Fálkinn


Fálkinn - 14.03.1962, Síða 15

Fálkinn - 14.03.1962, Síða 15
þótti fyrirsjáanlegt mikið og vaxandi atvinnuleysi og tók bæjarstjórn Hafn- arfjarðar þá togara á leigu og gerði hann ut á nióti útgerðarfélaginu Akur- gerði. Ásgeir Stefánsson hafði þegar á þessum árum mikinn áhuga fyrir út- gerð eins og hverju þvi ,sem hann áleit að væri jafnfram lyftistöng fyrir bæjar- félagið. Hann hafði í nokkur ár átt hlut í togaranum Sviða og átti sæti í fram- kvæmdarstjórn þeirrar útgerðar. Á Alþingishátíðarárinu þótti sýnt að kreppa og atvinnuleysi færi vaxandi. Heimskreppan náði hingað til lands í ársbyrjun 1931 keypti Hafnarfjarð- arbær togarann Maí og þar með var fyrsta bæjarútgerð á landinu sett á lagg- irnar. Ásgeir G. Stefánsson var forstjóri hins nýja útgerðarfyrirtækis frá byrj- un. í hans hlut komu flestir hinir marg- víslegu erfið.leikar við öflun peninga til þess að korna skipinu á veiðar en út í sína fyrstu veiðiferð fór Maí hinn 13. marz. Ásgeir hefur sagt, að ef ekki hefði komið til góðvilji og skilningur bankastjóra Útvegsbankans, þeirra Jóns Ólafssonar, Ásgeirs Ásgeirssonar, Jóns Baldvinssonar og Helga Briem og síðast en ekki sízt Helga Guðmundssonar hefði þetta ásamt mörgu fleiru verið ófram- kvæmanlegt. Ekki voru allir Hafnfirðingar sam- mála um ágæti þessara ráðstafana og skintust í flokka með eða móti. Ásgeir sýndi í hinu nýja starfi engu minni dugnað og forsjálni en við húsa- byggingar áður, og brátt hafði talsverð- ur fjöldi fólks atvinnu við Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Árin eftir 1930 voru erfið hér á landi fyrir margra hluta sakir Atvinnuleysi var almennt og knappt í búi hjá mörg- um daglaunamanninum og reyndar fleirum. Á þorra 1934 hófst Ásgeir og félagar hans handa um kaup á öðrum togara, eftir að tillaga um það hafði verið samþykkt í bæjarstjórn Hafnar- fjarðar með meirihlutaatkvæðum jafn- aðarmanna. Þeir Bæjarútgerðarmenn höfðu frétt af togurum sem voru til sölu í Frakklandi. Ákveðið var að Ásgeir færi utan til togarakaupanna og hafði hann þá aðeins einn dag til stefnu hér heima, svo skjótt var ferðin ákveðin. Ásgeir kvæntist árið 1932 Sólveigu Björnsdóttur Helgasonar skipstjóra í Hafnarfirði. Er Frakklandsferðin var á- kveðin, stóð til að skíra fyrsta barn þeirra hjóna næsta sunnudag á eftir. Daginn sem Ásgeir hafði til stefnu, var hann allan á skriístofu sinni og tók til plögg til ferðarinnar; en um kvöldið var litla stúlkan vatni ausin og gefið nafnið Sólveig. Ferðin til Frakklands varð hin sögu- legasta. Þeir Gísli Jónsson núverandi al- þingismaður fóru saman utan en eftir nokkurt þóf í Frakklandi vegna skipa- kaupanna komu skipstjóri, vélstjórar og aðrir áhafnarmeðlimir að heiman, alls átta manns og var skipinu siglt til Grimsby. Lítið var þá orðið um skot- silfur hjá þeim félögum, en með dugn- aði'og áræði tókst Ásgeiri að fá vistir og kol til íslandsferðarinnar og til Hafn- arfjarðar komu þeir með togarann, sem hlaut nafnið JÚNÍ á miðri vertíð. Svo sem getið var í upphafi þessarar greinar, stofnuðu nokkrir menn í Hafn- arfirði samvinnufélag, keyptu skip og gerðu út togarann Haukanes. Þessi út- gerð er að því leyti sérstæð, að öll skips- höfnin á Haukanesinu átti hlut í skip- inu og útgerðinni. Þeirra kaup var af því sem aflaðist og heldur ekkert ann- að. Ásgeir var í landi og hafði á hendi útgerðastjórn. Rétt fyrir upphaf heimsstyrjaldar- innar síðari stofnuðu nokkrir menn í Hafnarfirði hlutafélagið Hrafnaflóka og varð Ásgeir fljótlega framkvæmdastjóri þess félag's ásamt fyrri störfum. Hrafna- flóki keypti togara frá Reykjavík og hóf útgerð. Sá togari hlaut nafnið Óli garða Um líkt leyti var samvinnufélag- ið Haukanes leyst upp og togarinn seld- ur Hlutafélaginu Vífli sem Ásgeir var jafnframt forstjóri fyrir. Bæjarútgerðin dafnaði vel undir stjórn Ásgeirs þótt erfiðleikar væru talsverðir en atvinna var mikil við þessi fyrirtæki. Til starfa hjá Bæjarútgerð- inni hafði fljótlega eftir stofnun henn- ar ráðist annar mikilhæfur maður, Björn Jóhannesson bæjarfulltrúi og starfaði hann sem fulltrúi Ásgeirs. Þeir voru mjög samhentir um alla stjórn fyr- Framhald á bls. 32 FÁLKINN 15

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.