Fálkinn - 17.10.1962, Síða 12
Alexandría, Kaíró, Luxor. Þetta eru
staðirnir, sem ferðamenn sækja framar
öllu öðru í Egyptalandi. Sé komið til
landsins á skipi, sést strax hinn mikli
munur á þessu ævaforna menningar-
landi og löndum Evrópu. Fyrst í stað
er eins og komið sé hálfa öld aftur í
tímann.
í Alexandríu, sem menn komast þó
seinna að raun um, að er mesta nútíma
borg Egyptalands, verða menn allfor-
viða, er þeir sjá fjölda léttra hestvagna
á götunum, er borgarbúar nota sem
leigufarartæki, og ferðalangurinn kemst
fljótt af eigin reynd að raun um, að eru
ágætir til slíkra nota. Og dýrir eru þeir,
kosta aðeins 5—10 kr., hvert sem ekið
er í miðborginni, þó að ökumennirnir
taki reyndar oftast að þarlendum sið
drjúgum meira, sjái þeir, að þar fer
fávís ferðamaður. Þá geta menn orðið
að borga 20—30 pjastra (= 20—30 kr.).
Þessi viðsipti við ökumanninn eru
oft fyrstu kynni af hvimleiðu prangi
og prettum burðarmanna, ökumanna,
leiðsögumanna og hvers konar sölu-
manna og prangara, sem sækja eins og
mýbit að ferðamönnum oft með prúð-
mennsku, en líklega enn oftar með tölu-
verðri ágengni. Að þessu leyti er Alex-
andría þó prúðmennskunnar bær, enda
mun evrópskari en aðrar borgir Egypta-
lands — og mér liggur við að segja —
þar af leiðandi mun þrifalegri.
Alexandría hefur um eina milljón
íbúa, en af þeim eru jafnmargir Ev-
rópubúar, aðallega Grikkir og ítalir, og
nær allir íbúar Reykjavíkur. Reyndar
hefur þeim farið ört fækkandi undan-
farið, vegna ýmissa hamla, sem stjórn
Nassers hefur sett á athafna- og gróða-
frelsi manna í landinu. Borgin er snyrti-
leg og vel byggð, með nokkrum pálm-
um skrýddum breiðgötum, og fögrum
torgum og stórum nýtízku verzlunar-
og skrifstofuhúsum, og þar er tiltölu-
lega meira af bílum á götunum en í
nokkurri annarri egypzkri borg. Auðvit-
að eru þar einnig stór arabísk hverfi
með tilheyrandi þröngum og sóðaleg-
um götum og hávaðasömum basar (svo
nefnast verzlunarhverfi Arabanna), þar
sem öllum hugsanlegum vörum ægir
saman, og hver auglýsir vöru sína sem
bezt hann getur með raddböndunum.
Þótt mikill minnihluti manna klæðist
á arabíska vísu í Alexandríu, þá vekur
klæðnaðurinn samt strax athygli þeirra,
sem koma til Egyptalands í fyrsta sinn.
Þar má einnig sjá það, sem síðar verður
12 FALKINN