Fálkinn - 14.03.1962, Blaðsíða 36
KYSSTU MIG
Frh. af bls. 19
göfug vín voru annars vegar. Þær not-
uðu tækifærin meðan menn þeirra voru
burtu að koma í kring svæsnustu
drykkjuveizlum. Svo mikið kvað að
þessu að eitthvað varð að gera í málinu.
Eiginmönnunum var skipað að líta bet-
ur eftir konum sínum. Þegar mennirnir
komu heim, urðu konur þeirra að koma
fast upp að þeim, svo að þeir gætu fund-
ið, hvort nokkur vínlykt væri af þeim.
Einum Rómverja hugkvæmdist að
þrýsta vörum sínum að munni konu
sinnar, til þess að hann væri nú alveg
viss um, að hún hefði ekki fengið sér
neðan í því. Brátt voru allir farnir að
nota þ'essa aðferð.
Hversvegna loka menn augunum, þeg-
ar þeir kyssa? Þetta er vandamál sem
margir rithöfundar og reyndar fleiri
hafa velt fyrir sér. Vikublað nokkurt
efndi til samkeppni um bezta svarið við
þessari spurningu. Fyrstu verðlaun
hlaut stúlka, sem svaraði: „Af því að
við kunnum þetta utanað.“ Önnur verð-
laun hlaut svarið: „Af því að ástin er
blind“ og þriðju verlaun: „Maður lok-
ar augunum, af því að maður er í sjö-
unda himni og mundi svima, ef maður
liti niður.“
Það eru til tölulegar skýrslur yfir
lygilegustu fyrirbrigði. Það getur varla
hafa verið sérstaklega skemmtilegt að
vera gift manninum, sem færði ná-
kvæmt bókhald yfir það, hvað hann
kyssti konuna sína oft. En því er haldið
fram að þessi maður hafi verið til, en
hvort sem það er satt eða logið, þá eru
niðurstöðutölur bókhaldsins mjög trú-
verðugar:
Fyrsta ár hjónabandsins kyssti hann
konuna sína hvorki meira né minna en
36 5000 sinnum eða um 100 sinnum á
dag! Annað árið hafði kossunum fækk-
að um helming, þannig að þeir urðu 50
á dag að meðaltali. Þriðja árið var tal-
an komin niður í 10 á dag. Eftir fimm
ár og upp frá því voru kossarnir aðeins
tveir á dag: hinn venjulegi koss á
morgnana og svo koss til þess að bjóða
góða nótt.
Bandaríski kynferðissérfræðingurinn
Alfred C. Kinsey hefur heldur betur
rannsakað kossinn. Hann hefur meðal
annars fullyrt í einu af ritum sínum,
að 40% af stúlkum yngri en 15 ára í
Bandaríkjunum „séu ekki lengur ókysst-
ar“ ein,s og kallað er. Mæður þeirra og
ömmur voru hins vegar orðnar 18 ára
og eldri, þegar þær kynntust því fyrst,
hvað koss var. Dr. Kinsey fullyrðir, að
stúlkur nú á dögum kyssi oftar og meir
en stúlkur gerðu fyrir 30 árum síðan.
Hann segir ennfremur, að kossinn sé
margri nútímastúlku vörn gegn nánari
ástarsambandi. „Kossinn er oft eins kon-
ar eldingavari í óveðri æskuástarinnar“
segir doktorinn.
Þannig mætti endalaust ræða fram
og aftur um kossa, en við skulum láta
hér staðar numið og ljúka þessu kossa-
hjali með ofurlítilli kossavísu eftir Erlu:
Virðingin kyssir ennið á.
Auðmýktin hönd að vörum brá.
Aðdáun vanga velur sér.
Vináttan kyssir hvar sem er.
Astin er frekast að því kunn
að hún vill kyssa beint á munn.
BINGÓ
SÍÐASTI IILUTI
15 • 16 * 24 - 39 • 40
72-78-211-216-217