Fálkinn - 14.03.1962, Blaðsíða 19
Ekki aðeins nú á dögum hefur koss-
inn verið viðfangsefni vísindamanna.
Hinn frægi danski málfræðingur pró-
fessor Kristoffer Nyrop, gaf sér einnig
tíma til þess að rannsaka kossinn og
sögu hans, og í ritgerð hans, sem er nú
orðin sextíu ára gömul, byrjar hann á
því að fullyrða, að ekkert sé vitað með
vissu um uppruna kossins. Ef reynt er
að finna lausn gátunnar í gömlum sið-
um og erfðavenjum frumstæðs fólks, er
ekkert sem vísar veginn. Margir þjóð-
flokkar þekkja alls ekki kossinn, eins
og til dæmis í Polynesiu, á Madagasar,
hjá mörgum negraþjóðflokkum í Afríku
og hjá einstökum finnskum þjóðflokk-
um. — Hann segir einnig að allt bendi
til þess, að kveðja sú, sem fólgin er í
því að nugga saman nefjum sé mjög
frumstæður siður og uppruna hans megi
líklega rekja til þefskynjunarinnar.
Nokkrir þjóðflokkar heilsast í raun
og veru með því að þefa hver af öðrum.
Einn þrýstir nefi og munni að kinn
annars og dregur andann djúpt að sér
um leið. í staðinn fyrir orðin „kysstu
mig“ er til í þeirra máli „þefaðu af
mér“. Fyrst nefkveðjan á sumpart ræt-
ur sínar að rekja til lyktskynjunar
manna, getur þá ekki kossinn á sama
hátt átt rætur sínar að rekja til bragð-
skynjunar manna, spyr Nyrop.
Hversu gamall er kossinn? Enginn
veit neitt um það. Jafnvel elztu heim-
ildir veita okkur engar upplýsingar um
þetta vandamál, sem svo margir hafa
glímt við. Sumir afgreiða málið snar-
lega og segja að kossinn sé auðvitað
jafngamall ástinni.
Darwin gamli hefur lagt sitt til mál-
anna í þessu sem öðru: „Við Evrópubú-
ar erum orðnir svo vanir kossinum, að
við reiknum fastlega með, að hann sé
mönnum í blóð borinn. Þetta er samt
ekki rétt og Richard Steel skjátlast
þegar hann flullyrðir, að náttúran sjálf
hafi kennt manninum að kyssa og að
kossinn hafi komið í heiminn með fyrstu
ástinni. Við getum þó með nokkrum
rétti notað orðið meðfætt í þessu sam-
bandi með hliðsjón af þeim unaði, sem
við finnum til þegar við snertum þann,
sem við elskum. Við njótum þessa un-
aðar meðal annars með aðstoð kossins,
en ýmsir aðrir þjóðflokkar í öðrum
hlutum veraldar njóta hins sama með
því að nugga saman nefjum, eins og til
dæmis á Nýja Sjálandi og meðal Eski-
móa, og enn aðrir njóta svipaðrar kennd-
ar, þegar þeir fá að klappa á arma eða
brjóst eða strjúka eigin andliti eftir
höndum eða fótum hins aðilans.“
Kanadiskur vísindamaður hefur ný-
lega fullyrt, að þörf líkamans fyrir salt,
hafi verið orsök fyrsta kossins. Hann
hefur komizt að þeirri órómantízku
niðurstöðu, að frummenn sleiktu hver
annan í framan, af því að þeir höfðu
uppgötvað, að svitinn var saltur. Það
var ekki fyrr en löngu síðar, að menn
komust að raun um að þessi verknað-
ur hafði margar fleiri girnilegar hliðar.
Þannig lítur sem sagt efnafræðingur á
uppruna kossins.
Gömul þjóðsögn segir frá því, hvern-
ig mennirnir fundu upp kossinn. Eva
hafði lagzt til hvílu í skugga trés. Þá
kom býfluga fljúgandi, sveimaði yfir
rauðum og blómlegum vörum hennar
og settist á þær til þess að sjúga hunang
úr þeim. En Adam, sem gætti Evu sinn-
ar í einu og öllu varð var við þetta og
rak býfluguna burt. Hvort það var for-
vitni eða afbrýðisemi, sem réði gerðum
hans, skal ósagt látið en hann beygði
sig yfir Evu og fylgdi fordæmi býflug-
unnar og þrýsti vörum sínum að henn-
ar. Með sólskinsbros á vör vaknaði Eva
við þetta nýja ástartákn.
Önnur frásögn segir, að Rómverjarn-
ir eigi heiðurinn að því að hafa fundið
upp kossinn. Á tímum Romulusar voru
konur svolítið veikar á svellinu, þegar
Frh. á bls. 36
Myndirnar, sem fylgja þessu grein-
arkorni, sýna okkur ýmislegt
skemm,tilegt í sambandi við koss-
ana, eins og það kemur hinum kunna
teiknara Tom fyrir sjónir. Myndin
fyrir ofan fyrirsögn: Það er gömul
hjátrú, að ef maður þjáist af tann-
pínu, sé bezta ráðið til lækningar að
kyssa asna beint á múlinn. Fyrir
neðan fyrirsögn: Þegar karlmenn
eru komnir yfir fertugt, fara þeir
aftur að kunna að meta kossana. En
meinið er, að þeir vilja helzt kyssa
stúlkur á tvítugsaldri. Myndin hér
að ofan: Að kyssa skegglausan karl-
mann er eins og að kyssa vegginn,
segja stúlkurnar í józku bæjunum.
Myndin hér til vinstri: Þegar Róm-
verjarnir komu heim, kysstu þeir
konurnar sínar til þess að sannprófa,
hvort þær hefðu fengið sér neðan
í því fyrr um daginn.
FÁLKINN
19