Fálkinn - 17.10.1962, Page 18
J? dagáiná cnn
r / r
ÞEGAR EG FER I BIO ...
í dag langar mig til að skrifa um það
sem kallað er að fara í bíó. Þegar ég
fer í bíó fer ég annað hvort að sjá ít-
ölsku útgáfuna eða amerísku útgáfuna.
Á þessuu tvennu er svipaður munur og
á hundi og ketti.
ítalska útgáfan sýnir okkur venju-
lega persónu sem á við mikið mótlæti
að stríða. Ég vil segja algjört mótlæti.
Það er alveg sama hvað þessi persóna
reynir að gera sér til bjargar og viður-
væris, það fer allt í vaskinn. Ef það eru
ekki meðbræðurnir sem setja stólinn
fyrir dyrnar þá mistekst framtíðar
áformið fyrir hreina handvömm, unz
myndin endar í algjöru volæði. Þessi
þróun myndarinnar fer stig vaxandi
þar til svo er komið að allir sýningar-
gestir eru hálf volandi. Það er því rétt
að hafa með sér góðan vasaklút á þessa
útgáfu. Sé maður mjög viðkvæmur er
rétt að hafa með sér handklæði. Þá ber
þess að gæta þegar staðið er upp að
gólfið er oft hált.
Ameríska útgáfan sýnir okkur oft
kyrrlátan bæ þar sem allt gengur sinn
vana gang þar sem töffarinn ræður öllu
því sem hann vill ráða. Þetta ástand
stendur þó venjulega ekki lengi því með
næstu lest kemur ókunnur en harð-
skeyttur töffari. Nú uppheíjast mikil
læti og er mikið um skothríð og mann-
fall. Myndinni lýkur svo á því að annar
töffarinn ber sigur úr býtum og er það
venjulega sá aðkomni. Við sjáum hann
kyssa fallegasta kroppinn í bænum og
til viðbótar hefur hann fengið þau völd
sem hann þráði. Þegar þessu stigi er
náð er helmingur bæjarbúa fallinn i
valinn.
Þegar ég fer í bíó á ég venjulega við
ýmsa örðugleika að etja, og þar sem ég
veit að það er eins um fleiri vil ég drepa
á þá helztu.
Þó maður sé búinn að kaupa miða og
eigi með réttu eitt sæti til umráða í
húsinu þá er ekki þar með sagt að allt
sé fengið. Ef þú ert ekki nema rétt með-
almaður á hæð má telja öruggt að fyrir
framan þig setzt rösklega tveggja metra
maður. Nú er eitt til við þessu og það
er að hafa sætaskipti við þann sem með
þér er ef þú ert þá ekki einn. Og þó þú
hafir sætaskipti eru miklar líkur til
að fyrir framan þig sé frú viðkomandi
og hafi all fyrirferðarmikinn hatt. Sé
svo má segja að þú sért algjörlega bjarg-
arlaus maður. Meðalmenn verða því að
hafa vaðið fyrir neðan sig og kaupa
næsta sæti fyrir framan líka. Það getur
líka komið sér vel því yfir stólbakið
má leggja frakkann. Sé ógjörningur að
koma þessu við verður maður að ská-
skjóta sér alla myndina og vera svo með
hálsríg daginn eftir.
Annað verra getur þó hent þig. Það
er ef maður í góðum holdum kemur í
hliðarsætið. Það er ekki nóg með að
hann láti fara vel um sig í því, heldur
tekur hann helminginn af þínu líka. Ekki
er og óalgengt að konur setji veski sitt
í þitt sæti eða hreinlega ofan á þig.
Þannig verður þú stundum að gæta
tveggja tuðra alla myndina. Við þessu
er það helzt ráð að hirða viðkomandi
töskur. Þú skalt þó gæta vel að sam-
fylgdarmönnum kvennanna því þeir
geta verið vel við vöxt.
Þó eru það önnur þrengsli sem til
greina koma. Það er ef þú ert meir en
meðalmaður. Þá er það segin saga að
bekkurinn fyrir framan þig er mun
hærri en heppilegt getur talizt. Þá er
að kaupa miða við gangveg og skjóta
bífunum út á umferðarbrautina. Þetta
hefur tvenna kosti í för með sér. Þann
fyrri að þeir sem eru á ferðinni eftir
að sýning hefst, detta um bífurnar og
þá eru miklar líkur fyrir því að þeir
komi tímanlega næst. Og þar sem það
er algeng og viðurkennd regla hjá sum-
um að fara að minnsta kosti einu sinni
á klósettið meðan á sýningu stendur
eru miklar líkur fyrir því að þú getir
haft áhrif á þá líka. En fáir þú ekki
miða við gangveg er voðinn vís.
Þá eru það enn ein vandræði sem
geta mætt þér í bíó. Samræður eru
stundaðar þar af mörgum af mikilli
list. Ólíklegustu mál ber þar á góma
sem þú verður nauðugur viljugur að
hlusta á. Vinur minn einn fór t. d. á
bíó fyrir nokkrum árum og lenti fyrir
aftan tvær mætar frúr. Ekkert bar til
tíðinda fyrr en sýning hófst. Þá gerði
önnur sér lítið fyrir og fór að segja
hinni frá sumarleyfisferðinni. Þetta
gekk allt þar til kom að hléinu og ljós-
in voru kveikt. Þá þögnuðu þær. Þegar
ljósin voru slökkt að nýju hóf hin um-
ræðurnar með því að spyrja hvert þær
hefðu verið komnar. Vinur minn gei'ði
sér þá lítið fyrir og sagði hana hafa ver-
ið komna norður í Vaglaskóg að tjalda.
Ekki varð meira um frásögn það sinnið.
Lokavandræðin við eina bíóferð er
það svo að komast út að lokum. Það
vill oft verða að mikill hluti sýningar-
gesta stendur upp áður en myndin er
alveg á enda og ryðst út. Ef þú ert í sæti
fyrir miðju húsi verður þú nauðugur
viljugur að fylgja með, annars er þér
bani búinn.
Að lokum vil ég svo áminna alla sem
fara í bíó að fara varlega og flana ekki
að neinu því slíkt getur haft afdrifa-
ríkar afleiðingar í för með sér.
Og að lokum þetta. Hvernig væri ef
kvikmyndahús færu inn á þá nýbreytni
að selja stórvöxnum mönnum aftast og
hefðu þar meira rúm milli bekkja.
Dagur Anns.