Fálkinn - 15.08.1962, Qupperneq 13
Í.B.A. tók fyrst þátt í landsmóti meistaraflokks árið 1944,
og aftur 1946. Síðan liðu nokkur ár þar til Akureyri sendi lið
næst (1954). Er deildarskipting komst á 1955 lék Í.B.A. í II.
deild, en vann hana 1955. Léík síðan í I. deild tvö nœstu ár,
en féll niður 1957. Dvölin í II. deild varð þó aðeins eitt ár,
og hefur Í.B.A. því leikið í I. deild samfleytt frá 1959.
Margir góðir leikmenn hafa leikið með Akureyrarliðinu frá
upphafi. Fyrir stríð bar mest á Helga Schiot, er lék með úr-
valsliðinu við góðan orðstír.
Frá 1950 komu helzt við sögu þeir Ragnar Sigtryggsson,
Baldur Árnason, Arngrímur Kristjánsson og Haukur Jakobs-
son.
Alls hafa 6 Akureyringar leikið í landsliði, og þarf ekki að
nafngreina þá, þar sem þeir leika flestir með liðinu á þessu
keppnistímdbili.
Reynir Karlsson er þjálfari liðsins. Hann lék með Fram
1950—‘58 og var jafnframt þjálfari þess liðs 1956—‘58 og
1960—‘61.
Á þessum árum lék hann þrisvar með landsliði og oft með
úrvalsliðum. Reynir lauk íþróttanámi við íþróttaháskólann í
Köln, Vestur-Þýzkalandi 1960.
SKÚLI ÁGÚSTSSON er 19 ára bankastarfs-
maður. Hefur leikið með m.fl. frá 1959, oft-
ast h. innh. Hann hefur leikið marga úrvals
og pressuleiki og í landsliðinu gegn írum.
KÁRI ÁRNASON er 18 ára og hefur leikið
tvö undanfarin ár v. innh. í m.fl. Hann hefur
tvisvar leikið með landsliði og oft með úr-
valsliðinu. Vinnur við byggingarvinnu.
GUÐNI JÓNSSON er 19 ára,
múrari að atvinnu. Hann hefur
leikið frá 1950. Leikur h. fram-
vörð.
\
dfy! ss' f-l Z ' '
ý-x <ít . ':■.<■■■ *' .■■■<' ','\
í> ' ,'4 *■><x?
' . s-fct•
STEINGRÍMUR BJÖRNSSON er 21 árs og
hefur leikið með m.fl. í fjögur ár, oftast sem
miðherji. Hann hefur Ieikið 4 landsleiki og
fjölmarga úrvals og pressuleiki.
VALSTEINN JÓNSSON er 18 ára og Ieik-
ur sitt fyrsta ár í meistaraflokki stöðu vinstri
útherja — Hann er verkamaður.
MAGNÚS JÓNATANSSON er
19 ára og er að læra skipa-
smiði. Hann hefur leikið stöðu
v. framv. undanfarin tvö ár.