST
24. AGÚST-
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES. —
20. JAN.
21. JAN. —
19. FEBR.
20. FEBR. -
20. MABZ