Fálkinn - 17.10.1962, Qupperneq 16
Hvað stendur islenzkri knatt-
spyrnu fyrir þrifum?
íslandsmóti 1. deildar I knattspyrnu lauk sunnudaginn 30. september s.L með leik Vals og Fram. Fram
bar sigur úr býtum sigraði með eirni marki gegn engu. Leikurinn íór fram við miög óbagstæö skilyrði
sex til sjö vindstig og úrkomu undir það siðasta. Þetta varr mjög spennandi mót og alít íram á slðustu
stundu var ekki séð milli hvaða liða úrslitaleikurin i mundi standa, þvi þrjú lið komu til greina. Það
var ekki íyrr en daginn áður að K.R. gefði jafntefli v'ð Ákranes að séð varð hvaða tvö lið mundu að
lokum keppa. — Að enduðu slíku móti vakna oft spúrningar sem menn velta fyrir sér á ýmsa Iimd og
leita Svara. Er knattspyrnunni að fara fram eða er hón i öSdudal og ef svo er eru þá Ilkur fyrir bvi að
hún muni risa á komandi árum. — Fálkinn hefur ná snúið sér til fimm manna og lagt fyrir |íá fressa
spurningu: Hvað teljið þér a standi íslenzkri knattspymu heSzt fyrir brifum? Af þessum fimm ena fjár-
ir þjálfarar og þaraf einn sem enn íeikur. Sá fimmti náði þeim árangri að verða tíu sinnum I||andsmeist-
ari og hefur um árabi! skrifað um íslenzka knattspyrnu. — Svörin fara hér á eftir.
Óli B. Jónsson þjálfari Vals svarar:
Því er fljótsvaraS. Mótafyrirkomu-
lagið hér hjá okkur er fyrir neðan allar
hellur og eyðileggur knattspyrnuna
meira en menn grunar. Á vorin er sam-
in skrá yfir leiki sumarsins og gefin út
bók í því tilefni, en eftir fyrstu leikina
fer allt úr skorðum og ekkert er að
marka hvað þar stendur. Til dæmis um
vitleysu get ég sagt, að eitt félag í sum-
ar lék 90 leiki í öllum flokkum á ein-
um mánuði, en í öðrum ekki nema 3
leiki, þar af meistaraflokkur tvo. Væri
ekki þetra minna og jafnara?
Eins og fyrirkomulagið er núna eiga
þjálfarar erfitt með að halda saman
flokkum til æfinga, vegna þess að kapp-
leikir annarra félaga draga þá til sín.
Hví ekki að taka aðrar þjóðir okkur til
fyrirmyndar og láta leika á ákveðnum
degi eða dögum? Þá geta knattspyrnu-
menn haft ákveðna daga til æfinga.
Mæting yrði betri og þá um leið knatt-
spyrnan.
Annað sem er mjög einkennilegt er að
slíta fslandsmótið (1 deild) í sundur og
láta félögin ekki keppa í rúman mánuð.
Okkar keppnistímaþil er svo stutt, að
við höfum ekki efni á slíku. Og svo
tapast allur áhugi fyrir mótinu með
þessu. Ef eitthvert félagið missir menn
vegna sumarleyfa, þá verður það að
vera þess tap.
Á utanferðir knattspyrnuflokka og
heimsóknum erlendra verður að finnast
önnur lausn en nú er.
Nú hafa flest félög hér fengið mjög
góða aðstöðu til æfinga, svo að ekki
strandar á því. En nú er það hlutverk
knattspyrnuforustunnar að gera þá end-
urþót, sem getur orðið til þess að upp-
hefja íslenzka knattspyrnu.
ÓIi: — Mótin fyrir neðan allar hellnr.
Frímann Helgason, tífaldur fsiandsmeist
ari, svarar:
Þegar ég svara þessari spurningu vil
ég byrja á byrjuninni. Það vantar leið-
beinenduur fyrir yngri flokkana. Það
þarf að kenna þeim tækni og leikni sem
er grundvöllur góðrar knattspyrnu.
Þessi vöntun er stóra meinið okkar í dag.
Það þarf að byrja snemma, og ef menn
eru með í gegnum alla flokka og njóta
góðrar tilsagnar, má vænta árangurs.
Það er leiðinlegt að sjá góða hugsun í
leik fara út um þúfur fyrir það eitt, að
maðurinn er ekki nógu góður til að fram-
kvæma hana. Lið hér skilja samleikinn
ekki nógu vel. Þetta á sérstaklega við
þegar menn eru ekki sjálfir með knött-
inn. Knattspyrnan á að vera leikandi
og það næst ekki fyrr en allir eru með,
hvort heldur menn hafa boltann eða
ekki.
Frímann: — Það þarf að byrja snemma.
Þá eru það æfingarnar. Ég dreg í efa,
að þeir menn sem eyða miklum tíma
í æfingar, taki þær nógu alvarlega. Það
þarf að taka þetta. föstum tökum og
,,keyra“ á fullu allan tímann. Þegar liðið
er skipt á þetta að vera eins og um
keppni væri að ræða. Þá fyrst kemur
árangurinn.
Þá er það mótafyrirkomulagið. Leikir
eru orðnir of margir. Þegar heimsóknir
eru, er það of fámennur hópur sem
tekur þátt í því sem kallað er stórleikir.
Hópurinn sem bara horfir á er alltof
fjölmennur. Leikir á vorin eru full
margir. Mín reynsla í þessu er sú, að á
vorin, meðan menn eru að komast í æf-
ingu ,eigi ekki að hafa leikið þétt, þeim
má svo fjölga þegar líður á sumarið.
16
FÁLKINN